Morgunblaðið - 26.11.2000, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
273. TBL. 88. ÁRG. SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuters
Aftur í
sviðsljósið
SLOBODAN Milosevic'raætir hér til
þings félaga sinna í serbneska Sós-
íalistaflokknum sem hittist í gær-
morgun til að ræða ósigurinn í for-
setakosningunum í september.
Einnig átti að kjósa formann
flokksins en þar var Milosevic einn
um hituna og því leit út fyrir að
hann yrði endurkjörinn.
Brestir eru komnir í flokksaga
Sósialistaflokksins og þó nokkrir
meðlimir hans kenna Milosevic um
ósigurinn í september. Milosevic
þarf því að taka á honum stóra sín-
um til að sameina flokknm fyrir
þingkosningarnar í desember.
--------------------
Spenna í
Mið-Aust-
urlöndum
Jerúsalem, Nablus. AFP.
ANDRÚMSLOFT á Vesturbakkan-
um og Gaza-svæðinu var þrungið
spennu í gærdag, þrátt fyrir þann
áfanga sem náðist á föstudag er
Ehud Barak og Yasser Arafat rædd-
ust við símleiðis og samþykktu sín á
milli að taka á ný upp samstarf milli
öryggissveita þjóðanna og að sam-
starfsskrifstofur þeirra yrðu opnað-
ar aftur.
Palestínumenn sem létust í átök-
unum á föstudag voru bornir til graf-
ar í gær og tók á annan tug þúsunda
Palestínumanna þátt í athöfnunum
og hrópuðu þeir ókvæðisorð að leið-
togum ísraela. Einnig kom til átaka
á milli Palestínumanna og Israela og
særðust nokkrir Palestínumenn í
þeim.
Arafat var í Jórdaníu í gær og
ræddi þar við Abdullah II konung.
Leiðtogarnir hugðust ræða versn-
andi ástand á svæðum Palestínu-
manna. Arafat heldur til Egypta-
lands frá Jórdaníu og mun þar ræða
við Hosni Mubarak forseta.
GAGNRÝNISTEINGRÍMS
VATN Á MYLLU
ANDSTÆÐINGA
BandanTdn skella skuldinni á ESB sem sagt er að hafí klofnað í afstöðu sinni
Ekkert samkomulag á
ráðstefnunni í Haag
Haag. Morgunblaðið
„PAÐ er staðreynd að við höfum
ekki uppfyllt væntingar frá umheim-
inum. En nú verðum við að ræða
framhaldið því við getum ekki farið
heim án þess,“ sagði Jan Pronk, um-
hveríisráðherra Hollands, er hann
ávarpaði lokafund loftslagsráðstefn-
unnar í Haag en ekkert samkomulag
náðist á ráðstefnunni.
Mikil vonbrigði voru meðal þátt-
takenda með niðurstöðu ráðstefn-
unnar en lengi vel var vonast eftir já-
kvæðum niðurstöðum. „Pronkreynir
fram á síðustu stundu að ná sam-
komulagi,“ sagði hin sænska Margot
Wallström, sem fer með umhverfis-
mál í framkvæmdanefnd Evrópu-
sambandsins, ESB, um leið og hún
þyrlaðist fram ganginn umkringd
fréttamönnum og sjónvarpsvélum í
ráðstefnumiðstöðinni í Haag í gær-
morgun, þar sem loftslagsráðstefna
Sameinuðu þjóðanna var á síðasta
snúning. Jan Pronk forseti ráðstefn-
unnar var þá á lokaspretti til að
freista þess að ná samkomulagi, sem
virtist þó svo ósennilegt að ýmsir
ráðherrar tóku saman pjönkur sínar
strax á laugardagsmorgun.
Mörgum sögnm
fer af atburðum
I ráðstefnumiðstöðinni í Haag í
gærmorgun fór mörgum sögum af
því hvað hefði í raun gerst, en það
eina sem var Ijóst var að samkomu-
lag væri ólíklegt. „Það eru minni en
meiri líkur á samkomulagi," sagði
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra í viðtali við Morgunblaðið í
gærmorgun. Og um hádegi sagðist
hún vera orðin heldur svartsýnni.
