Morgunblaðið - 26.11.2000, Síða 4

Morgunblaðið - 26.11.2000, Síða 4
4 SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 19/11-25/11 ► MIKIL spjöll voru unn- in í kirkjugarðinum við Suðurgötu þar sem skemmdarvargar úðuðu málningu á legsteina og lágmyndir við leiði. Legsteinn Jóns Sigurðs- sonar forseta varð illa fyrir skemmdarfýsn varg- anna. I kjölfar þessa mun garðurinn vera lokaður að næturlagi og lýsing innan hans bætt. Samið við MATVÍS og verkfalli frestað KJARASAMNINGUR var undirrit- aður hjá Ríkissáttasemjara milli Samtaka atvinnulífsins og MATVÍS vegna Bakarasveinafélags íslands, Félags framleiðslumanna, Félags ís- lenskra kjötiðnaðarmanna og Félags matreiðslumanna. Boðuðu verkfalli um 1.200 félagsmanna MATVÍS var því frestað. Samningurinn gildir til 31. janúar 2004 og hækka laun í þremur áföngum um 11,4% á tímabil- inu. ► FORMAÐUR Félags fasteignasala segir sölu á fasteignum hafa dregist verulega saman siðustu vikurnar. Samdrátturinn er talinn nema um 35- 40% frá sama tíma í fyrra og er rakinn til hárra vaxta, lágs gengis krón- unnar og kennara- verkfalls. ► EKKI verður af sam- einingu sveitarfélaganna sunnan Reykjavíkur. Kópavogur hefur dregið sig í hlé frá viðræðunum og Garðbæingar ljá ekki máls á sameiningu við Bessastaðahrepp og Hafnarfjörð á þessu stigi málsins. ► FORSTJÓRI Fjármála- eftirlitsins gagnrýndi ör- an vöxt útlána hjá lána- stofnunum og sagði slíka útlánaaukningu langt um- fram þjóðarframleiðslu ekki geta staðið til lengd- ar. Árleg aukning útlána hefur verið 25% sfðustu tvö árin. ► HÖFNUN útlendinga- eftirlitsins á dvalarieyfi fyrir mann sem kveðst vera frá Tsjetsjníu hefur verið áfrýjað til dómsmálaráðuneytis af séra Jakobi Rolland. Mikill viðbúnaður er rúta valt í Fljótum Sjúkrabílar frá bæjum allt milli Blönduóss og Akureyrar voru sendir á vettvang eftir að rúta með 39 manns valt í Fljótum. Alls hlutu 27 farþegar aðhlynningu á sjúkrahúsi Sauðár- króks. Einn var alvarlega slasaður og var hann fluttur með þyrlu Landhelg- isgæslunnar til Reykjavíkur og annar til Akureyrar með sjúkraflugi. Eng- inn hinna slösuðu var í lífshættu. Farþegar rútunnar telja nær full- víst að hefðu belti verið í rútunni hefðu færri slasast en raun varð á. Mikið ber í milli í deilu kennara og ríkisins STUTTUR og árangurslaus fundur var haldinn hjá Ríkissáttasemjara á fimmtudag í kjaradeilu framhalds- skólakennara við ríkið. Kennarar líta svo á að viðræðum hafi verið slitið en Þórir Einarsson ríkissáttasemjari hefur áformað fund með deiluaðilum á morgun. Elna Katrín Jónsdóttir forrnaður Félags framhaldsskóla- kennara sagði að niðurstaða fundar- ins á fimmtudag gæfi ekki tilefni til bjartsýni á að deilan leystist í bráð og viljaleysi til samninga væri áberandi af hálfu ríkisins. Gunnar Björnsson formaður samninganefndar ríkisins vísaði þessum ummælum á bug. Sviptingar í Flórída AL Gore, varaforseti Bandaríkjanna og forsetaefni demókrata, varð fyrir áfalli á fimmtudagskvöld þegar hæstiréttur Flórída ákvað að hafna beiðni lögfræð- inga hans um að fyrirskipa kjörstjórn fjölmennustu sýslu ríkisins, Miami- Dade, að ljúka handtalningu atkvæða í forsetakosningunum. Fylgi Gores hefur hins vegar aukizt í handtalningu í ann- arri sýslu og demókratar eru enn von- góðir um að varaforsetinn sigri í Flór- ída og verði þar með næsti forseti Bandaríkjanna. Demókratar