Morgunblaðið - 04.11.2000, Síða 50
5Ö LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000
MINNINGAR
MORGITNBLAÐIÐ
Sofandi
réttlæti
„Dómurinn sagði að sá dauðadœmdi
yrði sjáljur að geta sýnt fram á að sof-
andi lögmaðurinn hefði valdið sér
skaða, auk þess sem hann hefði nú átt
að kvarta við dómarann eða vekja lög-
manninn. Tveir dómarar afþremur
komust að þessari niðurstöðu, en þriðji
dómarinn skilaði sératkvæði. “
Eftir Hönnu
Katrinu Frið-
riksson
Þremur dögum fyrir
forsetakosningar í
Bandaríkjunum er
líklega að verða út-
séð um að fleiri stór-
mál verði áberandi í kosninga-
baráttunni, eins einkennileg og
þögnin um sum þeirra nú er.
Frambjóðendurnir tveir sem bít-
ast um upphefðina og for-
setaembættið hafa auðvitað fyrir
löngu talað sig hása, en ræðurn-
ar þeirra hafa ýmist verið illþol-
andi upptalningar á staðreynd-
um (Gore) eða innihaldslaust
UIBUADE orðagjálfur
* ™nUI»r ætlað eyrum
þeirra kjós-
enda sem
nenna ekki að
hlusta á stað-
reyndir (Bush). Það mætti ætla
að allir hefðu fengið eitthvað við
sitt hæfi, en stemmningin virðist
þó fremur vera sú að kjósendur
neyðist til þess að kjósa annan
kostinn af tveimur vondum.
Frambjóðendurnir hafa ekki
rifist af neinu viti um þau mál
sem ættu að skilja þá hvað
greinilegast að, eins og byssu-
eign og fóstureyðingar. Það
kemur þó enn meira á óvart að
dómsmál eru vart nefnd einu
orði, þótt ljóst þyki að næsti for-
seti muni hafa á valdi sínu að
skipa nýja dómara í hæstarétt
landsins. Verði næsti forseti
George W. Bush er ástæða til að
hafa áhyggjur af þeim tilnefn-
ingum. í þessu landi, þar sem
viðkvæðið er einatt að hvergi
séu mannréttindi meiri, er erfítt
að skilja að meirihluti þjóðarinn-
ar skuli vera fylgjandi dauðar-
efsingu. Sú villimennska er
hvergi eins augljós og í Texas,
þar sem Bush er hæstráðandi,
því þar hafa menn ekki einu
sinni fyrir því að tryggja sak-
bomingum frambærilega verj-
endur. Menn, sem sjá fram á
dauðadóm, sitja uppi með lög-
menn sem eru undir áhrifum
áfengis eða fíkniefna við réttar-
höldin eða láta eiga sig að kanna
atriði sem gætu leitt til sýknu.
Árið 1984 var maður nokkur
dæmdur til dauða í Texas-ríki
fyrir að drepa annan með hnífi.
Hann fékk verjanda, sem dottaði
af og til í réttarsalnum, á meðan
saksóknari yfirheyrði vitni og
lýsti sönnunargögnum gegn sak-
bomingnum. A síðasta ári var
dómurinn yfir manninum felldur
úr gildi vegna þessa, enda sagði
dómarinn sem fór með málið að
sofandi verjandi jafngilti engum
verjanda. George W. Bush, sem
hefur legið undir ámæli vegna
allra dauðadómanna í ríkinu og
möguleikans á að saklausir
menn lentu á dauðadeild, sagði
sigri hrósandi að þessi úrskurð-
ur sýndi að kerfið í Texas virk-
aði. Kerfið virkaði nú ekki betur
en svo að þessum úrskurði var
vísað til áfrýjunardómstóls, sem
komst að þeirri niðurstöðu í síð-
ustu viku að engin ástæða væri
til að taka málið upp að nýju
þótt verjandinn hefði sofið, enda
væri ekki hægt að sýna fram á
að hann hefði sofið á mikilvæg-
ustu augnablikum málaferlanna.
Þessi niðurstaða gerir augljós-
lega ekki ráð fyrir að hvert ein-
asta augnablik málaferla, þar
sem líf sakbornings er í voða,
teljist mikilvægt. Bush hefur
ekki séð ástæðu til að tjá sig aft-
ur um virkni kerfisins. Dómur-
inn sagði að sá dauðadæmdi yrði
sjálfur að geta sýnt fram á að
sofandi lögmaðurinn hefði valdið
sér skaða, auk þess sem hann
hefði nú átt að kvarta við dóm-
arann eða vekja lögmanninn.
