Morgunblaðið - 04.11.2000, Síða 65
I
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000 65 f
UMRÆÐAN
Hvenær er
íslenskt
leikhús íslenskt?
ÞAÐ ER skoðun mín að það leik-
hús sé lítils virði sem tekur ekki mið
af þeim venileika sem stendur því
næst. Hafi íslenskt leikhús ekki slík
veruleikatengsl þá skiptir litlu þótt
talað sé á íslensku og leikaramir,
leikstjórinn og allir tæknimenn séu
íslenskir og þar fyrir utan bráðfærir
í sínu fagi. Sé það ekki spegill eða
spéspegill mannlífs, lífsmáta og
menningar þess samfélags sem það
sprettur úr er það ekki annað en
móðursýki sem fæðist í vinnustofu
eins og dadaistarnir orðuðu það svo
snilldarlega.
Uppskriftin að leikári er einhvern
veginn svona: íslensk leikrit, áhuga-
verð erlend verk, klassíkin og svo
eitthvert léttmeti eins og söngleikir
og farsar. Þetta „bland í poka“ verk-
efnaval telja leikhúsin annars vegar
Leikhús
Þegar list er ekki lengur
hættuleg hefur enginn
áhuga á henni, segir
Benóný Ægisson. Að
því ætti leikhúsfólk að
huga þegar það spáír í
aðsóknartölur
framtíðarinnar.
vera skyldu sína til að þjóna mis-
munandi smekk áhorfenda en hins
vegar ráðast af markaðslegri þörf.
En ætti það ekki að vera frumskylda
íslenskra leikhúsa við íslenska
áhorfendur að sýna þeim íslensk
verk? Eru slík verk ekki markaðs-
væn? Auðvitað er það svo og leik-
húsin þurfa ekki að leggja af „bland í
poka“ áherslurnar sem líklegt er að
sé það eina sem dugar í harðnandi
samkeppni leikhúsanna við aðra af-
þreyingu. Einungis skiptingin milli
innlendra og erlendra verka þarf að
breytast.
Til að skoða ástandið gerði ég
fjarska óvísindalega könnun. Eg
taldi leikritin sem auglýst voru í
Morgunblaðinu föstudaginn 27.
október sl. og reyndust þau vera 29.
Af þeim voru 14 íslensk eða tæplega
helmingur. Ég get sætt mig við það
hlutfall, já meira en það, ég tel að
helmingur sé ásættanlegur. En sé
betur að gáð þá kemur í ljós að ekki
er allt sem sýnist. íslensku verkin
eru flest minni að umfangi en þau
erlendu, t.d. eru fjögur þeirra ein-
leikir. Þá eru sex þessara verka hluti
af leiklistarhátíðinni Á mörkunum
sem haldin er af Sjálfstæðu leikhús-
unum með tilstyrk menningarborg-
arinnar. Við erum því ekki að miða
við neitt meðalár og séu þessi verk
tekin frá fellur hlutfall íslenskra
leikrita niður í þriðjung. Við getum
enn boðið niður því hjá stóru leik-
húsunum, sem njóta hæstra opin-
berra styrkja og ættu því að hafa
mestum skyldum að gegna við ís-
lenska frumsköpun, nær hlutfall
frumsýndra íslenskra verka ekki
fimmtungi í ár. Athyglisvert er að
það er svipað hlutfall og heildarhlut-
fall innlends dagskrárefnis í íslensku
Viltu grennast fyrir jólin?
www.grennri.is
s. 699 7663
MONSOON
M A K E U P
lifandi litir
sjónvarpsstöðvunum og liefur það
aldrei þótt til fyrirmyndar.
En þrátt fyrir allt er áhugi á ís-
lenskum leikverkum. Þess sér stað í
forgangsröð fjárveitinga og árlega
fer einhver menningarlega sinnaður
frétta- eða blaðamaður að rekast í
því hvers vegna ekki eru sett upp
fleiri íslensk verk. Ástæðurnar eru
tvær segir leikhús-
fólkið. Önnur er sú að
það berast fá góð verk
til leikhúsanna. Takið
eftir orðavalinu, það
berast fá góð verk;
greinlega lítur leik-
húsfólk ekki á það
sem hlutverk sitt að
fara út á akurinn og
leita þeirra, hvað þá
að fóstra einhverja
frjóanga þar til þeir
hafa náð einhverjum
þroska. Þó held ég að
það sé almennt viður-
kennt meðal leikhúss-
fólks að forsenda þess
að geta skrifað gott
leikrit sé þekking á leikhúsvinnunni.
