Morgunblaðið - 04.11.2000, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Heilsa
Rannsókn á erfðaþátt-
um alzheimer-sjúk-
dóms, segja Jón
Snædal, Pálmi V. Jóns-
son og Sigurbjörn
Björnsson, er gríðar-
lega mikilvæg.
vara málsins og þykir miður að
þetta atvik hafi komið upp. í úr-
skurði tölvunefndar er þetta tíund-
að nákvæmlega en hins vegar ekki
vikið að því í úrskurðarorðum enda
hefur það komið fram í viðtali við
formann tölvunefndar í fjölmiðlum
nú í vikunni „að þau vandamál sem
upp hafa komið í rannsókninni hafa
verið leyst jafnóðum."
Úrskurður tölvunefndar
Úrskurðarorð tölvunefndar voru
þau að strika ætti út úr samþykkis-
yfírlýsingu um samanburðarhóp
setningu sem fól í sér að rannsókn-
in hefði fengið leyfi tölvu- og vís-
indasiðanefnda. Fyrir mánuði voru
okkur send drög að nýju leyfi en
eldra leyfi er enn í gildi fram að
gildistöku nýs leyfis. Við höfum
sent fáeinar athugasemdir og nýtt
leyfi er í lokaumfjöllun tölvunefnd-
ar. Drögin að hinu nýja leyfi orða
ýmis atriði skýrar en núgildandi
leyfi og eru í samræmi við þær
vinnuvenjur sem við tömdum okkur
innan ramma upphaflegs leyfis.
Kröfur um persónuvernd í vís-
indarannsóknum hafa verið að taka
breytingum síðustu ár og rannsak-
endur jafnt sem eftirlitsaðilar hafa
verið að aðlaga sig þeim breyting-
um. Kjarni þessa máls er sá að
samfélagið hefur sett skilyrði fyrir
rannsóknum á einstaklingum sem
eru strangari en áður var. Enn
fremur er Ijóst að eftirlit með rann-
sóknum er virkt þannig að álitamál
eru skoðuð og metin og þegar út af
bregður er brugðist strax við.
Fjölmiðlar hafa tekið á okkar rann-
sókn enda eðlilegt því almenningur
þarf að vera upplýstur um hvernig
persónuvernd er háttað.
Þrátt fyrir framkomnar athuga-
semdir er mikilvægt að hafa í huga
að rannsókn á erfðaþáttum alz-
heimer-sjúkdóms er gríðarlega
mikilvæg. Rannsóknin hefur geng-
ið vel og hefur fylgt í öllum öðrum
atriðum skilyrðum tölvu- og vís-
indasiðanefnda og er rétt að hinir
fjölmörgu þátttakendur í rann-
sókninni viti það.
Höfundar eru ábyrgðarlæknar
erfðarannsóknar á alzheimer-
sjúkdómi og starfa á öldrunarlækn-
ingadeiid Landspftala - háskóla-
sjúkrahúss.
Mikið má spara
í heilbrigðis-
kerfinu
ÞAÐ er sótt að heil-
brigðiskerfinu úr öllum
áttum. Jafnt frá sjúkl-
ingum, hagkerfi og
stjómsýslu.
Allir krefjast betri
og áhrifaríkari með-
höndlunar sjúklinga og
minni kostnaðar í heil-
brigðiskerfinu.
Sjúklingar eiga að
vera sem styst á
sjúkrahúsunum og
eldri borgarar eiga að
búa sem Iengst á eigin
heimilum. Þetta gerir
kröfu um að fæturnir
virld vel.
I Danmörku er góð-
ur árangur í heilbrigðiskerfinu af
störfum fótaaðgerðafræðinga á
sjúkrahúsum, á hjúkrunarheimilum
og dvalarheimilum aldraðra ásamt
Fótaaðgerðir
Ég vona að íslenskt
þjóðfélag beri gæfu til
að meta að verðleikum,
segír Bent R. Nielsen,
þá meðferðarmöguleika
sem fótaaðgerðafræðin
býður upp á.
einkastofum. Fótaaðgerðafræðing-
amir meðhöndla og viðhalda góðu
ástandi fóta aldraðra svo að þeir eigi
auðvelt með að „halda sér gang-
andi“.