Tveir dómarar af þremur kom-
ust að þessari niðurstöðu, en
þriðji dómarinn skilaði sér-
atkvæði þar sem hann sagði að
maðurinn ætti að sjálfsögðu
heimtingu á að réttað yrði í máli
hans á ný og það væri áfall að
nokkur maður gæti verið dæmd-
ur til dauða við þessar aðstæður.
Þess má svo geta að lögmað-
urinn syfjaði, sem nú er sofnað-
ur svefninum langa, svaf í gegn-
um réttarhöld annars
skjólstæðings síns. Sá hefur
þegar verið tekinn af lífi í kerf-
inu hans Bush, sem virkar svo
vel. En hvaða máli skiptir rétt-
arfarið í Texas um hugsanlegt
val Bush á dómurum í Hæsta-
rétt Bandaríkjanna? Heilmiklu
máli. Annar dómaranna tveggja,
sem töldu dúra lögmannsins
engu skipta, er kona að nafni
Edith Jones. Hún var ein þeirra
sem til greina komu sem hæsta-
réttardómari þegar Bush eldri,
faðir George W., skipaði Clar-
ence Thomas í æðsta dómstól
landsins árið 1991. Og fyrst hún
var á lista Bush eldri yfir upp-
áhaldsdómara er hún svo sann-
arlega á lista Bush yngri.
Edith þessi hefur vakið at-
hygli fyrir fleiri dóma sína og
eitt dæmi hefur verið rifjað upp.
Árið 1988 leitaði kona réttar
síns fyrir dómstólum af því að
hún hafði sætt ítrekaðri kyn-
ferðislegri áreitni á vinnustað. í
því máli leit dómarinn sérstak-
lega til þess að sumir starfs-
manna vinnustaðarins hefðu ver-
ið verkamenn, ekki lögmenn eða
aðrir hvítflibbar. Það væri því
ljóst að hugarfar þeirra væri
öðruvísi. Lögmaður konunnar
nefndi víst einnig að hún hefði
borið fram kvörtun þegar einn
samstarfsmanna hennar kleip
hana í brjóstið, en svar Edith
Jones var á þá leið að maðurinn
hefði nú beðist afsökunar. Kon-
an vann þetta mál með fulltingi
hinna dómaranna tveggja, en
Edith Jones vildi sýkna vinnufé-
lagana.
Það er ákaflega undarlegt, svo
ekki sé meira sagt, að Gore og
fylgismenn hans skuli ekki hafa
lagt meiri áherslu á að sýna
kjósendum fram á hvaða afleið-
ingar það getur haft ef Bush
kemst í þá aðstöðu að skipa
dómara í hæstarétt. Það er auð-
vitað í stíl við annað í kosninga-
baráttu varaforsetans, honum
virðist ekkert verða að vopni.
JÓHANN
VALDÓRSSON
+ Jóhann Valdórs-
son, frá Þrándar-
stöðum í Eiðaþinghá
fæddist 20. febrúar
1920 á Hrúteyri við
Reyðarfjörð. Hann
lést 25. október sl. á
heimili sínu, Lagar-
ási 17, Egilsstöðum.
Jóhann var sonur
hjónanna Valdórs
Bóassonar, f. 24.6.
1885,d. 22.4. 1927,
og Herborgar Jónas-
dóttur, f. 23.8. 1886,
d. 22.8. 1964, þau
voru bræðrabörn.
Jóhann var yngstur í hópi ellefú al-
systkina sem voru: Jónas, f. 1.2.
1908, d. 19.3. 1977, Sigurbjörg, f.
27.12. 1908, d. 1909, Guðrún
Bjarney, 24.12. 1909, d. 16.4.1961,
Bóas, f. 16.4. 1911, d. 23.10. 1983,
Eðvald, f. 10.8. 1912, d. 12.8. 1942,
Benedikt, f. 21.8. 1913, d. 1913,
Guðlaug Jóhanna, f. 15.10.1914, d.
1920, Óskar, f. 10.10.1915, d. 5.12.
1981, Jóhann Björgvin, f. 6.1.1917,
d. 14.2. 1991 og Ragnheiður f.
19.12. 1918. Hann átti eina hálf-
systur samfeðra, Valdóru, f. 30.9.
1927, d. 1929, sem móðir hans tók
að sér. Þá ólu móðir hans og Þor-
leifur upp fimm fóstursyni sem
voru Jón Amfinnsson, f. 27.3.
1915, d. 24.12. 1985, Guðjón Jóns-
son, f. 7.5. 1925, Jón Björgvin Ól-
afsson, f. 9.12. 1926, d. í október
1993, Ingólfur Njálsson, f. 1.5.