sögðust ekki ætla að játa sig sigraða þótt innan- ríkisráðherra Flórída lýsi repúblik- anann George W. Bush sigurvegara á sunnudagskvöld. Hæstiréttur Flórída úrskurðaði á þriðjudag að heimilt væri að halda áfram handtalningunni og niðurstöður hennar ættu að gilda þegar lokaúrslit forsetakosninganna í ríkinu verða til- kynnt, að því tilskildu að talningunni lyki á sunnudagskvöld. Aðstoðarmenn Gores telja að handtalning í tveimur sýslum, Broward og Palm Beach, muni geta dugað til sigurs. Atök harðna HÁTT í tuttugu manns hafa látið lífið í vikunni í átökum ísraela og Palestínu- manna og hundruð særzt. Alls hafa um 260 manns, flest Palestínumenn, látið lífið frá því átök blossuðu upp fyrir átta vikum. Israelar gerðu flugskeytaárás á palestmsk skotmörk á mánudag, í hefndarskyni fyrir sprengjutilræði á skólabíl á Vesturbakkanum, sem varð tveimur ísraelum að bana. Egyptar kölluðu sendiherra sinn í ísrael heim í kjölfarið. Aðrir tveir ísraelar fórust í bílsprengjutilræði í N-ísrael á miðviku- dag. A fimmtudag fyrirskipaði ísraels- her Palestínumönnum að fara út úr öll- um samstarfsskrifstofum ísraelskra og palestínskra öryggissveita og rauf þar með síðustu formlegu tengsl þeirra. ► RÁÐHERRAR frá flest- um hinna 180 aðildarríkja loftslagssáttmála SÞ sátu ásamt öðrum fulltrúum á rökstólum alla vikuna til að reyna að komast að samkomulagi um hvernig markmiðum Kyoto- bókunarinnar frá 1997 um að draga úr losun gróður- húsalofttegunda í heimin- um yrði komið í fram- kvæmd. ►VALENTIN Paniagua, þingforseti í Perú, var á miðvikudag skipaður for- seti landsins til bráða- birgða, eftir að Alberto Fujimori sagði af sér. Reyndar hafnaði þingið af- sagnarbeiðni Fujimoris og svipti hann síðan embætti á grundvelli þess að hann væri „siðferðislega van- hæfur“ til að gegna því. ► SPÁNVERJAR minntust þess á miðvikudag að 25 ár voru liðin frá krýningu Jó- hanns Karl Spánarkon- ungs. Morð á fyrrverandi ráðherra varpaði skugga á krýningarafmælið. Var ETA, aðskilnaðarhreyf- ingu Baska, kennt um morðið. Um 900.000 manns söfnuðust saman í miðborg Barcelona á fimmtudag- skvöld til að mótmæla morðöidu ETA. ► ÓTTI við kúariðu fer vaxandi í Evrópu. Spánn bættist í vikunni í hóp landa þar sem kúariðu hef- ur orðið vart. Flest grann- ríki Frakklands hafa bann- að innflutning á nautakjöti þaðan vegna útbreiðslu kúariðu þar. Utsvar verður 12,46% í Garðabæ REKSTRARAFGANGUR Garða- bæjar er áætlaður rúmar 516 millj- ónir kr. á næsta ári samkvæmt fjár- hagsáætlun, en það er 28,7% af sameiginlegum tekjum sem áætlað- ar er rétt rúmar 1.800 milljónir kr. Hefur þetta hlutfall ekki verið hærra frá árinu 1991, að því er fram kemur í frétt frá Garðabæ. Stærstur hluti teknanna kemur af útsvörum, eða 88,1%. Samþykkt var við afgreiðslu fjárhagsáætlunar að álagningarprósenta útsvars verði 12,46% og hækki úr 11,24% með fyr- irvara um að frumvarp sem mæhr fyrir um hækkun hámarksálagning- arprósentunnar í 12,70% verði að lögum. Tekjuaukningunni vegna hækkunarinnar verður fyrst og fremst varið til niðurgreiðslu skulda samkvæmt þriggja ára áætlun og til uppbyggingar skólamannvirkja. Mest til fræðslumála Stærstur hluti útgjalda bæjarfé- lagsins fer til fræðslumála, eða tæp- ar 547 milljónir kr., sem eru 42,6% af rekstrargjöldum í heild. 