Morgunblaðið - 12.11.2000, Side 24

Morgunblaðið - 12.11.2000, Side 24
24 SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ Ekkertjafnas góda samfé- lagsþjónustu BSRB HÉLT 39. ÞING SITT í OKTÓBERLOK. ANNA G. Ólafsdóttir ræddi við Ögmund Jónasson, formann BSRB, OG EKKI AÐEINS UM NÝSAMÞYKKTAR BREYTINGAR Á SKIPULAGI BANDALAGSINS. ElNKAVÆÐINGU, SAMVINNU VERKALÝÐSHREYFINGARINNAR, BARNAFÓLKIÐ OG FÉLAGS- LEGA ÍBÚÐARKERFIÐ BAR EINNIG Á GÓMA. EKKERT ja&iast á við góða samfélagsþjónustu, sem tryggir góða menntun, heilsugæslu og umönnun. Pótt vissulega skipti máli hvað er í launaumslaginu verða fjármunir þar hégómi einn í samanburði við alvar- legan heilsubrest Þá ríður á að hafa aðgang að fyrsta flokks þjónustu og grundvallaratriði er að allir eigi þar jafnan aðgang. Á þessum grunni hvílir velferðarríki tuttugustu aldarinnar og ég er sannfærður um að þessi forskrift á einnig er- indi við tuttugustu og fyrstu öldina," segir Ög- mundur Jónasson, formaður BSRB, með áherslu og verður litið til hægri handar út um gluggann. Ut um gluggann á skrifstoíunni á Grettisgötu blasir við austurborgin böðuð gyllt- um geislum morgunsólarinnar. Uti er kuldaboli kominn á stjá og farinn að bíta í kaldar kinnar. Veturinn er greinilega að ganga í garð og eins gott að vera við öllu búinn. Engu að síður virðist við hæfi að byrja á léttri upp hitunarspumingu. Ögmundur er spurður að því hvað hann álíti standa upp úr á 39. þingi BSRB. Samheldnin aldrei meiri Fyrst vil ég nefna breytingar á skipulagi bandalagsins. Nú mynda formenn allra aðildar- félaganna stjóm bandalagsins. Áður stóðu sum félögin utangarðs og var það mjög til baga. í umboði stjómar starfar síðan fimm manna framkvæmdanefnd. Árlega verða haldnir aðal- fundir, nokkru fjölmennari en venjulegir stjóm- arfundir, þar sem fjármál og önnur veigameiri mál era tekin til afgreiðslu. Æðsta vald í málefn- um bandalagsins verður eftir sem áður þing BSRB. Þetta fyrirkomulag mun að okkar dómi tengja félögin betur saman og gera starfsemina þannig lýðræðislegri en jafnframt markvissari. Hinu er heldur ekki að leyna að samheldnin innan bandalagsins hefur ekki verið meiri í lang- an tíma. Sú tilfinning eykur okkur auðvitað bjartsýniogdug. Ýmis fagfélög á borð við félög leikskólakenn- ara, hjúkrunarfræðinga og fleiri hafa verið að ganga úr BSRB. Hvemig sérðu fyrir þér fram- haldið? Þessi þróun á sér djúpar rætur. Einu sinni vora allir starfsmenn ríkis og sveit- arfélaga innan okkar vébanda. Síðan tóku há- skólamenn að hópa sig saman og mynduðu BHM. Engu að síður era stórir hópar fagmennt- aðra og margir með háskólamenntun, innan BSRB. BSRB hefur heldur ekki farið varhluta af breytingum. Sú var tíðin að allir samningar vora á einu miðstýrðu borði en með samningsréttar- lögum, sem komu til framkvæmda 1987, gekk samningsrétturinn til hvers félags um sig. Eftir sem áður geta félögin tekið um það ákvörðun að semja sameiginlega eins og gerðist til dæmis í svokölluðum „Þjóðarsáttarsamningum“ árið 1990. Hin allra síðustu ár hafa félögin samið hvert fyrir sig nema hvað heildarsamtökin hafa beitt sér þegar deilur hafa risið um grandvall- aratriði sem tengjast fyrirkomulagi kjarasamn- inga- Eg hef stundum haft á orði að kjörin ráðist af tvennu, þ.e. því sem rennur inn og út úr launa- umslaginu. Félögin semja um hvað fer inn í um- slagið, heildarsamtökin taka á útgjaldahliðinni og réttindamálunum. Og í þessum efnum höfum við jafnt og þétt verið að sækja í okkur veðrið. BSRB hefur í samvinnu við önnur samtök náð veralegum árangri í réttindamálum. Stærsti áfanginn var nýsköpun lífeyriskerfisins sem samkomulag náðist um fyrir um fjóram árum eftir áralanga baráttu. Nýlega náðist veralegur áfangi með nýjum fæðingarorlofslögum og sam- komulagi sem við gengum frá í tengslum við þau. Veikindaréttinn höfum við einnig verið að bæta og þannig mætti áfram telja. Framundan er að