1928, og Magnús Hörður Magnús-
son, f. 27.7. 1935. Jóhann kvæntist
22.10. 1942 Huldu Stefánsdóttur
frá Stakkahlið I Loðmundarfirði, f.
26.11. 1920, d. 26.4. 1989. Foreldr-
ar hennar voru hjónin Stefán
Baldvinsson, f. 9.1. 1883,_ d. 10.8.
1964, frá Stakkahlíð, og Ólafía Ól-
afsdóttir, f. 12.11. 1885, d. 3.1.
1971, frá Króki á Rauðasandi í
Vestur-Barðastrandarsýslu. Jó-
hann og Hulda eignuðust ellefu
böm. Þau em: 1) Eðvald, f. 25.4.
1943, býr á Randabergi, kvæntur
Vilborgu Vilhjálmsdóttur, f. 20.1.
1942, þau eiga 6 böm; a) Bóas Hall-
björn, f. 1.11. 1963 býr með Sonju
Erlingsdóttur, þau eiga 2 dætur,
Hólmfríði og Birgittu. b) Hulda Jó-
hanna, f. 2.11. 1964 býr með Rún-
ari Sigurðssyni, þau eiga 2 syni,
Hafþór Atla og Araar Jóel. d) Mar-
grét Lilja, f. 18.11. 1966, býr með
Terje Moldaunet, þau eiga 1 dótt-
ur, Camillu. e) Herborg, f. 18.11.
1969, gift Sævari Sigurgeirssyni,
þau eiga einn son, Eðvald, f.)
Hjáimar Þór, f. 1.8. 1972, hann á
eina dóttur, Amalíu Ósk. Móðir
hennar er Kristjana Gestsdóttir, g)
Selja Hvönn, f. 15.7. 1969, býr með
Björgvini Óskarssyni, þau eiga
eina dóttur, Vilborgu. Sonur Eð-
Elsku pabbi minn.
Þegar ég frétti andlát þitt var eins
og blóðið frysi í æðum mér, en svo
reyndi ég að hugsa hvað þér var fyrir
bestu. Oft varstu búinn að tala um að
þú ættir ekki langt eftir en ég stríddi
þér á því að það væri ekkert að marka
það sem þú segðir því þú myndir
allavega lifa í 10 ár í viðbót. En í þetta
skiptið hafði sá sem öllu ræður betur í
viðureigninni.
Upp í huga minn koma minningar
frá okkar samverustundum gegnum
árin. Fyrsta minningin sem kemur
upp er þegar við vorum að flytja frá
Stakkahlíð upp í Þrándarstaði. Man
ég alltaf eftir því hvað mér fannst
leiðin löng frá því að við sáum húsið
hennar ömmu og þar til við komum
Ioksins alla leið. Þá eins og ætíð síðar
á lífsleiðinni varstu að reyna að sann-
færa mig um að betra væri að vera
þolinmóð og bíða róleg heldur en vera
alltaf að spyrja.
Ein besta minningin er þegar ég
byrjaði að ganga í skóla niður í Mým-
es, þá eldaðir þú hafragraut fyrir mig
áður en ég fór af stað á morgnana.
Var ég mjög stolt af þvi að við laus-
lega könnun í skólanum um hvað feð-
ur okkar skólasystkinana gerðu í hús-
verkum stóðstu þú þig langbest. Mér
fannst þið mamma líka alltaf lang-
valds; h) Ámi f. 17.8.
1963, kvæntur Inger
Erlingsdóttur, þau
eiga 2 börn, Vilmu Yr
og ísar Mar. Móðir Ár-
na er Ragnhildur
Ámadóttir.
2) Ólafía Herborg, f.
9.3. 1945, býr í Fella-
bæ, gift Jóni Þórarins-
syni, f. 30.6. 1943, þau
eiga 3 dætur, a) Guð-
rún Bjarney, f. 8.3.
1969, býr með Brodda
Ægi Svavarssyni, þau
eiga einn son, Mikael
Bergvin. b) Eygló
Huld, f. 4.8. 1974, c) Sandra Mjöll,
f. 30.10.1978.
3) Stefán Hlíðar, f. 19.8. 1949,
býr á Þrándarstöðum, kvæntur
Guðrúnu Benediktsdóttur, f. 6.9.
1951, þau eiga 4 böm, a) Benedikt
Hlíðar, f. 22.4.1973, b) Jóhann Erl-
ing, f. 14.6.1975, kvæntur Kristínu
M. Karlsdóttur, þau eiga einn son,
Jón Gunnar, c) Sigríður Hulda f.
25.6. 1980, unnusti hennar er Ing-
ólfur Friðriksson, d) Þorgerður, f.