223,4 millj- ónir kr. fara til félagsþjónustu eða 17,4% og til æskulýðs- og íþrótta- mála fara 109,2 milljónir kr., eða 8,5% af rekstrargjöldum. A næsta ári er áætlað að verja um 600 milljónum kr. til framkvæmda. 208 milljónum kr. verður varið til gatnaframkvæmda, meðal annars í Asahverfi, 62 miilj. verður varið til að byggja leikskóla í því hverfi, 116 milljónum kr. verður varið til skóla- mannvirkja, 30 milljónum kr. til und- irbúnings að byggingu nýs íþrótta- mannvirkis í Hofsstaðamýri o.fl. Verðstríð á bókamarkaði í uppsiglingu Nettó og Bón- us keppa hart Morgunblaðið/Kristinn Foreldrar skólabarna funda hér HÁTT á annað hundrað fulltrúar samtaka foreldra skólabarna í Evrópu, Europian Parents Ass- ociation (EPA) taka þátt í ráð- stefnu samtakanna, sem haldin er hér á landi um helgina. Ráðstefn- an er haldin í fyrsta skipti hér- lendis, en hún er á vegum Lands- samtakanna Heimili og skóli. Ráðstefnan ber yfirskriftina: „Tungumál, lykill að samskiptum, framlag foreldra" og fjalla þar innlendir og erlendir sérfræðing- ar um mikilvægi tungumála- kunnáttu og hve nauðsynlegt það er að læra erlend tungumál. VERÐSTRÍÐ á bókamarkaði er orð- ið að árvissum viðburði. Þetta árið virðast matvöruverslanir Bónuss og Nettó ætla að eiga í hvað hörðustu baráttunni á bókamarkaðinum þar sem útsöluverð einstakra bóka fer langt undir leiðbeinandi verð útgef- enda. Guðmundur Marteinsson Bónus- maður sagði engan vafa vera á þátt- töku þeirra í verðstríðinu. „Það er ekki spuming, við höfum verið ódýrastir í 11 ár og það verður engin breyting á því í ár.“ Þriðja bindi ævisögu Steingríms Hermannssonar kostaði í gær 1.990 krónur í Bónus og nýjasta sagan um galdrastrákinn Harry Potter 1.890 kr. Aðspurður hvort Bónusverslan- imar myndu halda áfram að lækka bókaverð ef samkeppnisaðilar gerðu slíkt sagði Guðmundur að þeir myndu halda áfram að lækka og ekki yrði spurt hversu mikið væri mögulegt að lækka verðið, það yrði bara gert. „Við tökum því sem að höndum ber og gerum allt sem þarf til að bjóða besta verðið. Það er því ekki spurt að því hvað verður farið neðarlega.“ Spurður hvemig þeir fæm að því að undirbjóða svona leiðbeinandi markaðsverð sagði Guðmundur það vera viðskiptaleyndarmál. Nettó-verslanirnar ætla sér einnig virkan þátt í verðstríðinu og selja valda bókatitla langt undir leiðbein- andi verði. Ævisaga Steingríms hefur verið á sérstöku tilboðsverði, 2.390 kr., þar sem leiðbeinandi verð útgef- anda er 4.480 kr. Dós af rúsínum í kaupbæti Deildarstjóri Nettó í Mjódd sagði það stefnu verslananna að bjóða upp á valda titla á niðursettu verði alveg til jóla, „Við höfum bara gaman af sam- keppni og verðum með góð skot á ákveðnum titlum fram að jólum og bjóðum viðskiptavinum okkar jóla- bækumar á góðu verði.“ Bókabúð Lámsar Blöndal á Skóla- vörðustíg tekur sinn þátt í bókastríð- inu - bara með öfugum formerkjum við matvöruverslanimar. Þar fá við- skiptavinir dós af rúsínum með hverri seldri bók í kaupbæti. á Súfistanum mánudagskvöldið 27. nóvember kl. 20 ur nýjum bama og unglingabókum Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, Elías Snæland Jónsson, Hallfríóur Ingimundardóttir, Kristin Helga Gunnarsdóttir, Kristín Steinsdóttir, Ólafur Gunnar Guðlaugsson, Ragnheiður Gestsdóttir, Valgeir Skagfjörð og monn. n Yrsa Sigurðardóttir mLgmenning.f * Laugavegi 18 • Sími 515 2500

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.