Morgunblaðið - 26.11.2000, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 26.11.2000, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2000 39 MINNINGAR MARIA INDRIÐADÓTTIR + María Indriða- dóttir fæddist á Bimingsstöðum í Ljósavatnsskarði 23. mars 1922. Hún lést á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri 12. nóvember sl. Ut- for Maríu fór fram frá Ljósavatnskirkju fimmtudaginn 23. nóvember. Eftir að amma dó fyrir tæpum þremur árum hefm’ hugurinn æ oftar reikað til þessa dags er ég þyrfti að kveðja Mæju í Borgartúni í hinsta sinn. Amma dó eftir löng og ströng veikindi þegar ég var stödd úti í Kól- ombíu sem skiptiliði. Að sjálfsögðu var sorgin stór en svona fjarri heimahögum var eins og maður liði áfram í hálfgerðri móðu og viðskiln- aðurinn varð einhvern veginn létt- bærari. Erfiðast var þó að koma aft- ur heim þar sem amma var ekki lengur til staðar en eitt vissi maður og það var að Mæja væri hvergi farin og ef einhver gæti komið í ömmu stað þá væri það hún. í minni tilveru hafa Nóri og Mæja alltaf verið einn af föstu punktunum. Þangað var alltaf hægt að leita í hinu daglega amstri þegar allir voru svo tímabundnir að í raun gafst ekki tími til neins. Stundum á sumrin þegar ég kom heim af hótelinu eftir langa vakt vildi kannski ekki betur til en svo að enginn var heima og allar dyr læstar. Þá var ekki um annað að ræða en rölta niður eftir í hóteldressinu og leita á náðir Mæju og bíða þess að einhverjum þóknaðist að koma heim. í Borgartúni vai’ enginn að flýta sér. Það fyrsta sem birtist þegar maður beygði fyrir húshornið var Mæja sem veifaði góðlátlega úr eldhús- glugganum og með einhverjum undraverðum hætti var hún búin að setja að minnsta kosti fimm sortir á borðið þegar maður kom inn og átti enn eftir að bæta á. Þær voru ófáar sögurnar sem sagðar voru yfir eldhúsborðinu í Borgartúni. Ekkert fór framhjá Mæju og þarna voru tíunduð öll böll, partí, vinkonuvandræði og stráka- mál sem á döfinni voru í það skiptið, langt umíram það er t.d. foreldrar mínir fréttu nokkurn tíma um. En Mæja vissi upp á hár hvað var bara á milli okkar og hitt sem mátti lengra fara. Það var gott að tala við Mæju enda virtist kynslóðabilið ekki skipta þar neinu máli. Mæja var hrein og bein, var svo sem ekki að hlífa neinum en dæmdi engan svo að allir gengu jafnt til leiks. Eg veit að við vorum báðar búnar að hlakka til þegar ég kæmi heim núna fyrir jólin í ,jólafríið langa“ eins og Nóri kallaði það, en ég býst við að sögumar verði að bíða um sinn. Allt tekur enda og þó að við Mæja eigum ekki lengur eftir að ræða yf- ir eldhhúsborðinu þá mun minningin um góða tíma og góða konu lifa um ókomna tíð í okkur sem eftir sitjum. Mæja mín, ég veit að vel er tekið á móti þér þar sem þú ert nú og ég get séð fyrir mér þar sem þið amma hafði komið ykkur fyrir við eitthvert eldhúsborðið með spilastokkinn og þar mun ég finna ykkur þegar þar að kemur. Elsku Nóri minn og aðrir aðstan- dendur, Guð styrki ykkur á erfiðum tímum og um alla tíð. Anna María (Mímí). Elsku amma mín. Ég veit eigin- lega ekki hvernig ég á að byrja eða hvemig ég á að tjá allt sem mig lang- ar að segja. Þú varst eiginkona, móð- ir, tengdamóðir, amma og langamma og þú hafðir allt sem þarf til þess að vera þetta allt í senn. Þú varst góð, raunsæ, pínulítið þrjósk og ég á eftir að sakna þín alveg afskaplega mikið. Ég trúi því að nú sért þú komin á góðan stað þar sem þú getur haldið áfram að fylgjast með okkur vaxa úr grasi og að það sé kominn friður yfir þig og að þér líði vel. Megir þú hvíla í friði elsku amma mín. Vaki þú yfir mér er sef ég vært og rótt. Dreymi að ég sé með þér í alla nótt. Þín María