6.5.1986.
4) Þorleifur, f. 24.2. 1951, hann
lést af slysfomm 22.4. 1979, bjó
með Auði Garðarsdóttur, f. 2.6.
1953, þau eignuðust einn son,
Garðar Þránd, kvæntan Sólrúnu
Sigurlaugsdóttur, þau eiga 3 dæt-
ur, Auði, Thelmu og Lindu.
5) Ásdi's, f. 8.12. 1952, býr á Eg-
ilsstöðum, gift Ragnari Þorsteins-
syni, f. 13.7. 1951, þau eiga Qögur
böm, a) Lovísa Herborg, f. 30.5.
1971, býr með Vigni Siggeirssyni,
þau eiga tvo syni, Þorberg og
Ragnar Þorra. b) Þorsteinn Bald-
vin, f. 28.5. 1975, býr með Merete
Myrheim, þau eiga einn son, Patr-
ik Þránd. c) Þorleifur Bóas, f. 31.5.
1988, d) Þorvaldur Björgvin, f. 3.7.
1990.
6) Valdór, f. 16.3. 1954, býr í
Reykjavík, á 3 böm með Halldóru
Sverrisdóttur, a) Guðbjörg Hulda,
f. 10.9. 1972, b) Jóhann Kristján, f.
22.12. 1973, býr með Hrafnhildi
Jónsdóttur, hann á tvo syni, Daníel
Orra og fsak Aron. Móðir ísaks Ar-
ons er Erna Guðmundsdóttir. c)
Ásdís Erla, f. 27.11. 1976, býr með
Svani Má Snorrasyni, þau eiga
eina dóttur, Elísu Rún. d) Gfsli
Freyr, f. 10.6. 1980. Móðir Gi'sla er
Kristín Gi'sladóttir.
7) Jóhann Viðar, f. 31.3. 1955,
býr í Keflavík, kvæntur Ósk
Traustadóttur, f. 4.10. 1955, þau
eiga 3 böm, a) Trausti Þór, f. 3.5.
1974, b) Ævar Smári, f. 29.12.
1977, býr með Lindu P. Sigurðar-
dóttur, c) Bóel Björk, f. 29.7.1985.
8) Vilhjálmur Karl, f. 16.9. 1957,
býr á Þrepi, kvæntur Svanfríði
Drífu Óladóttur, f. 7.10. 1965, þau
myndarlegustu hjónin í sveitinni þótt
víðar væri leitað. Eg man hvað mér
fannst þú flottur um hárið þegar þú
varst búinn að gera bylgjur í það með
greiðunni. Þegar bfll kom á heimilið
fórum við í bíltúr um sveitir í ná-
grenninu og varst þú alltaf að reyna
að láta okkur muna bæjamöfii og
ömefni. Bý ég að þessum fróðleik svo
lengi sem ég lifi. Skemmtilegast
fannst mér þegar þú fórst með kvæði,
því þau kunnir þú utan að, bæði stutt
og löng. Best man ég eftir kvæðinu
um Helgu Jarlsdóttur og verður mér
alltaf hugsað til þín þegar ég á leið um
þær slóðir.
En sumt skammast ég mín fyrir,
eins og til dæmis þegar uppáhalds-
hundurinn þinn, hann Plató, og hvolp-
ur, sem við systkinin vorum nýbúin að
eignast, voru teknir við að eltast við
kindur og höfðu drepið eina.
Þá var ákveðið að lóga öðrum og
leyfðir þú okkur að velja hvor fengi að
lifa og við völdum hvolpinn.
Hefur mér stundum verið hugsað
til þess hvað það hefur verið erfitt fyr-
ir þig að missa þinn besta hund.
En svona varst þú, hugsaðir fyrst
og fremst um okkar langanir en ekki
þínar. Alltaf reyndir þú að uppfylla
okkar óskir ef það var mögulegt, var
þá ekki alltaf spáð í hvort efni væm á
eiga 3 dætur, a) Elísabet, f. 23.5.
1988. b) Linda María, f. 10.5.1991,
c), f. 24.5.1997.
9) Kári, f. 13.8.1959, lést af slys-
föram 9.7.1961.
10) Kári Rúnar, f. 4.4.1961, býr í
Reykjavík, hann á 3 böra, a) Daníel
Már, f. 26.3. 1985, b) Rakel Ýr, f.
13.12.1987, c) Axel Freyr, f. 25.12.
1989. Móðir þeirra er Anna Gyða
Reynisdóttir.
11) Ingibjörg Ósk, f. 17.5. 1965,
býr í Reykjavík, á einn son, Andra
Hafstein, f. 10.2. 1991. Faðir hans
er Heimir Hafsteinn Eðvarðsson.
