Morgunblaðið - 04.11.2000, Qupperneq 38
1
38 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
„ÞETTA bréf er mjög merkilegt í
ljósi textfl- og vefnaðarsögu okkar,“
segir Hulda Jósefsdóttir textflhönn-
uður sem hefur undir höndum bréf
frá Jóhannesi Kjarval til Sigrúnar
Blöndal, skólastjóra og stofnanda
Húsmæðraskólans að Hallormstað.
Bréfíð skrifar Kjarval frá Kaup-
mannahöfn árið 1919 og lýsir þar
hugmyndum sínum að stofnun vef-
stofu þar sem framleiða mætti vefn-
að eftir hugmyndum hans. Kjarval
var þá 34 ára að aldri (1885-1972).
Hulda segir að bréfíð hafi lengst
af verið í fórum fjölskyldu Sigrúnar
en lent hjá hjónunum Asgerði Búa-
dóttur veflistakonu og Birni Th.
Björnssyni listfræðingi. „Ásgerður
kom til mín afriti af bréfinu fyrir 13
eða 14 árum því hún vissi að ég var
að starfa að hönnunarmálum. Bréfið
er jafnframt á skrá hjá Kjarvals-
safni. Úr því að bréfið hefur hvergi
birst opinberlega fram að þessu þá
finnst mér vel við hæfi að koma því á
framfæri núna þegar sýningin Form
Island stendur yfir á Kjarvalsstöð-
um þar sem saga íslenskrar hönnun-
ar er rakin á mjög skilmerkilegan
hátt. Hver þáttur Kjarvals var í
þeirri þróun verður sjálfsagt aldrei
metinn til fulls en hann var mjög
mikill; Kjarval var svo fjölhæfur
listamaður og næmur fyrir umhverfi
sínu að vefnaður og klæðnaður var
honum ekki síður hugleikið en
margt annað sem bauð upp á mynd-
ræna útfærslu," segir Hulda Jósefs-
dóttir.
„Hvort hugmyndin hefur kviknað
vegna þessa bréfs er ómögulegt að
segja en Sigrún Blöndal var mennt-
uð í vefnaði á Norðurlöndum og út-
skrifaði tvo fyrstu vefnaðarkennar-
ana hériendis sem settu á stofn
vefstofur á ísafirði og í Reykjavík
og ráku þær með myndarskap um
árabil. Ekkert svarbréf frá Sigrúnu
til Kjarvals hefur fundist og ekki
Áður óbirt bréf
Kjarvals frá 1919
Jóhannes
Sveinsson Kjarval
(1885-1972)
vitað hvort það er
til. Þegar Kjarval
ritaði bréfið var
hann búsettur í
Kaupmannahöfn,
nýlega giftur og
hafði lokið námi við
listaakademíuna.
Hann hefur greini-
íHM'
ii mw .tf/ý
1
----*
qQJIí '..úÁ/fyisy, a.í -•=—i
________
X
Afk*.*+
Ljósrit af bréfi Kjarvals til Sigrúnar Blöndal.
lega verið fullur af hugmyndum og
viljað koma þeim á framfæri sem
víðast. Þau Sigrún þekktust og eðli-
legt að hann hafi leitað til hennar
þótt hún hafi sjálfsagt átt erfitt um
vik með að liðsinna honum því hún
átti í miklum erfiðleikum með að
koma skólanum á fót vegna fjár-
skorts."
Bréfið
Höfn 11. nov. 1919
Sæl og blessuð Sigrún
Eins og þú sérð er ég ekki alveg
að baki dottinn. Ég sendi þér hér
lista yfir fínska listasýningu - það
fallegasta á henni eru teppin
„Ryor“. Málverkin eru ljót og ópers-
ónuleg og ekkert fínst í þeim af
þjóðaranda eða metnaði eða alvöru
djúpum skóla -eða heppni- í með-
ferð á neinn veg - - En teppin
þeirra vekja upp þjóðræknina í mér
- vekja upp gamlan draug - altaf
þegar ég sé falleg teppi vaknai• hjá
mér löngunin til þess að stofna svo-
litla vefstólavinnustofu -eða vefara-
stofu víst rétt sagt. Meira um það
bráðum.
