Morgunblaðið - 26.11.2000, Page 20

Morgunblaðið - 26.11.2000, Page 20
20 SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2000 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Jón Viðar Jónsson verður með kynningar á verkum Jóhanns Sigurjónssonar í Lista- klúbbi Þjóðleikhússins næstu tvö mánu- dagskvöld. Hann ræðir hér við Súsönnu Svavarsdóttur um kynningarnar. TVÆR dagskrár helgaðar verkum Jóhanns Sigurjónssonar verða í Listaklúbbi Leikhúskjallarans mánudagskvöldin 27. nóvember og 4. desember. Dagskrárnar eru í til- efni af fimmtíu ára afmæli Þjóð- leikhússins og hefjast klukkan 20.30 bæði kvöldin. Umsjónarmað- ur er Jón Viðar Jónsson og leik- stjórn er í höndum Ingu Bjarna- son. í fyrri dagskránni verður fjallað um fyrstu skref Jóhanns á braut leikskáldsins en síðari dagskráin verður helguð Fjalla-Eyvindi sem er núkominn út hjá JPV-forlagi í nýrri gerð sem Jón Viðar Jónsson hefur unnið með hliðsjón af loka- gerð verksins á dönsku. Skugginn er leikrit sem Jóhann Sigurjónsson samdi á dönsku ung- ur að árum í Kaupmannahöfn og hefur aldrei verið þýtt á íslensku eða flutt opinberlega. Síðasta syning í kvöld Islenski dansflokkurmn Morgunblaðið/Þorkell Dr. Jón Viðar Jónsson ásamt Ingu Bjarnason, leikstjóra, og leikurunum Sigurði Skúlasyni, Gunnari Gunnsteinssyni, Hinriki Ólafssyni, Sveini Þ. Geirs- syni, Guðrúnu Stephensen og Vigdísi Gunnarsdóttur. Á myndina vantar Erlu Ruth Harðardóttur og Sigurð Karlsson. Ný, íslensk sjónvarpsmynd Nýstárleg tilraun fyr- ir sjónvarp og útvarp FRUMSÝND verður í kvöld ný ís- lensk leikin heimildarmynd er nefnist „Þá yrði líklega farin af mér feimni“. Leikstjóri og handritshöfundur er María Kristjánsdóttir. Verkið er liðm- í verkefnaskrá Reykjavíkur - menn- ingarborgar Evrópu 2000 og er unnið í samvinnu Sjónvarpsins og Útvarps- leikhússsins er verður flutt samtímis í kvöld í Sjónvarpinu á Rás 1. Þar segir frá Jóhönnu, ungum dagskrárgerðar- manni, sem er á höttunum eftir konu aldarinnar á götum Reykjavíkur. Er meðal annars byggt á dagbókum Elku Bjömsdóttur verkakonu og textum Málfríðar Einarsdóttur rit- höfundar. Að sögn Maríu Kristjáns- dóttur er þetta tilraun til að semja verk sem hæfir bæði útvarpi og sjón- varpi. „Upphaflega átti þetta að vera saga fjögurra kvenna og hvemig kon- ur nái máli í Reykjavík á 20. öldinni. Vægi þeirra fjögurra breyttist eftir því sem handritsgerðinni fleygði fram og ídagbókum verkakonunnar Elku Bjömsdóttur varð það æ meira. Verkið gerist í nútímanum en farið er aftur í tímann með notkun á gömlu myndefni og rituðum heimildum,“ segir María. I aðalhlutverkum em Marta Nor- dal, Halldóra Geirharðsdóttir, Krist- björg Kjeld og Stefán Jónsson. Dramatúrg er Bjami Jónsson og tón- list samdi Margrét Ömólfsdóttir. Hljóðupptaka var í höndum Georgs Magnússonar og kvikmyndatöku- maður var Sigurður Sverrir Pálsson. w** i Inga Bjai-nason og Dr. Jón Viðar. Jón Viðar segir það þó mjög áhugaverðan áfanga á skáldbraut Jóhanns. „Þetta er fyrsta leikrit Jóhanns Sigurjónssonar í fullri lengd sem varðveitt er,“ segir hann, „og sýnir að hann hefur snemma verið heill- aður af þessu listformi og reynt að tileinka sér lögmál þess. Verkið er samið undir sterkum áhrifum frá Ibsen sem er frægasta leikskáld heims á þessum tíma.