Morgunblaðið - 04.11.2000, Side 74
T4 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vidalínskirkja
Safnaðarstarf
Öflugt
safnaðarstarf í
Garðasókn
MIKIL gróska er í safnaðarstarfinu
í Garðasókn og eiga ungir og aldnir
að geta fundið þar eitthvað við sitt
hæfi. Fyrir utan reglulegar guðs-
þjónustur má nefna helgistund á
þriðjudögum kl. 16 í tengslum við
kröftugt félagsstarf eldri borgara,
sem fram fer þann dag í Kirkju-
hvoli. Þá hefur skapast föst hefð um
'kyrrðar- og bænastund á fimmtu-
dögum kl. 22. Að lokinni þeirri
stund er boðið upp á hressingu, en
koma má bænarefnum til presta,
djákna og starfsfólks safnaðarins.
Fimmtudaginn 9. nóvember kl. 21
hefur starfsemi sína í bræðrafélags-
salnum umræðu- og leshópur þar
sem tekin verða til umræðu hin
ýmsu málefni sem varða kirkju og
kristindóm og nýjar og nýlegar
bækur um þetta efni verða kynntar.
Allir eru velkomnir til þátttöku á
þessum stundum, sem ekki síst er
ætlað að skapa umræður og vera
vettvangur fræðslu og opinna tjá-
skipta. Umræðu- og leshópurinn
kemur síðan saman reglulega á
fimmtudögum kl. 21.
Starfsemi æskulýðsfélagsins
verður í vetur á fimmtudögum kl.
19.30 - 20.30. Allir unglingar á al-
drinum 13-16 ára eru hvattir til að
taka þátt í fjölbreyttri dagskrá
æskulýðsfélagsins.
Tíu til tólf ára starf kirkjunnar er
unnið í samvinnu við KFUM og K.
Það fer fram í safnaðarheimilinu
Kirkjuhvoli á mánudögum kl. 17.30
fyrir drengi og þriðjudögum kl.
17.30 fyrir stúlkur. Foreldrar eru
hvattir til að beina bömum sínum í
þetta holla og skemmtilega starf
safnaðarins.
Sunnudagaskólinn er á sama tíma
og guðsþjónustumar, kl. 11 á
sunnudögum, en í mánaðarlegum
fjölskylduguðsþjónustum taka böm-
in þátt í guðsþjónustunni allan tím-
ann, en annars fara þau með leiðtog-
um sínum í hliðarsali - þau eldri í
krakkaklúbbinn! Nýtt og skemmti-
legt efni fyrir bamastarfið er notað
og koma þar við sögu ýmsir skrítnir
fuglar. í Garðakirkju er að jafnaði
guðsþjónusta mánaðarlega. Þar
verður messað 5. nóvember kl. 14 og
verður látinna minnst sérstaklega.
Nýlokið er fjögurra kvölda nám-
skeiði um bænina, en aðsókn að þvi
v^rð helmingi meiri en áætlað var í
upphafi. Eftir áramót verður efnt til
námskeiðs um sorg og sorgarvið-
brögð, en það verður kynnt frekar
þegar nær dregur.
Foreldramorgnar störfuðu í allt
sumar. Það starf heldur nú áfram af
auknum krafti með skipulagðri dag-
skrá og er ástæða til að hvetja alla
sem bundnir era heima yfir ungum
bömum að hittast með bömin í
safnaðarheimilinu á miðvikudags-
morgnum kl. 10-12. Eins og nafnið
ber með sér era bæði feður og mæð-
ur hvött til þátttöku þar. Kirkjukór-
inn hóf reglulegar æfingar á ný í
september, en nýtt söngfólk er vel-
komið til samstarfs. Upplýsingar
veita organistinn, Jóhann Baldvins-
son og formaður kórsins, Margrét
V. Pálsdóttir.
Unnið er að gerð steindra glugga
í Vídalínskirkju. Þeir verða helgaðir
sínu virðulega hlutverki í aðventu-
guðsþjónustu 10. desember. Þetta
er kostnaðarsamt verkefni og því er
mikilvægt að allur söfnuðurinn
þjappi sér saman um að vinna það
verk vel, en margar hendur vinna
létt verk. Leifur Breiðfjörð er hönn-
uður þessa frábæra listaverks sem
þegar hefur verið kynnt í söfnuðin-
um.
Hér eftir sem hingað til mun
kirkjan reiðubúin að veita alla þá
bestu þjónustu við sóknarbömin
sem hugsast getur og starfsfólk
kirkjunnar horfir með tilhlökkun til
samstarfs vetrarins við þá sem taka
þar þátt í fjölbreyttu, skemmtilegu
og öflugu starfi.