bæta aðstæður trúnaðarmanna, taka á slysatryggingu o.fl. Samvinna heildarsamtaka starfsmanna ríkis og sveitarfélaga hefur án nokkurs vafa fært þau að nýju nær hvert öðra. Það er hins vegar erfitt að spá nokkra um hvort þetta samstarf eigi eftir að færa þau undir nýtt skipulagsform. Eg er reyndar sjálfur á því að öll verkalýðs- hreyfingin eigi að huga að róttækri endurskipu- lagningu. Að mínum dómi er ekki ólíklegt að hún eigi eftir að sameinast undir einu þaki með tíð og tíma. Það er mikilvægt að þessari þróun verði gefinn góður tími; að samtökin drekki sér ekki í skipulagsumræðu heldur haldi áfram að vinna saman að sameiginlegum markmiðum eins og hefur verið að skila ótvíræðum árangri. BSRB hefur átt afbragðsgott samstarf við ASÍ um ýmsa mikilvæga kjaraþætti, nú síðast um hús- næðismál og skattamál. Þegar þessi samtök beita sér í sameiningu hefúr það jafnan skilað árangri. Ég er því mjög eindregið fylgjandi að samstarf BSRB og ASÍ verði enn eflt á komandi árum. Skyggnst inn í þjóðarlíkamann Þú hefur einmitt stundum imprað á því að sameining við ASÍ gæti kom ið til greina. Hvað mælir með ogá móti því? Eins og ég sagði áðan tel ég ekki rétta nálgun að einblína á skipulag ið. Langeðlilegast er að samtökin nálgist hvert annað með því að vinna að sameiginlegum verkefnum. Ef vel gengur fylgir hitt væntanlega í kjölfarið. Fyrir utan ýmis önnur sameiginleg verkefni hef ég stungið upp á því að öll samtök launa- fólks, ekki bara BSRB og ASÍ, sameinist um rekstur hagfræðistofnunar til mótvægis við samsvarandi stofnanir samtaka atvinnurekenda og Verslunarráðs að ógleymdum ríkisstofnun- um á borð við Þjóðhagsstofnun og Seðlabanka. Með því móti yrði stofnað til kröftugri umræðu í þjóðfélaginu um efnahagsmál. Myndu viðhorf launþegans frekar endur- speglast í útreikningum slíkrar stofnunar? Eins og fjármálalífið í heild hefur Þjóðhags- stofnun verið ofurseld eins konar meðaltalspóli- tík. Þjóðhagsstofnun gefur það út að laun megi aðeins hækka um ákveðið hundraðshlutfall til að verðbólguspár haldi. Við spyrjum; Laun hverra? Fjármálasérfræðingamir skirrast ekki við að tala kjarkinn úr lágtekju- og millitekjuhópum með alhæfingum sínum. Þeir virðast ekki átta sig á að okkar barátta gengur út á að breyta tekjudreifingunni í þjóðfélaginu. Hagfræði- stofnun verkalýðshreyfingarinnar myndi vænt- anlega skyggnast inn í sjálfan þjóðarlíkamann og greina samsetningu hans. Dæmi um jákvætt framlag af þessu tagi var skattaskýrslan sem BSRB og ASÍ sendu frá sér fyrr á árinu. Þar var ítarlega farið í saumana á skattkerf- inu, þróun þess á síðustu áram og hvaða áhrif breytingar hafa haft á kjör launafólks. Litið var til skattahlutfalls og skattleysismarka, bama- bóta og annarra efnahagsstærða. Allt þetta var gert skýrara og skiljanlegra. Þetta hafði veraleg áhrif á þjóðfélagsumræð- una. Ein veigamesta forsenda þess að barátta skili árangri er þekking og upplýsing. Hagfræðistofnun launafólks á að sjá okkur fyrir góðu og kraftmiklu þekkingarfóðri. ASÍ á hálum ís ASÍ samdi um að samningar yrðu lausir ef aðrir fengju meiri hækkanir íhaust. Hvaðþykir BSRB um slík samningsákvæði? Nú þurfa menn að gæta sín á því að leggja ekki orð annarra á versta veg. Fyrir ASI vakir að tryggja hag sinna félagsmanna og ýmsir tals- menn samtakanna hafa lagt áherslu á mikilvægi þess að tryggja hag þeirra sem lakast era laun- aðir. Láglaunafólk verði illa úti ef verðbólga geisi og ekki megi það gerast að það verði skilið eftir ef launin fari á flug. Undir þessi sjónarmið vil ég taka. Hinu er þó ekki að leyna að mér þykir gagn- rýnivert að setja ákvæði í kjarasamninga um uppsagnarákvæði með hliðsjón af launaþróun annarra, ekki síst ef farið er að hamra á þessu ákvæði á meðan þessir „hinir“ standa í kjara- stríði. Hvers vegna í ósköpunum er ekki beðið með slíkar yfirlýsingar þar til uppsagnarákvæð- in verða virk? Spyr sá sem ekki