Morgunblaðið - 04.11.2000, Qupperneq 36
36 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Eru einhverjir Islending-
ar eftir á eyjunni?
Gunnar Guðbjörnsson tenórsöngvari og
Bjarni Thor Kristinsson bassasöngvari hafa
verið að syngja í Brottnáminu úr kvenna-
búrinu eftir Wolfgang Amadeus Mozart í
Ríkisóperunni í Berlín. Davíð Kristinsson
sá uppfærsluna og ræddi við þá félaga.
VIÐ erum stödd í Ríkisóperunni
(Staatsoper) í austurhluta Berlínar-
borgar. Ljósin slokkna og forleikur-
inn hefst að nýrri uppfærslu á
Brottnáminu úr kvennabúrinu
(1782) eftir Mozart. Hljómsveitin
hefur ekki spilað lengi þegar maður
kemur hlaupandi fram á sviðið og
segir hljómsveitinni að stöðva flutn-
inginn. Maðurinn er talsmaður
hljómsveitarinnar og í fylgd hans er
söngvarinn Stephan Rúgamer sem
enn er ekki kominn í gervi Pedrillos.
Sjónvarpsmyndavélar beinast að
sviðinu þar sem þeir lesa upp úr
mótmælaskjali, gagnrýna áform um
niðurskurð sem kosta muni marga
starfsmenn óperunnar vinnuna.
Að uppákomunni lokinni eru Ijós-
in slökkt á ný og óperan hefst í ann-
að sinn. Að þessu sinni er hljóm-
sveitin fullskipuð með stjómanda
(ólíkt því sem yrði ef niðurskurður-
inn nær íram að ganga) og Rúgamer
kominn í gervi Pedrillos, þjóns
spænska aðalsmannsins Belmonte.
Belmonte leitar unnustu sinnar
Konstanze sem er í haldi í Tyrklandi
ásamt Ijóshærðri þernu sinni hjá
hinum ríka og volduga Bassa Selim
og hinum grimmúðuga umsjónar-
manni hans Osmin. Athygli vekur að
íslendingai- skipa bæði aðalhlutverk
karlsöngvara og hefst fyrsti þáttur á
átökum þeirra Gunnars Guðbjöms-
sonar (Belmonte) og Bjarna Thors
Kristinssonar (Osmin).
Niðurskurður
í Berlín
Ég hitti þá félagana að máli á
kaffihúsi óperunnar fyrr um daginn
og byrjaði á því að spyrja þá út í
væntanlegan niðurskurð innan óper-
unnar. „Það er búið að vera að skera
niður frá því að Berlínarborg var
sameinuð," segir Gunnar. „Fyrst
fékkst einhver peningur en fljótlega
var byrjað að saxa á brauðið og það
sem er fram undan er aðeins loka-
hnykkurinn. Hugmyndir em uppi
um að sameina tvö stóm ópemhús-
in. Fyrir þetta hús mun það hafa
þær afleiðingar að sú hefð sem hefur
verið fyrir að sýna allar tegundir af
ópemm verði brotin. Hér verða þá
sýnd léttari verk á borð við Mozart á
meðan stór þýsk verk á borð við
Wagner og Strauss yrðu eingöngu
sýnd í Deutsche Oper. Sameining
hefði neikvæðar afleiðingar þar sem
viss samkeppni er milli þessara húsa
og samkeppnin er af hinu góða.
Hljómsveitirnar yrðu minnkaðar í
báðum óperanum sem er alvarlegt
fyrir húsið hér þar sem hljómsveitin
hér var valin hljómsveit ársins í síð-
asta Opernwelt sem er með þekkt-
ustu óperutímaritum í heiminum.
Þetta var mikill heiður fyrir hljóm-
sveitina en síðan fær hún þær upp-
lýsingar 2-3 vikum seinna að minnka
eigi hljómsveitina um fjórðung.“
„Það er mikil synd,“ segir Bjarni,
„að svona stór borg eins og Berlín,
sem á alveg að geta veitt sér það að
vera með meira en eina stóra ópera,
hyggist fara út í slíkan niðurskurð.