Það hefur verið ánægjulegt fyrir
mig að fylgjast með því undanfarin
10 ár sem Félag íslenskra fótaað-
gerðafræðinga ( FÍF), heilbrigðis-
ráðuneytið og félags-
málaráðuneytið hafa
gert til að mennta fóta-
aðgerðafræðinga á Is-
landi og gera þá eins
færa í sínu fagi og unnt
er. Heilbrigðisráðu-
neytið hefur staðið fyr-
ir tveimur löggilding-
amámskeiðum og FIF
hefur verið mjög virkt í
að halda endurmennt-
unamámskeið með
leiðbeinendum frá
Danmörku og Hol-
landi.
Fótaaðgerðafræð-
ingamir hafa sýnt mik-
inn áhuga á að kynna
sér nýjungar í sínu fagi og nýja
tækni, þótt skilyrði til að koma nám-
skeiðunum á hafi oft verið erfið. Það
er glæsilegt. Það er einnig virðing-
arvert hvernig fótaaðgerðafræðing-
ar leggja sitt af mörkum með þátt-
töku við undirbúning maraþon-
hlaupa og fótverndardaga.
En stétt getur ekki þrifist án
góðrar og áhrifaríkrar grannmennt-
unar og skóla sem sameinar fróðleik
og þátttöku í þeirri þróun sem heil-
brigðiskerfið er í. Skóli á að gefa þá
viðbótarkjölfestu sem nauðsynleg er
öllum heilbrigðisstéttum í nútíma-
þjóðfélagi.
Ég vona að íslenskt þjóðfélag beri
gæfu til að meta að verðleikum þá
meðferðarmöguleika sem fótaað-
gerðafræðin býður upp á.
Hveijir aðrir eiga að annast fætur
gigtveikra, fætur sykursjúkra, fóta-
sár, inngrónar táneglur, krepptar og
skakkar tær og líkþom og með-
höndla aðra kvilla sem geta komið í
veg fyrir gott göngulag?
Höfundur er fótaaðgerðafræðingur
ogfv. formaður Landssamtaka
danskra fótaaðgerðafræðinga.
Bent
Nielsen
LAUGAJRDAGUR 4. NOVEMBER 2000 63
; v;
W"", -
Heimsljósin í Hljómskálagarðinum
laugardag kl. 18 og sunnudag kl. 19:30
Krafíar Ijóssins í Goðaborgum
laugardag frá 19 -22
Vetrarævintýrið WHAT við Norræna húsið
sunnudag kl. 18 og mánudag kl. 19
Ljós úr skugga á framhlið Háskóla íslands
sunnudag kl. 18:45 og 20:45
Ég veiddi vampíru í Svíþjóð. Við höfnina
laugardag og sunnudag kl. 19 og 21
ElduAfatri í porti Hafnarhússins
laugardag og sunnudag kl. 21 - 24
Club Lux á Kaffi Thomsen
laugardag frá 23
Til og rneð 6.11.
Ljósafiug yfir borginni
bókanir í s. 595 2025 frá 14 - 16
Ljósahótel á Hverfisgötu 20 frá 11-23
Bókanir utan opnunartíma í s. 860 4333
Vatn við Norræna húsið
Næturlíf á Lækjartorgi
Annarleg birta í Vatnsmýrinni
Skýjum ofar á Hallgrímskirkju
Án sólarinnar á Vínbarnum, Súfistanum,
Vegamótum, Prikinu og Ara í Ögri
Stjörnuverið í Norræna húsinu
Valon Voimat í Ráðhúskaffinu
Ljósameðferð á kaffistofu Norræna hússins
NDRDIC LICHT
Útilistahátíð í Reykjavík dagana 3.- 6. nóvember.