veit. Annars er tvennt sem ég vil nefna sérstaklega í þessu tilliti. Hið fyrra er að varla er hægt að réttlæta að ein samtök taki að sér að móta launastefnu fyrir alla aðra algjörlega án tilrauna til samráðs. í ljósi þess að engin tilraun var gerð til samráðs um launastefnu hef ég gagnrýnt samninga ASÍ frá í vor eða öllu heldur Flóabandalgsins og talið að menn væra komnir út á hálan ís og siðferðis- grandvöllurinn brostinn þegar þessir aðilar leyfðu sér að kveða upp áfellisdóma yfir öðram samtökum. Hið síðara sem ég vildi nefna í sambandi við þessar þrætur er að menn skyldu hafa í huga að tvö mismunandi launakerfi eru að kallast þama á og virðist mér stundum hvoragt skilja hitt. Annað kerfið byggist á lágum töxtum og launa- skriði þar umfram, t.d. hvetur VR félagsmenn sína til að sækja sér laun umfram lágmarkstaxta í einstaklingsbundnum samningum. Hitt kerfið byggist á töxtum þar sem launamaðurinn fær raunveralega ekkert annað í vasann en það sem taxtamir kveða á um. Þetta hefur verið almenna reglan í opinbera kerfinu, t.d. hjá kennuram. Þeir era að semja um sín heildarlaun og fá ekk- ert umfram. Vissulega hefur verið ákveðin tilhneiging hjá ríkinu og ýmsum sveitarfélögum að færa hið op- inbera kerfi yfir á svipaðan grann og er á hinum almenna markaði. Er ekki einfaldlega verið að keppa við aI- menna markaðinn? Morgunblaðið/Jim Smart Jú, og ýta undir að launakerfið verði ógagn- særra. Einstaklingsbundnir samningar hafa verið að ryðja sér til rúms innan opinbera kerfis- ins. Við höfum lagt áherslu á að um öll kjör sé samið á félagslegum granni enda eram við sann- færð um að einstaklingssamningar eigi eftir að koma í bakið á launþegum í framtíðinni. Við munum halda okkar sjónarmiðum til streitu þótt enn sem komið er hafi hvorki rfld né Reykjavík- urborg treyst sér til að skrifa upp á skuldbind- ingar um að um öll kjör skuli samið á félagsleg- um granni. Þegar Alþýðusambandsmenn hafa gagnrýnt opinbera starfsmenn fyrir að vilja fara með hækkanir upp allan launastigann í stað þess að einskorða sig við lægstu.launataxtana gleyma þeir því að með þessu er verið að freista þess að varðveita ákveðið launakerfi. Ef aðeins hinir lægst launuðu fá hækkun og hinir era látnir reka á reiðanum fara að koma brestir í launa- kerfið. Þeir sem tróna efst gráta það ekki. Þeir vita sem er að brotni launakerfið niður munu þeir hagnast. Hæst launaða fólkið þráir nefni- lega einstaklingssamninga. Slíkir samningar era hins vegar slæmir fyrir þorra fólks og afleit- ir fyrir hina lakast settu. Talnaglöggur félagi minn reiknaði út að launataxtar opinberra starfsmanna (að félögum í BHM og bankamörmum meðtöldum) hefðu hækkað um 35,27% ogASÍ um rúmlega 20% frá ársbyrjun árið 1997. Ég er ekkert hrifinn af því að stilla BSRB og ASÍ upp eins og tveimur andstæðum. Innan hvoratveggju samtakanna era launþegar á afar mismunandi launum. Engum dylst heldur að ákveðnir hópar hafa dregist aftur úr öðram hóp- um í þjóðfélaginu í launum á undanfornum mis- seram. Sumir hópar hafa notið góðs af þenslu, aðrir ekki. Meðaltalshugsun er varasöm eins og ég hef reyndar komið að áður. Eðlilegra væri að velta því upp hvort ákveðnir hópar í ábyrgðarstörfum séu nægilega vel launaðir, t.d. sjúkraliðar og strætisvagnabílstjórar. Á sama tíma og þessum hópum er haldið á alltof lágum kjöram horfum við upp á fólk - oft blautt á bakvið eyran - spretta út úr bankastofnunum, fjármálakerfi og víðsvegar úr atvinnulífinu gortandi af milljóna króna mánaðarlaunum. Efastu um að þessir útreikningarséu réttir? Þessir útreikningar gætu staðist en hér ber þó að hafa í huga að kannanir kjararannsóknar- nefndar mæla ekki launahæsta hlutann á al- mennum markaði, gagnstætt því sem gerist hjá hinu opinbera þar sem allir eru teknii- inn í með- altalið. Þetta era því ekki fyllilega sambærilegar tölur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.