Afkomendur Jóhanns eru nú 65,
33 bamaböm og 21 bamabaraa-
bam, þar af era 63 á lífi. Jóhann
ólst upp á Hrúteyri til sex ára ald-
urs. Hann flutti þá með móður
sinni að Sómastaðagerði við Reyð-
arfjörð ásamt Þorleifi Þórðarsyni
frá Neðra-Hóli í Staðarsveit, f.
17.4. 1891, d. 29.6. 1951, Þorleifur
kom sem ráðsmaður að Hrúteyri
1925. Að Sómastaðagerði bjuggu
þau til ársins 1931 þá fluttu þau að
Dalhúsum í Eyvindarárdal. Sfðan
fluttu þau að Þrándarstöðum árið
1938. Þar hóf Jóhann búskap í'
samvinnu við móður sína og Þor-
leif fóstra sinn. Jóhann og Hulda
fluttu að Stakkahlíð vorið 1943 þar
hófu þau búskap í samvinnu við
foreldra Huldu og bróður hennar,
Sigurð Stefánsson, fluttu aftur að
Þrándarstöðum 1948 þar sem þau
tóku að mestu leyti við búska-
pnum, móðir Jóhanns og Þorleifur
fóstri hans voru þar til heimilis til
dauðadags. Jóhann stundaði hefð-
bundinn búskap en starfaði jafn-
framt mikið utan heimilisins, bæði
til sjós og lands, einkum harðinda-
árin í kringum 1950. Hann var
jafnan meðal bestu fláningsmanna
meðan hann var upp á sitt besta,
var fljótur að tileinka sér nýjungar
og óhræddur við að takast á við ný
verkefni. Kominn hátt á fimmtugs-
aldur settist Jóhann á skólabekk
mcð sonum súium og félögum
þeirra og lauk sveinsprófi múrara
en hann hafði starfað við múrverk
í nokkur ár. Árið 1972 brunnu
íbúðarhúsið og útihúsin á Þránd-
arstöðum til kaldra kola. Fjöl-
skyldan flutti þá til SeyðisQarðar
þar sem þau festu kaup á íbúðar-
húsinu Elverhoj. Þar hafði Jóhann
næga atvinnu enda fjölhæfur og
afkastamikill starfskraftur og eft-
irsóttur til allrar vinnu. Síðari ár
vann hann við sjómennsku og fisk-
vinnslu. Þau hjónin fluttu síðan
aftur að Þrándarstöðum og
byggðu þar nýtt íbúðarhús 1980.
Jóhann hannaði hús sitt að mestu
sjálfúr og fór þar nýjar leiðir í
hönnun og byggingaraðferð, sem
reynist vel enn þann dag í dag.
Hulda lést 26.4.1989. Síðustu ár-
in liefur Jóhann verið í sambúð
með Ólöfú Ólafsdóttur frá Syðri-
Vík í Vopnafirði.
Útför Jóhanns fer fram frá Eg-
ilsstaðakirkju í dag kl. 14, jarðsett
verður frá Eiðum.
því eða hvort eitthvað annað væri ef
til vill nauðsynlegra, heldur reynt að
verða við óskum okkar. Þegar ég var
búin að vera ráðsmaður fyrir þig tvo
vetur fannst þér að þú þyrftir að
launa mér það á eftdrminnilegan hátt.
Var þá gott að eiga góða frændur því
að Stuðlaættin stendur á bak við
frændur sina ef þörf krefúr og reynd-
ist það í þessu tiífelli.
Snæfellið frá Reyðarfirði var á leið
í slipp til Noregs og var það sjálfsagt
mál að taka mig með.
Þama átti ég ógleymanlegar
stundir með frændum og frænkum í
fallegu umhverfi meðan skipið var
tekið allt í gegn. Þá uppgötvaði ég
hvað þetta frændfólk mitt stóð þétt
saman um að vemda og leiðbeina
yngra fólkinu hvort sem það var mót-
tækilegt fyrir því eða ekki.
Þegar ég var eitt sinn ráðskona í
mötuneyti þar sem störfuðu eingöngu
karlmenn var á lokakvöldinu lagt hart
að mér að bjóða nú sem flestum vin-
konum mínum. En ég ákvað að stríða
þeim og bauð honum pabba mínum.
Hef ég oftar en einu sinni fengið hrós
fyrir þá ákvörðun, því fleiri en einn af
þessum fyrrverandi samstarfsmönn-
um mínum hafa sagt mér að þetta hafi
verið það eftirminnilegasta partí sem
þeirhafiveriðí.