Morgunblaðið - 26.11.2000, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2000
•*----------------------------
DAGBOK
MORGUNBLAÐIÐ
í dag er sunnudagur 26. nóvember,
331. dagur ársins. Konráðsmessa.
Orð dagsins: Ég hefí elskað yður,
eins og faðirinn hefur elskað mig,
Verið stöðugir í elsku minni.
(Jóh. 15,9.)
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Triton fer í dag. Selfoss
kemur og fer á morgun,
Sveabulk kemur á
morgun.
Hafnarfjarðarhöfn:
Ingvar Iversen og tún-
* fiskbáturinn Selnes
koma í dag. Ýmir og
Ocean Galaxy fara í
dag. Selfoss kemur á
morgun.
Mannamót
Afiagrandi 40. Félags-
vist á morgun kl. 14.
Jólahlaðborð fóstudag-
inn 1. desember, húsið
opnað kl. 18.15. Gestur
kvöldsins sr. Hjálmar
Jónsson alþingismaður.
Jóhann Friðgeir Valdi-
marsson tenór syngur.
EKKKÓ - kór kennara
á eftirlaunum, syngur.
Skráning í afgreiðslu í
▼ s. 562-2571.
Árskógar 4. Á morgun
kl. 9 pennasaumur og
harðangur, ld. 10.15
leikfimi, kl. 11 boccia,
kl. 13.30 félagsvist, kl.
13 opin smíðastofan, kl.
16 myndlist.
Bólstaðarhlíð 43. Á
morgun kl. 9 handa-
vinna og bútasaumur,
kl. 10 samverustund, kl.
13 bútasaumur.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 á mánud.
kl. 20.30.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Á morgun
kl. 9 myndlist, kl. 10
verslunin opin, kl. 11.20
leikfimi, kl. 13 handa-
vinna og föndur, kl.
13.30 enska, framhald.
Félagsstarf aldraðra,
Dalbraut 18-20. Á
morgun kl. 9.45 leikfimi,
kl. 13 spilað (brids).
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Kortagerð,
klippimyndir og málað-
ar myndir, nýtt nám-
skeið frá 27. nóv. til 10.
des. Skráning í s. 898-
8054 kl. 14-16.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Púttæfing í Bæjarút-
gerðinni í fyrramálið kl.
10-12. Tréútskurður í
Flensborg kl. 13. Fé-
lagsvist kl. 13.30. Á
fimmtud. verður opið
hús. Bókmenntakynn-
ing. Upplesarar: Guð-
•»>rún Helgad., Einar Már
Guðmunds., Porsteinn
frá Hamri, Ragnheiður
Gestsd. og höfundar
bókarinnar Dís. Söngur:
Vox feminae.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ, kl. 13.30. Fé-
lagsvist kl. 13.30 í dag.
Dansleikur í kvöld kl.
20. Mánud: Brids kl. 13.
Danskennsla fellur nið-
ur. Söngvaka kl. 20.30,
umsjón Sigurbjörg
^CHólmgrímsd. Jólavaka
FEB verður 9. des.,
söngur, upplestur, hug-
vekjao.fl. Nánar
auglýst síðar. Jólaferð á
Suðurnesin laugard.16.
des. Brottfór frá Ás-
garði, Glæsibæ kl. 15.
Æskilegt að fólk skrái
sig sem fyrst. Silfurlín-
an opin á mánud. og
miðvikud. frá kl. 10-12 í
s. 588-2111.
Gerðuberg, félagsstarf.
Á morgun kl. 9-16.30
vinnustofur opnar, m.a.
fjölbreytt handavinna,
kl. 9.25 sund og
leikfimiæfingar í Breið-
holtslaug, spilasalur op-
inn frá hádegi, kl. 14 kó-
ræfing, danskennsla
fellur niður. Miðvikud.
6. des. verður farið í
heimsókn til eldri borg-
ara á Selfossi. Fjöl-
breytt dagskrá í félags-
heimilinu Inghóli.
Kaffíveitingar.
Gullsmári, Gullsmára
13. Matarþjónusta er á
þriðju- og föstudögum,
panta þarf fyrir kl. 10
sömu daga. Ávegum
bridsdeildar FEBK
spila eldri borgarar
brids mánudaga og
fimmtudaga. Skráning
kl. 12.45. Leikfimi á
mánudögum kl. 9 og 10,
vefnaður kl. 9.
Gjábakki, Fannborg8.
Á morgun handa-
vinnustofan opin frá kl.
9-17, kl. 9.30 keramik,
kl. 13.30 og 15 enska, kl.
13.30 lomber og skák.
