Morgunblaðið - 26.11.2000, Síða 11

Morgunblaðið - 26.11.2000, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2000 11 gríms, íkafla sem ber heitið„Undir- róður Halldórs“, að þú hafír unnið að því á bak við tjöldin að fá þingmenn Framsóknarflokksins til að sitja hjá við atkvæðagreiðslu um málið á Al- þingi. „Eg gerði alls enga tilraun til að reyna að hafa áhrif á afstöðu annarra þingmanna og bað þá ekki að fylgja mér í þessu máli. Sú atkvæðagreiðsla sem var nú kannski mikilvægust í þessu máli var þegar greidd voru at- kvæði um Eftirlitsstofnunina og EFTA-dómstólinn í desember 1992 í sambandi við afgreiðsluna á sam- keppnislögunum, en þá sátu sjö þing- menn Framsóknarflokksins hjá, en fjórir voru á móti og tveir voru fjar- verandi, þar á meðal Steingrímur Hermannsson. Hann sagði í viðtali rétt eftir þessa atkvæðagreiðslu, sem fór fram viku eftir flokksþingið, þeg- ar hann var spurður um þessa niður- stöðu: „Ég tel það vera í fullu sam- ræmi við afstöðu flokksþings Framsóknarflokksins til Evrópska efnahagssvæðisins, hvort sem menn sitja hjá við atkvæðagreiðslu eða greiða atkvæði gegn einstökum frumvörpum um EES.“ Þetta var hans skoðun á þeim tíma. Raunar treysti Steingrímur, þá- verandi utanríkisráðherra, Jóni Baldvin Hannibalssyni, afskaplega vel í þessu máli. Ég man eftir því að ég sagði við Steingrím að ég teldi að stofnanaþáttur þessa máls væri orð- inn svo stór að það væri nauðsynlegt að forsætisráðuneytið kæmi meira að málinu, en Steingrímur taldi að það væri í afskaplega góðum höndum ut- anríkisráðherra og taldi óþarft að forsætisráðuneytið setti í gang mikla vinnu af þeim sökum.“ Er ekki rétt að á flokksþinginu 1992 hafír þú beitt þér mjög fyrir því að drögum að ályktun um utanríkis- mál yrði breytt þannig að þingið tæki ekki afdráttarlausa afstöðu gegn samningnum? „Það er rétt. Ég tel mig hafa verið trúan minni vinnu og minni afstöðu í ríkisstjóm Steingríms Hermanns- sonar um þetta mál. Það var alveg ljóst á flokksþinginu að ég var þeirr- ar skoðunar að flokkurinn gæti ekki algjörlega snúið baki við því sem hann hafði verið að vinna að í fyrri ríkisstjórn. Við yrðum að hugsa til lengri tíma og við gætum ekki tekið afstöðu eftir því hvemig vindar blésu tímabundið í þjóðfélaginu. Ég er þeirrar skoðunar að ég hafi haft rétt fyrir mér. Ég tel að flestir sem líta á þessi mál í dag séu þeirrar skoðunar að það hafl verið nauðsynlegt fyrir íslendinga að fara þessa leið. Það var gert undir forystu Steingríms Her- mannssonar og hann ætti að vera stoltur af því.“ Var ekki áfiáð ur í að taka við formennsku i flokknum Pað kemur fram í bókinni að ein- mitt á þessu flokksþingi 1992 hafí stuðningsmenn þínir á Austurlandi reynt að draga úrfylgi við Steingrím í formannskjörinu með því að kjósa þigfrekar en hann. „Ég kannast ekkert við þetta og tel að eins og aðrir flokksmenn hafi Austfirðingar alltaf staðið þétt við bak Steingríms. Égstuddi Steingrím alltaf í formannskjöri og hvatti aðra til að gera það líka. Ég taldi nauðsyn- legt að menn sýndu samstöðu um for- ystuna. Þegar ég lít yfir kosningar á þessum flokksþingum þá kemur í Ijós að 1988 fékk Steingrímur Hermann- sson 97% atkvæða í formannskjöri, en ég 95,6% sem varaformaður. Arið 1990 fær Steingrímur 95,6% sem for- maður, en ég 94,3% sem varaformað- ur. En svo bregður við að þessar töl- ur okkar lækka nokkuð á flokks- þinginu 1992, en þá fær Steingrímur 87,7% atkvæða og ég 87,8% atkvæða. Ég tel nú þetta vera ágæta kosningu hjá báðum aðilum en ég tel þetta lýsa því að það hafi verið nokkur óánægja með það, af eðlilegum ástæðum, að forystumenn flokksins stæðu ekki al- veg saman um svo mikilvægt mál sem þetta á flokksþinginu. Ég tel að