Ég ferðaðist í Noreg og Svíþjóð í
haust og grenslaðist um hvem krók
og kima að fornu og nýju- og sá þar
heimilisyðnað frá fírri tímum - fagr-
ann og drottnandi - teppi og ábreið-
ur og í dásamlegum litum - hvergi
sá ég íslensku ábreiðuna - eða rós-
irnar í áklæðum. - Við eigum það
sjálfstætt útaf fyrir okkur að mestu
leiti. - Ég fékk fjölda af hugmynd-
um í ábreiður - og get nú alveg skil-
ið á milli hvað er næst eðli okkar í
þeirri list og hvað ekki.
Nú vil ég spyija þig um hvort
ekki væri hægt að stofna eitthvað í
þessa átt - nokkrar konur heima
sem kunna að vefa tækju sig saman
ogynnu eitt ár til dæmis - í Reykja-
vík þarf það að vera- segjum 15(?)-
10 vefstóla - og svo yrði ég sem
nokkurs konar ráðunautw - þið réð-
uð vefnaðinum og sæuð um hann -
og ég svo um munstrin samfara ykk-
ar ráði - og eftir minni þekking og
rannsókn -. Hvað er hægt að vefa
mörg teppi á vetrí með sh'ku fyrir-
komulagi?
- Meiningin hjá mér er nefnilega
að sýna svo verk ykkar í útlöndum -
ábreiðurnar skulu vera af praktísk-
um stærðum svo að hægt sé að nota
þær á legubekki - sem sagt að láta
þær vinna sig inn í tímann sem við
lifum í og inn í þarfírnar - svo að
þær bæði skreyti og verði að full-
komnum notum -. Þessar vanalegu
stuttu ábreiður koma ekki að gagni
nú, en verða einungis móðins apaspil
- hvað vel sem þær eru gerðar
vegna formsins. -
Einnig mundi fjöldi efnaðra
Reykvíkinga kaupa þær - ef þær
yrðu eins og ég hugsa mér. Arðinn
fáið þið sjálfar og stofnunin - ég
Ný sýning opnuð aimaö kvöld í Listasafninu á Akureyri
Heimskautalöndin unaðslegu -
arfleifð Vilhjálms Stefánssonar
Akureyri. Morgunblaðið.
HEIMSKAUTALÖNDIN unaðs-
legu er heiti á sýningu sem opnuð
verður í Listasafninu á Akureyri
annað kvöld, sunnudagskvöld, kl. 20.
Sýningin lýsir með myndrænum
hætti lífi, starfi og hugsjónum Vest-
ur-íslendingsins Vilhjálms Stefáns-
sonar en er um leið kynning á um-
hverfi, menningarheimum og
málefnum norðurslóða.
Sýningin er unnin í samvinnu við
Stofnun Vilhjálms Stefánssonar,
Dartmouth College og Reykjavík -
menningarborg Evrópu árið 2000.
Samhliða henni verður efnt til ráð-
stefnu nýrra alþjóðlegra samtaka,
Rannsóknarþings norðursins, en
sýningunni lýkur 17. desember
næstkomandi.
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra flytur ávarp og opnar sýning-
una en auk hennar verður forseti Is-
lands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson,
og Evelyn Stefansson Nef, fyrrver-
andi eiginkona Vilhjálms Stefáns-
sonar, viðstödd opnunina. Hún mun
einnig flytja ávarp, sem og Hannes
Sigurðsson, forstöðumaður Lista-
safnsins á Akureyri, Þórunn Sigurð-
ardóttir, framkvæmdastjóri Reykja-
víkur - menningarborgar, Níels
Einarsson, forstöðumaður Stofnun-
ar Vilhjálms Stefánssonar, og Sig-
urður J. Sigurðsson, forseti bæjar-
stjórnar Akureyrar.
Breytti ímynd
norðurslóða
og kynntist menningu
þeirra og tileinkaði sér
lifnaðarhætti þeirra.