Nú era þessi peningavandamál að
öllum líkindum tímabundin en um
leið og búið er að sameina húsin
verður ekki aftur snúið.“ „Óperan er
þannig listform," bætir Gunnar við,
„að hún á sér ekki uppreist æra ef
einhverju húsi er lokað. Hún er dýrt
listform og því er erfitt að endur-
heimta fyrri stöðu eftir niðurskurð.
Það er nokkuð Ijóst að ef úr þessu
verður er hætt við því að óperalífið í
Berlín, sem var eitt hið glæsilegasta
í Evrópu, kemur til með að líða
óskaplega fyrir þetta og verður ekki
svipur hjá sjón miðað við það sem
áður var. Við sameiningu er það yf-
irleitt þannig að annað húsið, það
sem minna er, verður út undan. Allir
betri söngvaramir, hljóðfæraleikar-
arair og hljóðfærastjómendurnir
fara þá í stærra húsið. Það er alger
synd en þannig verður það líklegast
í Berlín ef sameiningin nær fram að
ganga,“segir Bjarni.
„Hættan er sú,“ bætir Gunnar við,
„að stærri verk færist alfarið yfir í
Deutsche Oper því að stærri stjórn-
endur hafa yfirleitt meiri áhuga á
stærri stykkjum á borð við Wagner-
óperana. Daniel Barenboim, sem
hefur verið listastjórnandi hér í tæp-
an áratug, hefur verið að setja hér
upp allar óperar Wagners. Það sem
mun gerast er að þetta hús verður
einhvers konar aukahús sem er
synd því að hér er hefðin og vitað er
að hljómsveitin hér er mun betri en í
hinu húsinu.“
Flökkulíf
óperusöngvara
„I Vín er þetta öfugt," segir
Bjarni. „Þar hefur sjálfstæði stóra
óperahúsanna verið að aukast. Fyrir
áratug var listræn stjómun húsanna
í stjórn eins og sama aðilans. Nú era
þessi hús í samkeppni og flytja
stundum sömu óperamar." Bjarni
er eini utanaðkomandi söngvari
uppfærslunnar í Staatsoper. „Eg er
búinn að vera héma fyrir þessa upp-
færslu allt æfingatímabilið frá því í
haust. Ég á heima í Vín og er með
annan fótinn þar í þjóðaróperanni
sem ég hef sungið við síðastliðin
þrjú ár. Ég hef verið þar fastráðinn
en er nú kominn í lausamennskuna
þótt ég sé áfram með annan fótinn í
mínu gamla húsi. Ég kem sérstak-
lega fyrir þær sýningar sem við eig-
um eftir hér. Ég flaug frá Vín í
morgun en þetta tekur ekki nema
einn og hálfan tíma og er því svipað
og að búa hérna rétt fyrir utan borg-
ina. Síðan legg ég mig eftir hádegi
áður en ég kem hingað og syng og
flýg svo aftur heim í fyrramálið.“
Aðspurðir að því hvort ópera-
söngvarar séu mikið á flakki svarar
Gunnar: „Það er mjög gott að geta
verið lausamaður en það er ekkert
sérstaklega fjölskylduvænt. Ég á lít-
il böm og það er ástæðan fyrir því
að ég hætti þessu. Ég var lausamað-
ur í tvö ár. Þá kom ég heim að með-
altali í eina viku og var síðan í 3-4
vikur í burtu. Þetta var svona eins
og að vera á sjónum." „Ég held að
áveðin blanda af hvoru tveggja sé
kannski ákjósanlegust fyrir ópera-
söngvara, að geta verið fastráðinn
við ákveðið hús en hafa þar svigrúm
líkt og Gunnar hefur,“ bætir Bjarni
við. „Ég er núna með svona 20-25
sýningar í öðram húsum yfir vetur-
inn sem þýðir að ég er ekki of mikið
í burtu. Þegar ég bjó í Lyon í
Frakklandi var ég meira eða minna
alltaf í burtu, aldrei hjá fjölskyldu
minni,“ segir Gunnar.
fslendingar í 40 prósent
hlutverkanna
Aðspurðir að því hvort það sé til-
viljun að tveir Islendingar séu að
syngja saman svarar Bjami: „Við
Bjarni Thor Kristinsson (Osmin) ógnar hinum stríðna Pedrillo
(Stephan Riigamer).