þessi atkvæðagreiðsla sé tákn um það en engan undirróður gegn Steingrími Hermannssyni." Steingrímur segir í þessum sama bókarkafla að hann hafí orðið„var við vaxandi óþreyju Halldórs að komast í formannsstól Framsóknarflokksins". Hann skrifar að í tengslum við um- ræðu um hugsanlega umsókn hans um stöðu bankastjóra í Seðlabankan- um hafí „óþolinmæði“ þín aukist og FRÉTTIR Menntamálaráðuneytið um niðurstöðu nýrrar könnunar Kostnaðarauki verði rakinn til ákvarðana sveitarfélaga Morgunblaðið/Golli að þegar hann síðan tilkynnti þér að hann ætlaði að hætta þátttöku í stjómmálum hafí „birt yfír“ þér. Hvað segir þú um þessi ummæli? „Mér þykja þau afskaplega undar- leg. Þegar við fórum í stjórnarand- stöðu 1991 hafði Steingrímur Her- mannsson verið mjög lengi í ríkisstjóm eða allt frá árinu 1978. Við í þingflokknum urðum fljótt vör við það að hann naut sín fremur illa í stjómarandstöðu. Hann kom ekki mikið í þingið og það var óánægja með það í þingflokknum. Ég taldi að við gætum í sjálfu sér afborið það. Ég reyndi að gera mitt besta til að fylla inn í það eins og menn verða að gera í samstarfi. Ég vissi ekki um fyrirætl- anir hans fyrr en hann kallaði á mig og tilkynnti mér að hann hygðist sækja um stöðu seðlabankastjóra, en hann var þá á sextugasta og sjötta aldursári. Ég man eftir því að hann ræddi um bág launakjör alþingismanna og að hann ræddi um að hann væri búinn að vera formaður flokksins um 15 ára skeið og að þarna fengi hann tæki- færi til að hverfa til annarra starfa.“ Pað kom fram í fjölmiðlum á þess- um tíma og á það er minnst í bókinni að þú hafír íhugað aðhætta þátttöku í stjómmálum. Erþetta rétt? „Mér er engin launung á því að á þessum ámm hugsaði ég um framtíð- ina og held að það sé afskaplega mannlegt. Ég var ekki sérlega áfjáð- ur í að taka að mér formennsku í Framsóknarflokknum. Mér var það Ijóst að fjárhagur flokksins var í rúst og að hann yrði fjárhagslega meira og minna lamaður næstu 10 árin vegna gífurlegs taps á NT og Tíman- um. Þannig að það var nú ekkert sér- staklega fýsilegt að taka þessa for- ystu að sér. Hins vegar þegar Steingrímur hafði tekið sína ákvörð- un var ég varaformaður og taldi ekk- ert annað að gera en að hella mér út í þetta. Um það var mikil samstaða og ég fékk mikla hvatningu frá félögum mínum. En ég reyndi á engan hátt að koma Steingrími frá. Ég leit svo á að hann vildi grípa þetta tækifæri, en á ævisögunni má skilja að hann hafi eftir á verið óánægður og ósáttur við það.“ Hvattir þú Steingrím aldrei til að sækja um stöðu seðlabankastjóra? „Nei, það gerði ég ekki.“ Vatn á myllu andstæðinga flokksins Eftir að Steingrímur hætti sem formaður hefur hann nokkmm sinn- um tjáð sig um viðkvæm pólitísk deilumál og m.a. gagnrýnt stefnu Framsóknarflokksins í umhverfís- og stóríðjumálum. Hvemig hefur þér þótt að berjast í þessum málum á sama tíma og Steingrímur tók undir málflutning þeirra sem voru þér ósammála? „Mér fannst þetta ómaklegt. Ég hef kynnst tveimur öðrum fyrrver- andi formönnum Framsóknarflokks- ins, Eysteini Jónssyni og Ólafi Jó- hannessyni. Mér var afkaplega vel kunnugt um það að þeir voru ekki alltaf ánægðir með okkar störf. Þeir settu ekki fram gagnrýni á opinber- um vettvangi vegna þess að þeir gerðu sér grein fyrir því hve brýn samstaðan var. Ég tel að þegar nýir menn taka við eigi þeir að bera ábyrgð á sínum flokkum. Ég tel mik- ilvægt að fyrrverandi formenn sýni því fullan skilning. Ég er ekki með því að segja að þeir megi hvergi koma nærri og það eigi að ganga eins langt og fyrirrennari minn Páll Þor- steinsson, fyrrverandi alþingimaður Framsóknarflokksins á Austurlandi, sagði eitt sinn við mig. Ég sagði ein- hverju sinni við hann. „Heyrðu Páll, þú ættir að líta stundum við hjá okk- ur niðri í þingi og spjalla við okkur.