Hraunbær 105. Á morg-
un kl. 9 postulínsmálun,
periusaumur og korta-
gerð, kl. 10.30 bæna-
stund, kl. 14 sögustund
og spjall. Jólafagnaður-
inn verður 8. des. Jóla-
hlaðborð heiðursgestir
og ræðumenn Guðrún
Pétursdóttir, Ólafur
Hannibalsson og sr.
Hjörtur Magni Jóhann-
esson fríkirkjuprestur.
Lögreglukórinn syngur.
Hvassaleiti 56-58. Á
morgun kl. 9 keramik,
tau og silkimálun og
klippimyndir, kl. 10
boccia, kl. 13 spilað.
Hæðargarður 31. Á
morgun kl. 9-16.30 opin
vinnustofa, handavinna
og föndur, kl. 14 félags-
vist.
Norðurbrún 1. Á morg-
un, bókasafnið opið frá
kl. 12-15, kl. 10 ganga.
Vesturgata 7. Á morg-
un, kl. 9.15 handavinna,
kl. 10 boccia, kl. 13 kór-
æfing. Jólafagnaður
verður 7. desember.
Pavel Smid við flygilinn,
glæsilegt jólahlaðborð.
Tvisöngur Bergþór
Pálsson og Helgi
Björnsson. Kór leik-
skólans Núps undir
stjórn Kristínar Þóris-
dóttur. Strengjasveit
frá Suzuki-skólanum.
Upplestur, Kristín
Jónsdótir leikari. Hug-
vekja, sr. Hjalti Guð-
mundsson dómkir-
kjuprestur.
Fjöldasöngur. Upp-
lýsingar og skráning í
síma 562-7077.
Vitatorg. Á morgun kl.
9 smiðjan kl. 9.30 bók-
band, bútasaumur og
morgunstund, kl. 13
handmennt, kl. 13. leik-
fimi, kl. 13 spilað.
Háteigskirkja. Á morg-
un, opið hús fyrir 60 ára
og eldri, stund með Þór-
dísi kl. 10-12. Gengið
inn Viðeyjarmegin.
Kvenfélag Kópavogs.
Vinnukvöld vegna bas-
ars mánudag kl. 20, að
Hamraborg 10.
Kirkjustarf aldraðra,
Digraneskirkju. Opið
hús á þriðjudögum frá
kl. 11 leikfimi, helgi-
stund og fleira.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra, Hátúni 12. Kl. 19
brids.
ITC-deildin Harpa
heldur fund þriðjudag-
inn 28. nóvemer kl. 20 í
Sóltúni 20. Fundurinn
er öllum opin.
Hríseyingafélagið.
Jólabingó verður í Skip-
holti 70, kl. 14 í dag
sunnudag kl. 14. Allir
velkomnir.
Kvenfélagið Heimaey.
Félagskonur athugið
breyttar dagsetningar á
jólasölunni í Mjóddinni
30. nóv. og 1. des. Minn-
um á kökurnar. Vinsam-
lega látið vita ef þið get-
ið unnið þessa daga.
Mæting við söluborðið
kl. 10 báða dagana.
Minnt er á að skrá sig
tímanlega á jólafundinn
11. des. hjá Hildi, Pál-
ínu og Þorgerði.
Kvenfélag Hreyfils.
Jólafundur verður
þriðjud. 28. nóv kl. 20.
Munið eftir jólapökkun-
um.
MS-félag íslands. í dag
er félagsfundur á
Sléttuvegi 5 kl. 14. Ólöf
Bjarnadóttir endur-
hæfingarlæknir kynnir
endurhæfingu og rann-
sókn sem stendur fyrir
dyrum ef þátttaka næst,
John Benediktz svarar
spurningum varðandi
leiðrétta skammtastærð
af Beta interferon. Kaffí
og með því.
Kvenfélagið Hrund.
Jólafundur félagsins
verður haldinn mánud.
27, nóv. kl. 20. í félags-
heimili iðnaðarmanna,
Flatahrauni 8
Hátíðardagskrá.
Félag breiðfirska
kvenna. Jólafundurinn
verður sunnud. 3. des.
kl. 19. Vinsamlega tilk.
þátt fyrir miðvikud. í s.
553-0491, Margrét, eða
553-2562, Ingibjörg.
Munið jólapakkana.
Kvenfélag Bústaða-
sóknar heldur árlegan
jólafund í Safnaðar-
heimilinu 11. des. kl.
19.15. Skráninghjá
kirkjuvörðum í s. 553-
8500 fyrir 3. des.
Slysavarnadeild
kvenna í Reykjavík
heldur basar og hluta-
sölu laugardaginn 3.
desember í Sóltúni 20.
Slysavarnakonur eru
beðnar um að koma með
hluti á vinnufundinn
sem verður fimmtudag-
inn 30 nóv. og hefst kl.