Þræta Gunnars Guðbjömssonar (Belmonte) og Bjarna Thors
Kristinssonar (Osmin) í fyrsta þætti Kvennabúrsins.
eram náttúralega bara bestir," og
hlær. „Það er náttúralega þannig að
bestu söngvararnir hittast í bestu
húsunum og þar sem íslendingar
era orðnir svona góðir þá era þeir
alltaf að hittast í bestu húsinum,"
bætir Gunnar við og Bjarni skellir
upp úr.
„Það að við landarnir séum að
syngja hérna saman er tilviljun,“
heldur Gunnar áfram, „en þó ekki
meiri tilviljun en það að þetta er
alltaf að gerast. Það er engin tilvilj-
un lengur að íslenskir söngvarar era
út um allt í stóram, góðum ópera-
húsum að syngja. Ég hef sungið
frekar oft með Islendingum, t.d.
með Viðari Gunnarssyni í Wies-
baden og Kristni Sigmundssyni í því
sama húsi, Rannveigu Fríðu í
Frankfurt, Ingveldi Ýr í Lyon og
Bjarna og Tómasi Tómassyni hér í
Berlín. Þetta er svona það sem ég
man í fljótu bragði.“
Aðspurðir að því hvort öðram en
íslendingum þyki athyglisvert að
tveir aðalsöngvaranna séu íslenskir
svara þeir játandi í kór. „Það má
segja að það sé meira tekið eftir
þessu hérna en á íslandi. Fólk er
mjög meðvitað um þetta og við eram
oft spurðir að því hvort það séu þá
einhverjir íslendingar eftir á eyj-
unni,“ segir Bjami. „Fólk spyr oft:
íslendingar era um 270.000 og þar
af era 80 prósent óperasöngvarar?"
segir Gunnar og aftur hlæja þeir í
kór. „Það mætti halda það þar sem
að það er ótrúlega hátt hlutfall ís-
lendinga innan óperaheimsins. Það
era ekki lengur bara Kristján Jó-
hannsson og Kristinn Sigmundsson
sem era að syngja út um allt. Þetta
er orðinn tuttugu til þrjátíu manna
hópur af körlum og konum sem er
syngjandi út um allan heim,“ segir
Gunnar.
„Meira að segja héma rétt fyrir
norðan borgina, í Neustrelitz, era
tvær íslenskar söngkonur fastráðn-
ar við sama hús að syngja aðalhlut-
verk,“ segir Bjami. „Fyrir sjö, átta
áram voram við þrír íslendingar fa-
stráðnir við óperana í Wiesbaden.
Þannig að við stöndum okkur mjög
vel miðað við höfðatölu, öragglega
ekkert síður en í handboltanum,“
bætir Gunnar við.
Harður heimur
óperunnar
Ég spurði Gunnar hvort erfitt sé
að vinna sig upp í óperaheiminum.
„Ég vil helst líkja óperasöngnum við
tölvuleik. Það era viss borð í þessu,
maður byrjar á ákveðnu stigi. Sumir
era heppnir, kannski eitthvað betri
og komast hratt upp, aðrir era síður
heppnir og það tekur þá lengri tíma
að komast upp. Þegar ég var við það
að komast upp úr því borði sem ég
byrjaði á þurfti ég að hafa talsvert
fyrir því en samt sem áður gekk
þetta allt saman upp en aldrei of
hratt að mínu mati.“
Aðspurður að því hversu mikil
áhrif gagnrýni fjölmiðla hafi á óp-
erasöngvara svarar Bjarni: „Það
era fjórir aðilar sem hafi eitthvað að
segja að sýningu lokinni (þó ekki
endilega í þessari röð). I fyrsta lagi
þú sjálfur. Þú gerir þér einna best
grein fyrir því hvernig þú hefur
staðið þig. í öðru lagi era það áhorf-
endur, það er hvort þeim finnst sýn-
ingin skemmtileg, hvort þeii' hafa
notið sýningarinnar eða fundist þú
vera góður. I þriðja lagi era það þeir
sem fara með töglin og hagldirnar í
óperaheiminum, það er að segja óp-
erastjórar, umboðsmenn, hljóm-
sveitarstjórar, leikstjórar og fleiri. I
fjórða lagi era það síðan gagnrýn-
endur sem era alveg þjóðflokkur út
af fyrir sig. Enginn söngvari sem
hefur sungið lengur en í eitt ár tek-
ur þá sem einhvem heilagan sann-
leika.“
„Gagnrýni ólíkra gagmýnenda,"
heldur Gunnar áfram, „getur stund-
um verið svo ólík að þér finnst eins
og ekki sé verið að skrifa um sömu
sýningu. Til dæmis lenti ég í því síð-
ast þegar ég söng í framsýningu hér
í Berlín (á Don Giovanni) að fá bæði
verstu gagnrýni sem ég hef nokkurn
tíma fengið og sennilega þá bestu.