“ Hann svaraði: „Nei, ég er hættur.“ Þá sagði ég við hann: „Ja, Eysteinn gerir þetta nú oft. Hann kemur og fylgist vel með okkur.“ Þá svaraði Páll: „Það á hann ekki að gera.“ Ég er ekki að halda því fram að menn eigi að hlíta ráðum þessa mæta þingmanns Framsóknarflokksins, en það er alveg ljóst að það er tekið meira eftir gagnrýni fyrrverandi for- ystumanna en annarra í erfiðum og viðkvæmum málum. Það er afar auð- velt að nýta sér þá gagnrýni sjálfum sér til framdráttar og ég er alveg sannfærður um það að sú einkunn sem Steingrímur hefur verið að gefa okkur félögunum með ýmsum hætti hefur verið vatn á myllu andstæðinga flokksins." NIÐURSTÖÐUR könnunar á þró- un tekna og gjalda vegna reksturs- grunnskólans gefa til kynna að aukning á kostnaði sveitarfélaganna vegna grunnskólans verði rakin til ákvarðana sveitarfélaganna eftir að þau tóku alla ábyrgð á grunnskólan- um án þess að ríkið eigi þar hlut að máli, að því er fram kemur í skýrslu sem KMPG-endurskoðun hefur unnið og Bjöm Bjamason, menntamálaráðherra, kynnti í ríkis- stjóm. Endurskoðunin var gerð á vegum nefndar sem ráðherra skipaði og í sátu fulltrúar ríkis og sveitarfélaga. Nefndin hafði m.a. það verkefni að fylgjast með endurmati hlutlauss aðila á kostnaði vegna flutnings grunnskólans til sveitarfélaga. Við endurmatið vom tölulegar upplýs- ingar og útreikningar yfirfarin og sannreynd til að varpa ljósi á þróun tekna og gjalda sveitarfélaga vegna grunnskólans frá árinu 1996. Gjöld aukast hraðar en tekjur Samkvæmt niðurstöðunum var lítill munur á tekjum og útgjöldum sveitarfélaga vegna reksturs gronn- skóla á árunum 1996-1999. „Aukning hefur orðið bæði í telqum og gjöld- um, en gjöldin hafa þó vaxið hraðar. Tekjur sveitarfélaga voro umfram gjöld fyrri tvö árin, þ.e. á árinu 1996 um 273 m.kr. og á árinu 1997 um 238 m.kr. Breyting verður á síðari tvö árin. A árinu 1998 voro rekstrar- gjöld umfram tekjur 171 m.kr. en 625 m.kr. á árinu 1999. Á tímabilinu 1996 til 1999 fór kostnaður sveitar- félaga vegna reksturs grunnskóla samtals tæpum 300 miHjónum fram úr tekjum,“ segir í fréttatilkynningu ráðuneytisins um málið. Þá segir að mismunurinn á tekjum og gjöldum geti átt sér ýms- SAMBAND íslenskra sveitarfélaga hefur sent frá sér eftirfarandi frétta- tilkynningu: Á fulltrúaráðsfundi Sambands ís- lenskra sveitarfélaga, sem haldinn var föstudaginn 24. nóvember sl., var kynnt og tekin til umfjöllunar skýrsla KPMG um athugun á rekstr- arkostnaði grunnskóla og tekjum til að mæta þeim kostnaði. Skýrslan var unnin fyrir nefnd fulltrúa ríkis og sveitarfélaga sem starfað hefur sam- kvæmt ákvæði í samkomulagi ríkis og sveitarfélaga um yfirfærsluna frá árinu 1996 en þar var ákvæði þess efnis að á árinu 2000 yrði kostnaður og tekjuþörf endurmetin í ljósi reynslunnar. Nefndin ákvað að fá hlutlausan aðila til að sannreyna all- ar þær upplýsingar sem hún hafði undir höndum um þróun tekna og út- gjalda vegna reksturs gronnskólans á áronum 1996-1999 og fól KPMG það verkefni. Niðurstaða skýrslunnar um mismun heildartekna og heildargjalda í skýrslunni er komist að þeirri meginniðurstöðu að mismunur heild- artekna og heildargjalda hafi þróast með eftirfarandi hætti: Sjá töflu Samkvæmt því virðist heildar- kostnaður sveitarfélaganna vegna reksturs gronnskólans hafa farið ar orsakir. Launabreytingar hafi mikil áhrif enda laun stór hluti rekstrarkostnaðar. Sveitarfélögin hafi gert sameiginlega kjarasamn- inga við kennara 1997 auk þess sem þau gerðu hvert fyrir sig viðbótar- kjarasamninga við kennara á áron- um 1998 og 1999 um frekari launa- hækkanir. Frá 1996 til 1999 hafi tekjur