Heimildarmenn Morgunblaðsins í
hópi norrænna embættismanna
sögðu að þróunarlöndin hefðu hafnað
samningi, sem Regnhlífahópurinn,
hópur níu ríkja, þar á meðal Islands
og Bandaríkjanna, og ESB hefði náð
um nóttina. Talsmaður bandarísku
sendinefndarinnar skellti hins vegar
skuldinni hikstalaust á ESB.
Að sögn hans höfðu fulltrúar ESB,
umhverfisráðherrar Þýskalands,
Frakklands og Portúgal, hugsanlega
fleiri og Bandaríkin náð samkomu-
lagi um veigamikil atriði. Þetta hefðu
ESB-fulltrúarnir síðan borið undir
aðra ESB-ráðherra, sem hefðu ekki
getað samþykkt það. „Það var komið
Grænfriðungar mótmæla í Haag.
samkomulag, sem ESB gat síðan
ekki staðfest,“ sagði talsmaðurinn
rétt fyrir hádegi í Haag. „Nú er stað-
an sú að ESB vill ekki segja okkur
hver afstaða þess sé,“ hnýtti hann
aftan við athugasemdir sínar.
Margir ráðherrar ESB
vonsviknir
Þó ESB túlkaði niðurstöðuna op-
inberlega sem sigur, þar sem ráð-
herrarnir hefðu staðið fast á mark-
miði Kyoto-bókunarinnar héldu
heimildarmenn Morgunblaðsins því
fram að ESB hefði verið klofið og
margir ráðherrar í þeim hópi hefðu
verið mjög vonsviknir yfir skorti á
samtakavilja landanna. Haft var eft-
ir einum ESB-ráðherranna að svona
gæti þetta ekki gengið lengur og
þetta hefði verið þungbær reynsla.
Umhverfisverndarsamtök höfðu
uppi stór orð um hversu illa virtist
ætla að takast til um dugandi um-
hverfisátak. Arni Finnsson formaður
Náttúruverndarsamtakanna sagði í
samtali við Morgunblaðið að ábyrgð-
in hvíldi á Bandaríkjunum, þjóðinni
sem losaði mest af mengunarvald-
andi lofttegundum á mann. Þau
hefðu, ásamt Ástralíu, Japan og
Kanada, sýnt eindæma þvergirð-
ingshátt í að standa við fyrirheit
Kyoto-bókunarinnar.
Tekist á um mikla lækk-
un herútgjalda
AFP.
SVISSLENDINGAR ákveða í þjóð-
aratkvæðagreiðslu í dag, sunnudag,
hvort draga eigi stórlega úr útgjöld-
um til hersins og hvort allir eigi að
fá rétt á ellilífeyrisgreiðslum við 62
ára aldur.
Lagt er til að útgjöldin til her-
mála verði lækkuð úr fimm milljörð-
um svissneskra franka, andvirði 250
milljarða króna, í 3,2 milljarða
franka næstu tíu árin.
Stjórnin er andvíg þessu og segir
að hlutleysisstefna landsins sé dýr
og tillagan sé „óþörf, óviðunandi og
hættuleg". Samþykkí Svisslending-
ar að setja ströng takmörk við út-
gjöldum til hersins í stjómarskrána
kann það að verða til þess að þeir
geti ekki brugðist við nýjum hætt-
um í öryggismálum, að sögn stjóm-
arinnar.
Andstæðingar tillögunnar benda
í Sviss
ennfremur á að varnarmálaráðu-
neytið hafi dregið úr útgjöldum sín-
um um níu milljarða franka, and-
virði 450 milljarða króna, frá 1990.
Stuðningsmenn tillögunnar segja
hins vegar að hægt verði að nota féð
sem sparast í ýmsar aðgerðir til að
stuðla að afvopnun í heiminum,
koma í veg fyrir stríð og greiða fyrir
friðsamlegri lausn deilumála sem
valda hættu á átökum.
Aií' LÖGRCGLAN
------------
þjóðí skugga
manndrápa
vnxnpn/mnsmíí
Á SUNNUOEQI
pLGANDI BLEK
IciU IIUI
Fákafeni 9
Sími 568 2866
MORGUNBLAÐH) 26. NÓVEMBER 2000
5H690900
090000