19 eða hafa samband við
Birnu í síma 695-3012.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, Iþróttir 569 1156,
^ sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG:
AtJ^ÍITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 1.900 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 150 kr. eintakið.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Hvað er til
ráða, hvað
er gert?
ÞAÐ er vitað að fækka þarf
hrossum á Islandi um
helming. Eg er einn af þeim
mörgu, sem stend frammi
fyrir þeirri staðreynd og
ætla að fækka um 100%.
Fyrir örfáum árum boðuðu
forráðamenn bænda að ís-
lenski hesturinn væri fram-
tíðin, allt átti að vera að
opnast, markaður hér og
markaður þar. Nú stend ég
uppi með það sem ég hélt
að væri markaðsvara og
frómt frá sagt, gengur hún
ekki út, ekki einu sinni í
sláturhús, hvað þá meir.
Mér er sá kostur vænstur
að taka stóra gröf og grafa
150 hross á besta aldri.
Hefði ég nú haft vit á því að
vera sauðfjárbóndi, mundi
ríkið greiða mér stórar
fúlgur fjár fyrir að grafa
ærnar.
En hestabóndinn
einfaldi, sem hlýddi á fag-
urgal um gullin tækifæri,
hann fær að éta það sem úti
frýs. Væri ekki nær að
senda, þó ekki væri nema
eins og tíu manns úr ráð-
unautastétt, til þess að leita
markaða, í stað þess að ráð-
leggja hvernig framleiða á
meira á yfirfulla markaði?
Sveinbjörn
Benediktsson.
Hvar er unga
fólkið?
UNGA fólkið sem hjálpaði
mér á mánudagskvöldið 20.
nóvember sl. að slökkva
eldinn í Flúðaseli, er vin-
samegast beðið að hafa
samband við mig. Eg heiti
Jóhanna og er í síma 891-
8717 eða 557-5794.
Dýrahald
Blámi
er týndur
ÞESSI köttur heitir Blámi.
Hann er búinn að vera
týndur í marga daga. Blámi
er eymamerktur R-9232.
Ef þið sjáið hann, þá vin-
samlegast látið vita í síma
567-8008 eða 692-1966 eða
heim til hans að Funafold
16, Reykjavík.
Læða og fress hurfu
að heiman
EG er svört, fíngerð læða
og var í pössun á Grím-
staðaholtinu, en fékk heim-
þrá og stakk af. Nú er ég
einhvers staðar í reiðileysi
og á þvælingi, væntanlega í
vesturbænum, en á heima í
Hafnarfirði og rata ekki
heim. Eg er með ósköp lítið
hjarta, hrædd við allt og
alla, svo erfiðlega getur
gengið að handsama mig.
Því bið ég þann sem sér
mig að láta vita í einhvern
af eftirtöldum símum eða í
Blámi
Kattholt. Símamir em 895-
8561 eða 861-2007.
Þá hvarf bróðir minn frá
heimili okkar við Norður-
brautina í Hafnarfirði
sunnudaginn 29. október sl.
Hann er bröndóttur með
bleikt nef og svart í kring-
um það. Hann er þveröfugt
við mig, mjög mikil félags-
vera og á til að stökkva upp
í opna bíla. Bæði vorum við
með sjálflýsandi ólar með
rauð kringlótt spjöld og
segulkubba (lyklaböm) og
auk þess eyraamerkt.
Sömu simanúmer gilda fyr-
ir hann líka.
Kros
LÁRÉTT:
1 traustur, 8 að svo búnu,
9 endurtekið, 10 hrygn-
ing, 11 ber brigður á, 13
kvendýrið, 15 dæma í fé-
sekt, 18 slaga, 21 löður,
22 með jöfnu yfirborði,
23 svarar, 24 bernskan.
gata
LÓÐRÉTT:
2 sníkjudýrið, 3 klappi
egg f Ijá, 4 viljugt, 5 um-
fang, 6 guðir, 7 hugboð,
12 megna, 14 vætla, 15
vökvi, 16 oks, 17 að baki,
18 kvenvargur, 19 ráða í,
20 siga.
LAUSN SI'ÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 lokka, 4 tepra, 7 tamar, 8 kúlan, 9 auk, 11 nýra,
13 saum, 14 fenna, 15 þjál, 17 tákn, 20 eða, 22 ölæði, 23
ljúft, 24 geisa, 25 nauti.
Lóðrétt: 1 lútan, 2 kamar, 3 aðra, 4 tekk, 5 pilta, 6 af-
nám, 10 unnið, 12 afl, 13 sat, 15 þröng, 16 áræði, 18
álútu, 19 nátti, 20 eira, 21 alin.
Víkverji skrifar...