Kirkjutíðindin hafa fyrir nokkru
verið borin inn á hvert heimili í söfn-
uðinum. Þar er að finna fyllri upp-
lýsingar um það sem er á dagskrá.
Að þessu sinni birtist þar áætlun yf-
ir starf safnaðarins allt til vors, og
því rík ástæða til að láta ekki eintak
heimilisins týnast. Breytingar á
áætluninni verða auglýstar sérstak-
lega.
Prestar Garðaprestakalls.
Tónlistarflutn-
ingur í Lang-
holtskirkju
NÆSTA sunnudag, sem er allra
heilagra messa, er látinna minnst
víða í kirkjum landsins. í Langholts-
kirkju verður sérstakur tónlistar-
flutningur í guðsþjónustunni klukk-
an 11 á vegum Minningarsjóðs
Guðlaugar Bjargar Pálsdóttur, en
tilgangur sjóðsins er m.a. að styrkja
Kór Langholtskirkju.
Guðlaug Björg var félagi í Kór
Langholtskirkju og lést í slysi árið
1986.
Foreldrar hennar og systkini
stofnuðu sjóðinn til minningar um
hana, Eitt af verkefnum sjóðsins
hefur verið að greiða kostnað við
tónlistarflutning á allra heilagra
messu í Langholtskirkju. Sjóðurinn
styrkir einnig efnilega söngnemend-
ur.
Á sunnudaginn mun Kammerkór
Langholtskirkju flytja kórtónlist,
m.a. verk eftir Ruth Watson Hend-
erson. Tekið verður á móti framlög-
um í sjóðinn.
Líknarkaffi í
Grafarvogs-
kirkju
GUÐSÞJÓNUSTA er á morgun,
sunnudag, kl. 14, athugið breyttan
messutíma. Þennan dag, á allra heil-
agra messu, er „þeirra sem á undan
oss era famir“ minnst.
Kór Grafarvogskirkju syngur
undir stjórn Harðar Bragasonar
organista. Einsöngur: Sigurður
Skagfjörð.
Að lokinni messu er kaffisala á
vegum safnaðarfélagsins og sóknar-
nefndarinnar. Allur ágóði rennur í
líknarsjóð kirkjunnar, sem styrkir
fjölskyldur sem eiga í fjárhagsörð-
ugleikum. Allir velkomnir.
Safnaðarfélag Grafarvogskirkju
og séknarnefnd.
Messa og
kvöldvaka í
Fríkirkjunni í
Hafnarfirði
SUNNUDAGKVÖLDIÐ 5. nóvem-
ber verður kvöldvaka í Frfldrkjunni
í Hafnarfirði og hefst hún kl.20.
Að venju verður boðið upp á fjöl-
breytta dagskrá í tali og tónum.
Umfjöllunarefni kvöldsins er að
þessu sinni bænin og bænalífið.
Magnús Pálsson viðskiptafræðingur
flytur stutta hugleiðingu um bæna-
líf. Þá mun sr. Anna Sigríður Páls-
dóttir prestur í Grafarvogssókn í
Reykjavík koma í heimsókn og ræða
um efni sem tengist þessu umfjöll-
unarefni kvöldsins.
Það er Öm Amarson ásamt
hljómsveit og félögum úr kór
kirkjunnar sem leiðir sönginn og
verða sérstaklega valdir til flutnings
fallegir bænasálmar kirkjunnar.
Þennan sama dag, sem er allra
heilagra messa, verður messa í
kirkjunni kl.14. Eins og vera ber á
þessum degi verður látinna ástvina
minnst og kveikt á kertum í minn-
ingu þeirra. Sr. Sigríður Kristín
Helgadóttir predikar og þjónar fyrir
altari.
Minning látinna
í Fossvogs-
kirkju
Á MORGUN, sunnudaginn 5. nó-
vember, er haldin allra heilagra
messa samkvæmt fomri hefð. Þann
dag er látinna víða minnst í kirkjum
landsins. Fjórða árið í röð stendur
Fossvogskirkja opin þennan dag
með dagskrá í tali og tónum á veg-
um Reykjavíkurprófastsdæma og
Kirkjugarða Reykjavíkur. Dagskrá-
in hefst kl. 14 og stendur til kl.
17.30. Kórar og organistar af höfuð-
borgarsvæðinu sjá um tónlistar-
flutning og prestar flytja bæn og
ritningarlestur. Frjálst er að koma
og fara að vild á meðan dagskrá
stendur yfir. Starfsfólk Kirkjuga-
rðanna verður til leiðsagnar í
Fossvogskirkjugarði, í Gufuneskir-
kjugarði og Hólavallagarði. Þá mun
Hjálparstarf kirkjunnar selja friðar-
kerti sín í Gufunesi og Fossvogs-
garði. Verið öll velkomin.