Þeirrar þekkingar verður hvergi afl-
að nema í leikhúsinu og með sam-
Benóný
Ægisson
stilltu átaki leikskálda
og leikhússfólks mætti
gera bragarbót. Hin
ástæðan fyrir fáum upp-
færslum á íslenskum
verkum er sögð sú að
það sé dýrara að setja
þau upp. Hvað er þá
dýrara? íslenskt verk
hefur sama æfingatíma
og erlent, leikarar, leik-
stjóri og tæknimenn eru
á sömu launum og
timbrið í leikmyndinni
kostar það sama. Það
eina sem er dýrara eru
ritlaun leikskáldsins og
þau vega ekki þungt í
heildarkostnaði upp-
setningar eða rekstrarkostnaði leik-
húss. Á móti kemur að íslensk verk
eiga sér yfirleitt lengri líftíma en er-
lend og fá hærri styrki úr opinberum
sjóðum. Er hér verið að spara eyrinn
og kasta krónunni?
Vissulega er það áhætta að setja
upp íslensk verk. Það er miklu
hættulegra en að setja upp verk sem
aðrar þjóðir hafa fágað, prufukeyrt
og sammælst um að séu góð. En þarf
íslenskt leikhús ekki að taka þá
áhættu til að geta talist íslenskt? Má
list þess ekki vera dálítið hættuleg?
Rithöfundm’inn Anthony Burgess
sagði einhverju sinni um listina að
fólk hrifist af henni vegna hættunn-
ar. Þegar list er ekki lengur hættu-
leg hefur enginn áhuga á henni. Að
því ætti leikhúsfólk að huga þegar
það spáir í aðsóknartölur framtíðar-
innar.
Höfundur er / stjóm Leikskálda-
félags íslands.
Aventis
Orudis® hlaup
■ góð lausn við verkjum
Áhrifaríkt
við verkjum eftir bráða áverka eða áreynslukvilla
Öruggt1
lág tíðni aukaverkana
Góður kostur
fyrir íþróttafólk og einstaklinga með staðbundna
verki og bólgur í stoðkerfi
Innihaidslýsing:
Virka efnið í Orudis® hlaupi er ketóprófen 25 mg/g. Hlaupið
inniheldur einnig ýmis hjálparefni.
Hvaða verkun hefur lyfið?
Það er bólgueyðandi og verkjastillandi.
Lyfið er meðal annars notað við:
• Tognunum og öðrum áverkum.
• Staðbundnum verkjum og bólgum í stoðkerfi.
• Áreynslukvillum eins og tennisolnboga, sinasllðursbólgu og
beinhimnubólgu.
Lyfið á ekki að nota ef viðkomandi:
• Er með ofnæmi fyrir asetýlsalisýlsýru eða öðrum bólgu-
eyðandi lyfjum.
• Er með sýkingar, exem, bólur eða opin sár á því húðsvæði
sem á að meðhöndla.
• Er barnshafandi eða með bam á brjósti.
Hvaða aukaverkanir getur lyfið haft?
Staðbundin einkenni á húð eins og roða og kláða.
Hvernig á að nota lyfið?
Orudis® hlaupinu er nuddað inn í húðina í nokkrar mínútur.
Lyfið má nota 2-3 sinnum á dag en þó ekki meira en 15 g á
dag (15 g samsvara um 28 cm).
Varúðarreglur:
• Lyfið má ekki komast f snertingu við slimhimnur eða augu.
• Varast skal sólaiijós og Ijósabekki meðan á meðferð stendur.
• Þeir sem eru með skerta lifrar-, nýma- eða hjartastarfsemi
ættu að ráðfæra sig við lækni áður en byrjað er að nota
lyfið.
• Lyfið er ekki ætlað bömum.
Orudis® hlaup 2,5% er fáanlegt án iyfseðils I apótekum
I 60 g túpum.
Lesið vandiega leiðbeiningar sem fylgja lyfinu.
Umboð á fslandi: Pharmaco hf., Hörgatúni 2,210 Garðabær.
Heimild:
1 Moore RA. et al. Brítish Medical Journal 1998; 316:333-338.