HRAÐI og spenna einkenna lífs-
hætti fólks í nútímasamfélag-
inu; fyrir öllu er að „standa sig“ í
vinnunni og félagsmálunum, sýna
sig og sjá aðra og helst vinna á
fleiri en einum vinnustað til að
þéna nógu mikið til að verða ekki
undir í kapphlaupinu um flottasta
húsið, stærsta jeppann og breið-
asta fellihýsið. Oft sést fólk - ís-
lendingar sem aðrir - ekki fyrir í
þessari baráttu og það sem raun-
verulega er mikilvægt lendir undir.
Börnin eru, því miður, dæmi um
þetta.
xxx
ÍKVERJI heyi’ði frásögn
grunnskólakennara á dögun-
um sem fékk hann til að staðnæm-
ast ofurlítið, anda djúpt og velta
hlutunum fyrir sér. Kennarinn
lýsti nefnilega daglegum aðstæðum
á vinnustað sínum og lauk um leið
upp augum Víkverja fyrir þeim
breytingum sem orðið hafa á ís-
lensku samfélagi á síðustu árum og
eru því miður ekki allar til góðs.
Eftir því sem kennarinn tjáði
Víkverja, færist nú í vöxt að í býtið
á morgnana, þegar skammdegið
umlykur allt og starfsmenn skóla-
stofnana mæta til vinnu sinnar,
sitji þar fyrir í myrkrinu börn sem
skilin hafi verið þar eftir af for-
eldrum sínum á leið til vinnu fyrr
um morguninn. Þetta eru ekki
börn á unglingsaldri með húslykil-
inn í vasanum og vasadiskóið í eyr-
unum, heldur lítil, elskuleg börn
sem orðið hafa undir í forgangsröð-
un og kapphlaupi foreldranna við
klukkuna. Kennarinn bætti því svo
við að ofan á þessa döpru og kald-
ranalegu sjón í morgunsárið,
mættu starfsmenn svo búa við að
fylgjast með þessum sömu börnum
síðar um daginn, þar sem þau sitja
aftur í myrkrinu og bíða þess að
verða sótt. Eftir heilan skóladag og
til viðbótar þá gæslu sem felst í
heilsdagsvistun þegar hefðbund-
inni kennslu lýkur. Þetta, sagði
kennarinn, jafngildir ríflegum
vinnudegi fullorðins fólks og þá eru
stundum eftir stundir fyrir kvöld-
mat á eftir þar sem börnin eru
„sett í pössun“ hjá skyldmennum
eða öðrum meðan mamma og pabbi
sinna áhugamálunum; skemmtun-
um, líkamsrækt eða einhverju
öðru. Oftast allt öðru en að vera
með börnunum sínum.
xxx
VÍKVERJI, sem sjálfur þekkir
foreldrahlutverkið af eigin
raun, veit fátt yndislegra í veröld-
inni en að verja tíma með barni
sínu og ástkonu. Vissulega getur á
stundum verið erfitt að koma öllu
heim og saman, en hann telur þó
mjög mikilvægt að gefa sér tíma
hvern einasta dag til samveru með
fjölskyldunni. Starf blaðamannsins
er líklega ekki mjög fjölskyldu-
vænt starf, en þess mikilvægara er
að skipuleggja tíma sinn vel og að
undanförnu hefur Víkverji haft
þann háttinn á að vera samvistum
með syni sínum árla morguns og
fara síðan með hann á dagheimilið
eftir morgunspjall og tilheyrandi
ærsl og leiki. Komi síðan til vinnu
fram á kvöld, sem stundum bregð-
ur við, reynir Víkverji hins vegar
að bregða sér heim um kvöldmat-
arleytið, snæða málsverð með fjöl-
skyldunni og svæfa svo unga
manninn áður en snúið er aftur til
verkanna. Með þessum hætti er
vinnan fléttuð kringum fjölskyldu-
lífið og hið vandasama hlutverk
uppalandans, en ekki öfugt, og lítill
hnokki vaknar með pabba sér við
hlið og sofnar svo á sama stað,
jafnvel á þeim stundum sem krefj-
ast hvað mestrar fjarveru og yfir-
tíðar í amstri hversdagsins.
xxx
SÍST af öllu vill Víkverja setjast
í dómarasætið í þessum efnum
og boða fagnaðarerindið, enda
kemur stundum fyrir að honum
finnist hann ekki hafa nægilegan
tíma til að sinna fjölskyldunni og
því sem honum er kærast. Og alls
ekki má skilja skrifin sem svo að
vinna skipti engu máli, enda vill
svo til að Víkverja er sérdeilis sátt-
ur í sinni vinnu og þykir vænt um
sinn vinnustað. Erindið er hins
vegar að fá fólk til að velta hlutun-
um ofurlítið fyrir sér; huga að for-
gangsröðinni og því sem því er
kærast. Annað var það ekki.