Morgunblaðið - 26.11.2000, Blaðsíða 3
læsileg sagnalist
i
Mál og menning
Sfðumúta 7-9 • Laugavegi 18
„Skemmtileg aflestrar, full með stíltöfra, glæsilega myndsköpun
og eftirminnilegar persónur sem lifna á síðunum. En umfram allt
er hún glæsilegt listaverk."
Skafti Þ. Halldðrsson, Mbl.
Byltingarbörn eftir Björn Th. Björnsson
Þegar Lúter skorar kaþólska kirkju á hólm hriktir í bjargföstum
stoðum hennar. Afleiðinganna gætir um allan hinn kristna heim,
einnig í Skálholti í Biskupstungum, en þar eru ungir kennimenn
að undirbúa siðaskipti með mikiLLi leynd. Atburðirnir koma miklu
róti á tilfinningar þeirra sem dvelja á biskupssetrinu og Loft er
lævi blandið. MikiL mannleg örlög munu ráðast og í uppsiglingu
er eitthvert sorglegasta ástarævintýri ísLandssögunnar.
Myndin af heiminum eftir Pétur Gunnarsson
Sköpun heimsins, íslands, mannsins - þetta eru yrkisefni Péturs
Gunnarssonar í skáldsögu sem er hugsuð hin fyrsta í flokki sem
kallast SkáLdsaga íslands. Um leið og sögumaður brýtur til mergjar
mikLar spurningar um hinstu rök, þarf hann að kljást við þær i eigin
Lifi - svo úr verður spennandi og einstaklega gefandi saga, skrifuð
af þeirri fyndni, dýpt og mannlegu hLýju sem einkenna skáldskap
Péturs Gunnarssonar.