Síðar varð hann kunnur
sem boðberi þess að
Evrópubúar gætu, líkt
og inúítar, lifað á
heimskautaslóðum og
nýtt sér gæði þeirra, að
því tilskildu að þeir
lærðu að umgangast
náttúruöflin að hætti
heimamanna. A sínum
tíma gerði Vilhjálmur
Stefánsson meira en
nokkur annar maður til
þess að breyta ímynd
norðurslóða, frá heljar-
slóðinni ömurlegu yfir í
heimskautslöndin un-
aðslegu með merkilegu
mannlífi, menningu og
gnótt náttúrugæða.
Vilhjálmur fæddist í
Manitoba, sonm- ís-
lenskra foreldra sem
fluttust til Kanada.
Fjölskyldan settist síð-
ar að í Bandaríkjunum
þar sem Vilhjálmur bjó
til æviloka og stundaði
nám við háskólann í
Norður-Dakóta, ríkis-
háskólann í Iowa og
Harvard-háskólann en
þaðan lauk hann meist-
araprófi í mannfræði.
Nafn Vestur-íslendingsins Vil-
hjálms Stefánssonar (1879-1962) er
tengt norðurskautsslóðum og könn-
un þeirra órofa böndum. Hann er
þekktastur fyrir að hafa ferðast um
heimskautasvæði Kanada í fimm ár
óslitið (1913-1918) og stundað mann-
fræðirannsóknir og landkönnun, en
alls dvaldi hann um 12 ár á þessum
slóðum. Hann lærði tungumál inúíta
Grunnur að
Vilhjálmssafni
Sigurðsson, forstöðu-
maður Listasafnsins á
Akureyri, hafa verið
eins konar Pajero þessa
tíma. Fyrir sleðann var
beitt einum 12 hundum.
Þórunn sagði sleðann
marka upphaf sýning-
arinnar, en út frá hon-
um geta gestir farið í
sleðaslóðina og skoðað
það sem fyrir augu ber
á sýningunni. I vestur-
sal safnsins verður í
gangi hljóðupptaka
með fyrirlestri Vil-
hjálms og jafnframt
varpað upp á vegg lit-
skyggnum sem hann
notaði í fyrirlestrum
sínum.
Arfleifð Vilhjálms
færð í myndrænan
búning
Vilhjálmur Stefánsson
Sýningin er í öllum sölum Lista-
safnsins og er stuðst við ritaðar
heimildir, ljósmyndir, hljóðupptökur
og kvikmyndir sem varðveittar hafa
verið í Stefansson Collection í Dart-
mouth College og víðar. Þá má nefna
útgefin verk Vilhjálms, áður óbirt
efni -úr dagbókum hans og fyrir-
lestra sem eftir hann liggja. Þórunn
S. Þorgrímsdóttir, hönnuður sýning-
arinnar, sagði að hugmyndin með
uppsetningu sýningarinnar væri að
um eins konar mannfræðirannsókn
væri að ræða. Forláta sleði var smíð-
aður sérstaklega fyrir þessa sýningu
í Finnlandi, en sleðann sagði Hannes
ekkert - nema mjög vel gengi. - Svo
kemur mergurinn málsins. Þegar
þessi skóli og verksmiðja hefur unn-
ið eitt tvö ár, eru nokkrar af þessum
konum búnar að læra algjöríega stíl-
festuna og hæfíleikann til þess að
skreyta - innan stílsins - og til þess
að fínna upp sjálfar - fara út á heim-
ili sín og halda áfram og breiða það
út fyrírhafnarlaust.
Svara þú mér Sigrún - er hægt að
gjöra þetta - kostar það of mikið -
er hægt að fá ríkisbubba til þess að
splæsa í fyrírtækið?
Við erum lítil þjóð en við erum
sjálfstæðari í okkar tendens til lista
en aðrir Skandinavar, - nú er ég
kominn að þeirrí niðurstöðu - er
sannfæríng mín. - Nú verðum við að
sýna þjóðareinkennið og stílfestuna
óhagganlega út á við sem allra fyrst
- við verðum að
hlaupa þrjátíu rastir til þess að
standa jafnfætis öðrum nágrönnum.
