Morgunblaðið - 04.11.2000, Side 78
MORGUNBLAÐIÐ
it 78 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000
'í' _——__________
Dýraglens
JÆJA, EN KANNSKI VORU
PÆR OFURLÍTIÐ ÓRÓLESAR
ÞÁ PAÐ, ÞÆR SKIPTU UM
NAFN OS FLUTTU BURT!
Hundalíf
Ljóska
Ferdinand
Smáfólk
IF THI5 HAP BEEN A REAL
SUPPER, WOUR PI5H
UJOULP HAVE BEEN FULL..
kerfið fyrir kvöldmatinn.
Ef þetta væri alvörukvöldmatur,
þá væri dallurinn fullur.
En þetta var Ég þoli það ekki.
bara til að prufu.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Skoðun Morgun-
blaðsins og máttur
Frá Guðmundi Ingasyni:
SÍÐAST á fundi Samtaka fisk-
vinnslustöðva (SF) komumst við að
því að Morgunblaðið hefur skoðun á
hinu og þessu og getur verið að boða
„sínar“ skoðanir í nokkur ár ef svo
ber undir. Ritstjóri blaðsins var
einkar rökfastur og öruggur í pall-
borðsumræðunum og lagði hina nýr-
íku kvótakónga og verslunarráðs-
framkvæmdastjóra fimlega að velli.
Fór svo að enginn æmti né
skræmti nema einn steinbítskall
vestan af Tálknafirði. Eitthvað stóð
trúboð ritstjórans í honum og lét
hann það bitna á Óla Klemm í Seðla-
bankanum í Marel-kokkteilboðinu á
eftir.
En hvernig tilfinning ætli það sé
að setjast niður og byrja setningar í
leiðara eins og „þjóðin vill“, „þjóðin
krefst“, „almenningur telur“, o.fl. í
sama dúr?
Þetta leiðir hugann að því hvort
blaðið eigi að hafa skoðun eða ekki.
Hvort það eigi bara ekki að láta
nægja að vera vettvangur skoðana,
þar sem ritstjórinn gæti skrifað und-
ir nafni sínu eins og aðrir. Er blaðið
að misnota markaðsstöðu og aðstöðu
sína? Það var hér einu sinni talið rétt
að boða frjálsræði þegar boð og bönn
voru við lýði.
Leiðarar voru skrifaðir um fram-
faramál og þjóðmál og blöðin voru
tengd stjórnmálaöflum í landinu.
Nú er ég í sjálfu sér ekki að finna
að skoðun blaðsins og tel að umræð-
an um auðlindagjald og kvótamál
hafi hafist á hærra stig og sé að
verða æ áhugaverðari eftir nefndar-
álit auðlindanefndar.
En segjum sem svo að ég væri
ekki sammála blaðinu og ritstjóra
þess, hvers ætti ég þá að gjalda sem
lesandi blaðsins? Vald og máttur
Morgunblaðsins er mikill í ki-afti út-
breiðslu sinnar og lesningar. í um-
boði hvers situr ritstjórinn og boðar
kenningar sínar? Er þar lýðræðis-
legt val? Erum við, lesendur þess,
þjóðarauðlind þess?
Er Mogginn orðinn það þróaður
og stór að leiðarinn og kenningar
hans séu óþarfar og passi ekki inn í
óhæði og fagmennsku blaðsins? Eru
leiðarahöfundar dagsins í dag síð-
ustu „geirfuglarnir“?
GUÐMUNDURINGASON,
lesandi Morgunblaðsins
og félagi í SF,
Nesbala 98, Seltjarnarnesi.
Viðhorf til
sj ónvarpsger ðar
Frá Páli Hannessyni:
ÉG hefi áður lýst því yfir við Morg-
unblaðið, að ég væri áhugamaður
um sjónvarpsgerð, og það satt að
segja í ein 40 ár. Og endurmagnaður
á því sviði hér á
árunum er Varn-
arliðið sendi út
spennuþættina
Combat og Bon-
anza; útsending-
ar sem allir, ung-
ir sem gamlir,
vildu þá æstir sjá
á skjánum, sem
komust á ein-
hvern hátt að
sjónvarpi, sem ekki var svo algengt
þá, og illa liðið af svokölluðum menn-
ingarfulltrúum þjóðarinnar, sem af-
numdu svo síðar þau ferlegheit.
Þessi áhugi minn beindist í fyrstu
að handritsskrifum fyrir sjónvarp,
þau sem skrifuð eru beint fyrir
myndatökumenn og stjórnendur
efnis og atburðarásar, og þetta hefi
ég reynt tæknilega fyrir mig sjálfan,
tvö skrifuð verk sem ekki hæfðu þó
til sýningar. Ýmsum öðrum höfund-
um hefur þó tekist betur upp, og er
éjg hrifnastur á því sviði af verkinu
Ur öskunni í eldinn, tæknilega séð.
Öðrum hefur áður tekist allvel að
koma sér á framfæri í sjónvarpinu
með verk sín, þótt ekki hafi þau ver-
ið tæknilega unnin og til fyrirmynd-
ar, hvað það snertir. Þetta verk var
sýnt á Stöð 2 í febrúarmánuði á
þessu ári, og er eftir Kristófer G.
Pétursson. Það er sérhæfilega gert
úr garði og öll framsetning frámuna-
lega tæknOeg. Og mér finnst það
marka tímamót í allri sjónvarpsgerð
fram að þessu. Sjálfur er ég orðinn
of fullorðinn til að fást við þessa
hluti núorðið - það er þó aldrei að
vita.
Til eru hinar ágætustu sjónvarps-
„bókmenntir", svo sem eftir Banda-
ríkjamanninh Rod Sterling, mikinn
snilling í slíkri handritagerð, og orð-
inn nú stórfrægur maður, og fleiri
núorðið sem ég þekki ekki deOi á
lengur. En hið rétta upphaf slíkra
handrita er sýningin sjálf, en ekki
ætlað til venjulegs lestrar nema fyr-
ir fagfólk á þessu sviði. Slíkur hand-
ritshöfundur þarf ekki endilega að
vera bókvís maður eða „líteral" sinn-
aður, heldur byggist þetta á mynd-
rænni innsýn og formlegum vinnu-
brögðum, og engu máli skiptir
hvernig handritið lítur út á prenti
bókmenntalega séð, heldur hvernig
það sviðsmyndast og hljóðar. Þetta
var minn lærdómur í dentíð, og gild-
ir ennþá til þess að semja
„TV-Thriller“, sem er draumur
margra ungra manna og kvenna,
með tilheyrandi atriðasköpun, „lif-
andi“ og/eða leikinni.
PÁLL HANNESSON,
fv. tollfulltrúi og áhugamaður
um sjónvarpsgerð.
Páll Hannesson
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í uppiýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efrti
til birtingar teijast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.