Sr. Maria Ágústsdóttir, héraðs-
prestur í Reykjavíkurprófastsdæmi
vestra.
Allra heilagra
messa og allra
sálna messa í
Hafnarfjarðar-
kirkju
SUNNUDAGINN 5. nóvember
verður mikill hátíðisdagur í Hafnar-
fjarðarkirkju. Tilefnið er allra heil-
agra messa og allra sálna messa.
Dagurinn hefst með fjölskylduhátíð
í kirkjunni kl.ll. Munu þá krakk-
amir úr báðum sunnudagaskólum
kirkjunnar hittast, en tveir sunnu-
dagaskólar starfa á vegum Hafnar-
fjarðarkirkju, einn í Hvaleyrarskóla
og einn í safnaðarheimilinu.
Kirkjurútan gengur eins og venju-
lega, en sérstök rúta fer frá Hval-
eyrarskóla kl.ll.
Á fjölskylduhátíðinni syngur allur
bamakór kirkjunnar, en auk þess
verður farið í leiki, sungið og talað
um allra heilagra messu.
Héraðsprestur Kjalarnespróf-
astsdæmis, sr. Kristín Þórunn Tóm-
asdóttir, kemur í heimsókn og eftir
stundina í kirkjunni er öllum boðið
upp á nammi og hressingu í safnað-
arheimilinu.
Kl. 20.30 er síðan haldin Ijósa-
messa í kirkjunni í tilefni af allra
sálna messu. Þá syngur kirkjukór-
inn brot úr requiem eftir Mósart og
leiðir safnaðarsöng undir stjórn
Natalíu Chow. Héraðsprestur Kjal-
amesprófastsdæmis, sr. Kristín
Þórann Tómasdóttir, predikar. I
ljósamessunni er beðið fyrir látnum
ættingjum, vinum og vandamönnum
og tækifæri gefst til að kveikja á
kertum í minningu þeirra. Eftir
ljósamessuna er boðið upp á kaffis-
opa í safnaðarheimilinu. Sr. Þórhall-
ur Heimisson annast helgihaldið
bæði á fjölskylduhátíðinni um morg-
uninn og í ljósamessunni.
Hjónastarf
Neskirkju -
hugrækt og
hamingja
ANNA Valdimarsdóttir sálfræðing-
ur er gestur okkar í hjónastarfi
Neskirkju næsta sunnudagskvöld 5.
nóvember, kl. 20. Þar flytur hún er-
indi sem hún nefnir Hugrækt og
hamingja. Það fjallar um hvernig
við þurfum að leggja rækt við okkar
innra líf til þess að geta átt gott líf
með öðram, því hætt er við að sá
sem ekki kveikir sitt eigið leiðarljós
verði einmana með öðram.
Anna Valdimarsdóttir á að baki
langa reynslu sem sálfræðingur.
Fyrir síðustu jól kom út eftir hana
bókin „Leggðu rækt við sjálfan þig“
þar sem hún fjallar einmitt um þetta
efni, hugrækt. Eins og áður segir
hefst hjónastarf Neskirkju kl. 20 nk.
sunnudagskvöld í safnaðarheimili
kirkjunnar og er það öllum opið.
Innsetning sr.
Guðmundar
Karls í embætti
í Hjallakirkju
SUNNUDAGINN 5. nóvember kl.
11 mun dómprófastur, sr. Guðmund-
ur Þorsteinsson, setja sr. Guðmund
Karl Brynjarsson í embætti prests
við Hjallakirkju í Kópavogi. Sr.
Guðmundur Karl, fyrrverandi sókn-
arprestur á Skagaströnd, var valinn
prestur við kirkjuna í lok ágústmán-
aðar og tók til starfa í Hjallakirkju
1. nóvember sl. Auk dómprófasts og
sr. Guðmundar Karls þjónar sr. íris
Kristjánsdóttir, sóknarprestur
Hjallasóknar, við guðsþjónustuna.
Að henni lokinni verður efnt til
kaffisamsætis í safnaðarsal
kirkjunnar. Hjallasöfnuður hvetur
safnaðarfólk að mæta í guðsþjónust-
una og bjóða nýjan prest velkominn
til starfa.
Konur og
kristni í Hall-
grímskirkju
INGA Huld Hákonardóttir sagn-
fræðingur mun halda erindi sem
nefnist Konur og trú á 19. öld, á
fræðslumorgni í Hallgrímskirkju í
fyrramálið, sunnudaginn 5. nóvem-
ber kl. 10. Inga Huld er þekkt fyrir
rannsóknir sínar og ritstörf um kon-
ur og kristni og býr yfir víðtækri
þekkingu á þessu sviði.