Þá hugsar maður: Ég get nú varla
verið kominn hingað að syngja með
því fólki sem ég var að syngja með
ef ég er svona skelfilegur eins og
önnur gagnrýnin gefúr til kynna. Og
hins vegar spyr maður sig: Af
hverju er ég þá ekki frægari en þeir
sem fengu ekki jafngóða gagnrýni ef
ég er í raun svona rosalega góður
eins og sú gagnrýni segir? Maður
veit því sjálfur að hvorug gagnrýnin
hittir í mark. Maður er einfaldlega
búinn að sætta sig við það að þessi
blaðagagnrýni er bara þannig.“ Að-
spurður að því hvort hann taki
meira mark á gagnrýni vandaðra
dagblaða en síður áreiðanlegra fjöl-
miðla svarar Bjarni: „Þetta fer ekki
eftir því hvað blaðið er gott heldur
er þetta einstaklingsbundið, háð
gagnrýnandanum sjálfum. Það eru
yfirleitt tveir til þrír gagnrýnendur
á hveiju blaði og maður er síðan
heppinn eða óheppinn eftir því hver
kemur, hvort viðkomandi gagnrýn-
andi er tiltölulega jákvæður eða
mjög neikvæður. Yfirleitt era það
hinir ungu reiðu sem skrifa mjög
mjög neikvætt um sýningar."
„Þetta era oft menn sem ætluðu
sér að verða góðir píanóleikarar og
enduðu sem blaðamenn," bætir
Bjarni við og aftur hlæja þeir félag-
arnir. „Ég fékk til dæmis slaka út-
reið fyrii' þessa uppfærslu í Berlín-
arblöðunum,“ segir Gunnar. „Þetta
er soldið þannig að því fjær sem þú
ferð frá Berlín því betri verður
gagnrýnin fyrir heildina séð,“ bætir
Bjarni við.
„Það hefur verið viðtekin venja
hér í Berlín að gagnrýnendur séu
frekar neikvæðir gagnvart þessu
húsi. Sumir vilja meina að þessar
neikvæðu bylgjur séu viðbrögð við
listræna stjórnandanum. Það er nú
bara eins og það er. Hann gerir það
sem hann telur vera gott og vinna
hans er alla vega svo vel metin að
hljómsveitin var valin besta óper-
uhljómsveit Þýskalands og henni er
boðið út um allar trissur, til dæmis
til New York í næsta mánuði. Óp-
erahúsinu hefur einnig verið boðið
út um allt, meðal annars til Japan og
Madríd, og það er stór spurning
hvort þetta myndi gerast ef ekki
væri þessi listræni stjórnandi."
Bjarni tekur undir: „Maður finnur
pínulítið fyrir andstreymi gagnvart
húsinu. Allar uppfærslur líða fyrir
það og eiga undir högg að sækja.“
„En vissulega er þetta hús ekkert
fullkomið frekar en önnur og það
era náttúralega misjöfn gæði á því
sem sett er upp og ég væri fyrsti
maðurinn til að viðurkenna að ég hef
tekið þátt í uppfærslum hér sem
mér hafa þótt miður góðar,“ segir
Gunnar.
Tyrkneskunám
Bjarna
„Við eram hins vegar báðir mjög
ánægðir með þessa uppfærslu," seg-
ir Bjarni. „Þetta er eitt það besta
sem ég hef tekið þátt í,“ bætir
Gunnar við. „Við sem tökum þátt í
þessu, söngvarar og fólk í kringum
þessa uppfærslu, eram eiginlega öll
sammála um að uppfærslan sé góð.
Viðtökur hjá áhorfendum hafa verið
mjög góðar, eins og getur best ver-
I
i
.
i
r