- Einstöku menn sem hafa varla
gjört annað en læra - og rýna
njósna? - og grúska - í eðli íslenskra
sálna - og nágrannaþjóðanna- og
þeirra listum, eru þegar búnir að
leggja undir sig tuttugu rastirnar.
Og ef einhverjir leggja framm bara
trúna sem til þess þarf að stirkja
með þann sem móður (?) er og einn
á ferð - geta þessar þrjátíu rastir
unnist (yfírstrikað: í félagsskap)
fljótt, og við verðum talin í manna
tölu - vegna þess að þá sannast
málshátturinn sem er æðsta boðorð
hins vitandi og óafvitandi manns -
dómurínn - af ávöxtunum skuluð
þér þekkja þá. - Einn af þessum
mönnum er ég sjálfur og þessvegna
vil égfá hjálp hjá landanum.
Ég skrífa ekki meir um þetta en
bið þig vel að heilsa manni þínum -
einnig á ég að heilsa frá konu minni
kærlega.
í Guðs fríði
Jóhannes S. Kjarval
„Með þessari sýningu
er verið að færa arfleifð
Vilhjálms Stefánssonar
í myndrænan búning,
en um leið vísar sýning-
in í mun víðara sam-
hengi,“ sagði Hannes.
Snemma árs 2001
verður sýningin sett
upp í Listasafni
Reykjavíkur en þaðan
mun hún fara áfram til
Finnlands, Kanada og
Bandaríkjanna. Þegar
farandsýningunni lýkur
er ætlunin að nota efni hennar sem
grunn að sérstöku Vilhjálmssafni,
sem áformað er að komið verði upp á
Akureyri í tengslum við Stofnun Vil-
hjálms Stefánssonar.
Við opnun sýningarinnar verður
einnig opnaður vefur á Netinu um
Vilhjálm Htpfánssnn , ..
Nytjalist úr
náttúrunni
í Safnahús-
inu á Sauð-
árkróki
SÝNINGIN „Nytjalist úr nátt-
úrunni“ verður opnuð í Safna-
húsinu á Sauðárkróki í dag kl.
14. Sýningin á Sauðárkróki er
styrkt af menningarnefnd
Skagafjarðar.
Markmið sýningarinnar er að
sýna það besta af nytjalist sam-
tímans. Hlutirnir voru allir sér-
hannaðir fyrir þessa sýningu.
Lögð er áhersla á að sam-
tvinna góða hönnun, hugvit og
gott handverk. Þema sýningar-
innar er vatn.
Sýningin er framlag Hand-
verks og hönnunar til dagskrár
Reykjavíkur - menningarborg-
ar Evrópu árið 2000.
Þátttakendur í sýningunni
eru:
Anna Sigríður Hróðmars-
dóttir, Arndís Jóhannsdóttir,
Bergþóra Guðnadóttir, Brita
Kristina Berglund, Brynja
Baldursdóttir, Dýrfinna Torfa-
dóttir, Elísabet Asberg, Georg
Hollanders, Guðbjörg Kr.
Ingvarsdóttir, Guðrún Indriða-
dóttir, Helga Kristín Unnars-
dóttir, Hrönn Vilhelmsdóttir,
Jónas Bragi Jónasson, Lára
Gunnarsdóttir, Ólöf Matthías-
dóttir, Lydia Jósafatsdóttir,
Margrét Adolfsdóttir og Leo
Santos-Shaw, Margrét Guðna-
dóttir, Margrét Jónsdóttir,
Philippe Ricart, Pia Rakel
Sverrisdóttir, Ragnheiður
Guðmundsdóttir, Signý Orm-
arsdóttir, Sigríður Anna Sig-
urðardóttir, Þorbjörg Valdi-
marsdóttir.
Sýningin er opin alla daga frá
14-18 og stendur til 12. nóvem-
ber.
Sýningin er styrkt af Reykja-
vík - menningarborg Evrópu
árið 2000.