Þetta er fyrsta erindið af þremur
í erindaflokki er nefnist Konur og
kristni og verða fluttir í Hallgríms-
kirkju næstu sunnudaga. Síðari er-
indin tvö era um Ólafíu Jóhanns-
dóttur, sem Guðrún Ásmundsdóttir
leikkona flytur og Guðrúnu Láras-
dóttur, sem séra María Ágústsdóttir
flytur.
í guðsþjónustunni, sem hefst að
erindinu loknu kl. 11, mun séra Jón
Dalbú Hróbjartsson prófastur setja
séra Maríu Ágústsdóttur inn í emb-
ætti héraðsprests í Reykjavíkur-
prófastsdæmi vestra og mun hún
prédika í messunni. Kvöldmessa á
allra heilagra messu verður svo kl.
20, þar sem látinna verður minnst.
Séra Jón Dalbú leiðir þá stund en
séra Sigurður Pálsson flytur hug-
leiðingu.
Allra heilagra
messa í Fella-
og Hólakirkju
SUNNUDAGINN 5. nóvember nk.
verður messað í Fella- og Hóla-
kirkju kl. 11. Prestur er sr. Hreinn
Hjartarson. Látinna verður minnst í
upphafi messunnar með sérstakri
bænaljósastund. Hver kirkjugestur,
sem þess óskar, fær kerti sem lagt
verður á stóran kross til hliðar við
altarið. Á meðan tendran bænaljósa
stendur yfir leikur Lénka Mátéová á
orgelið. Kór Fella- og Hólakirkju
syngur ásamt einsöngvuranum Lov-
ísu Sigfúsdóttur, Mettu Helgadóttur
og Ragnheiði Guðmundsdóttur und-
ir stjórn Lénku Mátéová, organista.
Lilja G. Hallgrímsdóttir, djákni, að-
stoðar við messuna og altarisgöng-
una auk Fjólu Haraldsdóttur og
Sigríðar Árnadóttur, djáknanema,
sem verið hafa í starfsþjálfun í
kirkjunni frá því um miðjan septem-
ber.
Á sama tíma verður bamaguðs-
þjónusta í safnaðarheimili Fella- og
Hólakirkju í umsjón Margrétar O.
Magnúsdóttur.
Fella- og Hólakirkja.
Tvær guðs-
þjónustur í
Kópavogskirkju
SUNNUDAGINN 5. nóvember
verða tvær guðsþjónustur í
kirkjunni. Fjölskylduguðsþjónusta
verður kl. 11 en í henni syngur
bamakór undir stjóm Þórannar
Björnsdóttur og einnig syngja börn
úr barnastarfi kirkjunnar. Hljóð-
færaleik annast Þóra og María Mar-
teinsdætur.
Kl. 14 verður guðsþjónusta á veg-
um Húnvetningafélagsins. Stefán
M. Gunnarsson flytur stólræðu,
Húnakórinn syngur undir stjórn
Kjartans Ólafssonar og tvísöng
syngja Jóhanna Guðríður Linnet og
Ragnheiður Linnet. Organisti er
Ami Arinbjamarson. Að lokinni
guðsþjónustu verður kaffi í Húna-
búð, Skeifunni 11, í Reykjavík.
Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Neskirkja. Félagsstarf eldri borg-
ara í dag kl. 14 í safnaðarheimilinu.
Samfylgd okkar við kirkjuna. Minn-
ingarbrot. Umsjón sr. Halldór
Reynisson. Kaffiveitingar. Munið
kirkjubflinn. Allir velkomnir. ,
Grafarvogskirkja. AA-hópur kl. 11.
Fríkirkjan Vegurinn: Fjölskyldu-
samkoma kl. 11. Brauðsbrotning.
Samkoma kl. 20. Brauðsbrotning.
Högni Valsson prédikar. Allir hjart-
anlega velkomnir.
KEFAS: Samkoma í dag laugardag
kl. 14. Ræðumaður Björg R. Páls-
dóttir. Mikil lofgjörð, söngur og fyr-
irbæn. Allir hjartanlega velkomnir.
Þriðjud: Brauðsbrotning og bæna-
stund kl. 20.30. Miðvikud: Samvera-
stund unga fólksins kl. 20.30.
Föstud: Bænastund unga fólksins
kl. 19.30. Allir hjartanlega velkomn-
ir.
Landakirkja í Vestmannaeyjum.
Æfing fellur niður hjá Litlum læris-
veinum þessa viku.
Hvammstangakirkja. Sunnudaga-
skóli kl. 11.
Akraneskirkja. Kirkjuskóli kl. 11.
TTT-starf (10-12 ára) kl. 13. Um-
sjón: Hreiðar Örn Stefánsson.
{ * };i
* Xtií
II *
rtin^TuíJi
' it, * v tf y
! . t ií-l
borÖsáyír&funyusayíf
SINDRI
Borgartúni 31 • s. 575 0000 ■ www.sindri.is