sveit- arfélaga af útsvari aukist talsvert þar sem útsvarsstofn hefur hækkað umfram almenna verðlagsþróun. „Ekki er hægt að bera saman við- bótartekjur og viðbótargjöld vegna þeirra verkefna í rekstri gronnskól- ans sem sveitarfélögin tóku yfir með samkomulagi við ríkið á árinu 1996. Ástæðan er sú að í bókhaldi sveitar- félaga er ekki greint á milli þeirra verkefna sem yfirtekin voro frá rík- inu í ágúst 1996 og annarra verk- efna vegna gronnskólans sem sveit- arfélögin höfðu með höndum. Fyrir gerð samkomulagsins 1996 var hlut- deild sveitarfélaga í rekstrarkostn- 1996 1997 1998 1999 Tekjurum- 273 238 fram gjöld (Gjöld um- (171) (625) fram tekjur) tæplega 300 millj. kr. fram úr tekjum á þessum fjórom árom. Tekjumar ero nokkru hærri en útgjöldin fyrri tvö árin en síðari tvö árin ero út- gjöldin hærri en tekjumar. Skýringar á kostnaðarauka Skýringuna á kostnaðarauka síð- ari tvö árin má fyrst og fremst rekja til þeirrar launaþróunar sem átti sér stað í þjóðfélaginu á því tímabili en um 70% af rekstrarkostnaði gronn- skólans eru laun og launatengd gjöld. Sveitarfélögin hafa ekki leitt þá launaþróun sem orðið hefur í þjóðfélaginu sl. þrjú ár. Þegar hún er skoðuð kemur í ljós að á tímabilinu frá ársbyrjun 1997 til ársloka 1999 hafa launahækkanir til kennara, að meðtöldum öllum viðbótarsamning- um, verið svipaðar og meðaltal launahækkana BHM en mun minni en launahækkanir hjúkrunarfræð- inga en ríkið ber alla ábyrgð á kjara- samningum við þessa tvo starfshópa. Auk þess hafa margvíslegar nýjung- ar í grunnskólastarfi, fækkun í bekkjardeildum og ýmis önnur verk- efni umfram lögskyldur haft í för aði gronnskólans um þriðjungur á móti tveimur þriðju hlutum ríkis- ins,“ segir ennfremur. Áhrif aðalnámskrár ekki komin fram Þá segir að endurskoðunarskýrsl- an gefi til kynna að kostnaðaráhrif nýrrar aðalnámskrár gronnskóla séu tæpast komin fram svo neinu nemi í rekstrarkostnaði ársins 1999, eins og haldið hafi verið fram en námskráin tók gildi það ár. „Þá kemur einnig fram í skýrslunni að sé um viðbótarkostnað að ræða fyrir sveitarfélög vegna úrskurða menntamálaráðuneytisins um fjölda kennsludaga og kennslustunda þá ætti sá viðbótarkostnaður nú þegar að hafa komið fram í reikningum sveitarfélaga og gæti að einhveiju leyti skýrt mismun tekna og gjalda,“ segir ennfremur í tilkynningu ráðuneytisins en skýrslan er í heild birt á heimasíðunni www.mm.stjr.is með sér kostnaðarauka fyrir sveitar- félögin. Þessi niðurstaða staðfestir þann metnað sem sveitarfélögin hafa sýnt í málefnum gronnskólans og það mikla uppbyggingarstarf sem þau hafa unnið í grunnskólanum frá því að þau tóku við öllum rekstri hans á árinu 1996. Ný aðalnámsskrá og úrskurðir í athugun KPMG er ekki lagt mat á þann kostnaðarauka sem orðið hef- ur og mun verða vegna úrskurða menntamálaráðuneytisins á árinu 1997 um vikulegan fjölda kennslu- stunda og kennsludaga og gildistöku nýrrar aðalnámsskrár á árinu 1999. í úttekt sem gerð var á vegum Sam- bands íslenskra sveitarfélaga er reiknað með að þessi kostnaðarauki geti árlega numið um 400 millj. kr. þegar þau eru að fullu komin til framkvæmda. Um þann kostnaðar- auka þurfa ríki og sveitarfélög að semja sín í milli. Það er almennt viðurkennt að yfir- færsla alls reksturs gronnskólans ft-á ríki til sveitarfélaga hafi tekist vel. Faglegt starf gronnskólans og fjárhagslegar forsendur í rekstri hans ero stöðugt til umfjöllunar á vettvangi sveitarfélaganna og afar mikilvægt er að ríki, sveitarfélög, skólastjómendur, kennarar og for- eldrar hafi með sér gott samstarf um málefni gronnskólans. Yfirfærsla á rekstri grunn- skólans hefur tekist vel

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.