Indriðadóttir. t Utför bróður míns og mágs okkar, GÍSLA PÉTURS ÓLAFSSONAR, Nóatúni 25, Reykjavik, verður gerð frá Háteigskirkju miðvikudaginn 29. nóvember kl. 13.30. Jarðarförin fer fram frá Viðvíkurkirkju í Skaga- firði laugardaginn 2. desember kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Margrét Ólafsdóttir, Herjólfur Sveinsson, Óskar K. Ólafsson. t Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna fráfalls elskulegrar móður, tengdamóður og ömmu, ARNBJARGAR EYSTEINSDÓTTUR, Vesturvallagötu 1, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. Jóhanna Sigríður Sigurðardóttir, Baldvin Þór Grétarsson, Júlía Baldvinsdóttir, Arnbjörg Baldvinsdóttir. t Æ Frágangur afmælis’ ogminning- argreina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskl- ingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (5691115) og í tölvupósti (minning- @mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fyigí- Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðu- grein af hæfilegri lengd, en aðr- ar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfi- lega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blað- inu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú er- indi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir grein- unum. Hjartanlega þökkum við öllum, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs föður okkar, fósturföður, tengda- föður, afa og langafa, AÐALSTEINS JÓNSSONAR fyrrv. bónda og oddvita, Ormsstöðum, Norðfirði. Guð blessi ykkur. Hulda A. Scheving, Garðar Scheving, Jón Þór Aðalsteinsson, Magnea Móberg Jónsdóttir, Aðalheiður Aðalsteinsdóttir, Finnur Malmquist, Jakob Sigfinnsson, barnabörn og langafabörn. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð vinarhug vegna fráfalls okkar ástkæra HELGA ARNAR FREDERIKSEN. Ester Elín Bjarnadóttir, Oddný Hanna Helgadóttir, Eiva Ösp Helgadóttir, Elín Eyvindsdóttir, Alfred Frederiksen, Sigurður Alfredson, Guðbjörg Guðmundsdóttir, Bjarni Jón Matthíasson, Guðbjörg Beck, Páll Beck. + Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu vegna andláts og útfarar móður okkar, tengdamóður, ömmu og systur, STEFANÍU Þ. ÁRNADÓTTUR, Ægisíðu 46, Reykjavik. Guðrún Inga Bjarnadóttir, Árni Þór Bjarnason, Ásdís A. Þorsteinsdóttir, Gunnar Viðar Bjarnason, María Elíasdóttir, Birgir Sveinn Bjarnason, Kristín Porter, Stefán Bragi Bjarnason, Iðunn Bragadóttir, barnabörn og systur. + Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför ástkærs eiginmanns mins, föður okkar, tengdaföður og afa, ELÍASAR ARNLAUGSSONAR. Gyða Guðnadóttir, Erna Elíasdóttir, Guðrún Elíasdóttir, Ingvar Elíasson, Guðni Elíasson, Rósa Þórey Elíasdóttir, Davíð Sigurðsson, Helga Guðný Sigurðardóttir, Jón Haukur Ingvason, barnabörn og barnabarnabarn. Gunnar E. Hubner, Sigríður J. Sigurðardóttir, Álfhildur Guðbjartsdóttir, Þorbjörg Yngvadóttir, + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall eiginmanns, föður okkar, tengdaföður og afa, ÁRNA GUÐMUNDSSONAR frá Vestmannaeyjum, Reynigrund 81, Kópavogi. Sérstakar þakkir til Karítas-hjúkrunarþjón- ustunnar og liknardeildar Landspítalans fyrir kærleiksríka umönnun. Jóna Bergþóra Hannesdóttir, Steinar Vilberg Árnason, Guðrún Norðfjörð, Þyri Kap Árnadóttir, Trausti Leósson, Jón Atli Árnason, Salvör Jónsdóttir og barnabörn. Blómaskreytingar við öll tilefni Opið til kl. 19 öll kvöld Blómastofa Friófinns, Suðurlandsbraut 10, sírai 553 1099, fax 568 4499. LEGSTEINAR . Komið og skoðið í sýningarsal okkar eða fáið sendan myndalista MOSAIK Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík sími: 587 1960, fax: 587 1986
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.