“ Tímamótamaður í íslenskum bókmenntum Hvenær skrifaði Jóhann þetta verk? „Það er ekki vitað nákvæmlega hvenær hann skrifaði það en það hefur verið á fyrstu árunum í Kaupmannahöfn, ég myndi telja 1902 eða 1903. Þá er hann búinn að taka þessa ákvörðun sem gerir hann að tímamótamanni í íslensk- um bókmenntum - ekki bara leik- bókmenntum - að gerast skáld. Það sem er merkilegt við þetta leikrit er að þarna koma fram ýmis þemu og minni sem hann á eftir að vinna úr í stóru verkunum sínum, til dæmis Fjalla-Eyvindi en þó einkum í Galdra-Lofti. Leikritið fjallar um mann sem er á flótta undan fortíð sinni - sem er þessi skuggi sem hann er að reyna að forðast en eltir hann uppi. Þetta er verk sem er samið af skáldi með fremur litla lífsreynslu og ber þess merki á ýmsan hátt en það er engu að síður ljóst að það eru ákveðnar spurningar, ákveðin hugarfóstur, sem leita sterkt á Jóhann og hann er að glíma við. Halldór Laxness sagði um skáld að það væri eins og þau fengju eitthvert gallerí af pers- ónum að gjöf og það er greinilegt að það hefur átt við um Jóhann, því þarna koma fram persónur sem eiga sér hliðstæðu í hans stóru karakterum, eins og Höllu, Lofti og Steinunni. Jóhann var mjög leitandi á þess- um árum, bæði í trúarlegum og sið- ferðislegum efnum. Hann hafði glatað þessari einföldu barnatrú sem hann var alinn upp við og tek- inn að sökkva sér niður í alls konar heimspekinga sem þá voru nýmóð- ins, ekki síst Nietsche." Endanlega gerðin aldrei verið flutt hér á landi Seinni dagskráin sem verður flutt 4. desember, er tileinkuð nýrri útgáfu á Fjalla-Eyvindi og er hér um tímamótaútgáfu að ræða að því leyti að þarna kemur í fyrsta skipti á prenti ný gerð verksins sem tekur mið af hinni dönsku lokagerð. „Verkið kemur fyrst út á dönsku 1911 og ári síðar á íslensku," segir Jón. „Þessar tvær gerðir eru nokkurn veginn samhljóða. Hálfu ári eftir að leikritið kom út á dönsku var það frumflutt í Dagmar leikhúsinu í Kaupmannahöfn og fyrir þá sýningu voru gerðar ýmsar breytingar á hinum prentaða texta, hann styttur verulega og ákveðn- um efnisatriðum breytt. Þegar verkið er aftur prentað á dönsku 1913 og síðan einnig 1917, þá er þessum breytingum haldið þar inni. Þessar útgáfur sýna því loka- gerð textans frá hendi Jóhanns. Leikritið hefur þrisvar sinnum komið út á íslensku eftir þetta og þær útgáfur fylgja allar nákvæm- lega íslensku frumprentuninni frá 1911 - sem er einfaldlega ekki rétt- ur texti. Það var því löngu orðið tímabært að gefa verkið út í endur- skoðaðri gerð. Við leiklesum kafla úr þessari gerð í Listaklúbbnum og það má kannski segja að með þess- ari útgáfu sé Fjalla-Eyvindur loks- ins kominn heim úr útlegð." • ÚT er komin bókin Adda trúlof- ast eftir Jennu og Hreiðar Stefáns- son. í fréttatilkynningu segir: „Þetta er síðasta bókin um Öddu. Adda stendur nú á mörkum æsku og fullorðinsára. Hún er langt komin með menntaskóla- námið en í sumar- leyfinu starfar hún á sjúkrahús- inu í heimabyggð sinni. Margt gerist í lífi hennar og hún kynnist ýmsum hliðum mannlífsins í sorg og gleði. í bókai'lok verða tímamót í lífi Öddu; hún lýkur menntaskólanum, kveður bernskuheimili sitt og heldur vong- löð til fundar við framtíðina með þeim ástvini sem hún hefur valið sér. Öddu-bækurnar eru meðal vinsæl- ustu barna- og unglingabóka sem út hafa komið á Islandi og eru fyrir löngu orðnar sígildar. Þær segja heillandi sögu ungrar stúlku en um leið er brugðið upp forvitnilegri mynd af íslensku samfélagi um mið- bik 20. aldar.“ Útgefandi er Skjaidborg ehf. Bók- in er!02 bls. Verð: 1.980krónur. -----*-+-*--- Nýjar bækur Marta Nordal og Ilalldóra Geir- harðsdóttir í „Þá verður farin af mér feimni". Fjalla-Ey- vindur heim úr útlegð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.