Morgunblaðið - 26.11.2000, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 26.11.2000, Qupperneq 16
16 SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2000 MOROUNBLAÐIÐ IÞROTTIR GOLFSAMBAND íslands, GSÍ, hélt á dögunum golfmót á ír- landi í samvinnu við ferðamála- ráð írlands og ferðaskrifstofuna Samvinnuferðir-Landsýn. Mótið fór fram á Druids Glen-golfvell- inum sem er í hálftíma aksturs- fjarlægð suður af höfuðborginni Dublin. Þrjú lið skipuð sex ís- lenskum kylfingum áttust við í liðakeppni sunnudaginn 29. október og má með sanni segja að formlegur endir á íslensku golfvertíðinni árið 2000 hafi verið eftirminnilegur - enda ekki á hverjum degi sem leikið er í svartamyrkri á íslensku golfmóti. Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar Druids Glen-golfvöllurinn í Wicklow-sýslu er aðeins kornabarn í samanburði við marga aðra fræga golfvelli á Bretlandseyjum enda aðeins fimm ár síðan völlurinn var formlega opnaður. Stærsti árlegi golfviðburðurinn á íriandi, Opna írska golfmótið, var haldið á vellinum fjögur ár í röð og það fyrsta var aðeins einu ári eftir formlega opnun vallarins. Atvinnukylfingar á evrópsku mótaröðinni völdu hinn 6.300 metra langa Druids Glen sem besta golf- völlinn sem leikið var á í mótaröð- inni árið 1999 og aðstandendum vallarins þykir það mikil viðurkenn- ing á gæðum hans. Klúbbhúsið er gamalt herrasetur, reist árið 1760, og hálfri öld síðar var setrið stækk- að töluvert en í dag er aðstaðan fyr- ir kylfinga og aðra gesti klúbbsins fyrsta flokks. Frábrugðinn öðrum golfvöllum á írlandi Aðalhönnuðir vallarins eru þeir Pat Ruddy og Tom Craddock og margir sem komið hafa á völlinn hafa sagt að Druids Glen sé nokk- urs konar „Augusta-völlur Evrópu“ enda eru margar holur vallarins einstakt augnayndi. Margbreytileg- ur trjágróður í fjölbreyttu landslagi gerir að verkum að Druids Glen er mjög ólíkur dæmigerðum „Links- velli“ eða strandvelli á Bretlands- eyjum. íslensku keppendurna skorti oft lýsingarorð er þeir léku á vellinum og aðeins Björgvin Sigur- bergsson hafði leikið völlinn áður. Það vakti athygli blaðamanns og annarra sem með voru í för að ástand vallarins í lok október var eins og um hásumar á Islandi. Þrátt fyrir mikla úrkomu dagana fyrir mótið var völlurinn þokkalega þurr og að sjálfsögðu höfðu flatir og brautir verið slegnar fyrr um daginn. Ljósmynd/Páll Ketilsson Druids Glen er engum líkur Kolbrún Sól Ingólfsdóttir slær hér af 8. teig Druids Glen. Brautin er par 3, um 130 metra löng og þarf að slá yfir vatn til að ná inn á flötina. Ragnhildur Sigurð- ardóttir fylgist vel með tilburðum Kolbrúnar og við flötina grillir í íslenska sjónvarpsupptökumenn. íslensku kylfingarnir létu stormasamt veður á írlandi ekki aftra sér frá því að leika á einum af athyglisverðustu golfvöllum Evrópu, Druids Glen. Hóp- inn skipuðu þau: Björgvin Sigurbergsson (GK), Kolbrún Sól Ingólfsdóttir (GK), Ragnhildur Sigurðardóttir (GR), Ottó Sigurðsson (GKG), Herborg Arn- arsdóttir (GR) og Tryggvi Pétursson (GR). Tóku áhættu í upphafshöggunum Fyrirkomulag keppninnar var með þeim hætti að Kolbrún Sól Ingólfsdóttir (GK) og íslands- meistarinn Björgvin Sigurbergsson (GK) skipuðu eitt lið af þremur. Ragnhildur Sigurðardóttir (GR) og Ottó Sigurðsson (GKG) léku saman og þriðja liðið var skipað GR-félög- unum Tryggva Péturssyni og Her- borgu Arnardóttur. Liðin þrjú kepptu um 500 þúsund króna pen- ingaupphæð en keppendur fengu ekkert í sinn hlut þar sem féð var eymamerkt unglingastarfi GSI. Allir keppendurnir slógu upp- hafshögg en liðin þurftu síðan að velja hvaða bolta ætti að leika í framhaldinu eftir upphafshöggin og slógu þá til skiptis þar til holunni var lokið. Keppnisfyrirkomulagið gerði það að verkum að liðin gátu tekið meiri áhættu í öðru upphafs- högginu og leikið hinu af meira ör- yggi ef þess þurfti. Þar sem um holukeppni var að ræða gátu liðin tekið upp boltann sinn ef illa gekk á einstökum holum og ekki lengur möguleiki á að vinna holuna. Er líða tók á keppnina var ljóst að þau Ragnhildur og Ottó stóðu best að vígi fyrir lokaátökin en Herborg og Tryggvi gátu sett strik í reikninginn. Aðaláhyggjuefni þeirra sem að mótinu stóðu var dagsbirtan, en breyting yfir á vetr- artíma daginn áður gerði það að verkum að það dimmdi mun fyrr en reiknað hafði verið með. Eftir 9 hol- ur var brugðið á það ráð að flýta leik og 10. og 11. holan aðeins skoð- aðar úr fjarlægð og farið var beint á 12. teig og haldið áfram að leika í fínu veðri. Svartamyrkur - en „vitinn“ lýsti keppendum leið Á 16. holu var ljóst að dagsbirt- unnar myndi ekki njóta við miklu lengur. Menn urðu áhyggjufullir þar sem sjónvarpsupptakan var í fullum gangi en kylfingarnir sex höfðu minni áhyggjur af því og héldu ótrauðir áfram. Lokahola vallarins er mikið augnayndi og hið glæsilega klúbbhús stóð eins og upplýstur viti við 18. flötina en það veitti ekki af birtunni. Fljóðljósin voru ekki fyrir hendi á Druids Glen en þrátt fyrir það fundu allir kepp- endurnir upphafshögg sín með góðri hjálp frá aðstoðar- og fylgd- armönnum. Höggin inn á flötina gengu furðulega vel miðað við að- stæður - svartamyrkur - og á 18. flötinni réðust úrslit mótsins. Ragn- hildur og Ottó sigruðu eftir nokkuð harða keppni við Herborgu og Tryggva, en Kristín Sól og Björg- vin áttu ekki lengur möguleika er komið var að 18. teig. Keppendur voru mjög ánægðir með ógleyman- legt mót, völlurinn er hreint út sagt stórkostlegur en er ekki hannaður fyrir golfleik í myrkri.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.