Morgunblaðið - 26.11.2000, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 26.11.2000, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2000 41 Kanada um þessar mundir séu að hluta ávöxtur þess starfs, sem Jón Asgeirsson átti hvað mestan þátt í að vinna síðustu áratugi. Þar var hann mikill, ötull og óþreytandi brúarsmiður. Bjami Sigtryggsson, Kaupmannahöfn. Vestur við Haga, þar sem nú er Einimelur í Reykjavík, hafði Eim- skip vöruskemmur og þar fengu stundum skólastrákar sumarvinnu innan um verkakarlana og um leið uppeldi vinnu, aga og erfiðis. Oft var það dýrmætari skóli en skólinn sjálfur og þar kynntist ég Jóni Ás- geirssyni fyrst, sautján ára lífsglöð- um og skemmtilegum strák, sem ekki lá á liði sínu. Um þetta leyti var Jón orðinn aðalmarkvörður Þróttar í knatt- spyrnu og vakti mikla athygli sem góður efniviður í afreksmann. Á þeim vettvangi sem mörgum öðrum á lífsleiðinni lagði Jón skóna of fljótt á hilluna. Hugur hans stefndi annað. Hann lagði stund á sjúkraþjálfun en varð frægastur fyrir að verða eftirmaður Sigurðar Sigurðssonar sem íþróttafréttari- tari ríkisútvarpsins. Þar fór Jón á kostum og naut sín vel og reyndar var hann alla tíð ákaflega geðþekk- ur útvarpsmaður í hverju sem hann tók sér fyrir hendur. Þegar ég tók við formennsku hjá Knattspyrnusambandi Islands réð ég Jón til starfa á skrifstofunni og þar áttum við margar glaðar og góð- ar stundir en eins og áður og seinna á æviskeiði sínu var ókyrrð í Jóni, hann hafði hugmyndir og áhuga á öðrum verkefnum, án þess að ílengj- ast nokkru sinni í neinu þeirra. Sú árátta var hans lífsstíll en um leið akkilesarhæll. Honum var aldrei vært og var þó hvers manns hugljúfi og skemmtilegt kompaní. Hafði gamansögur og hnyttin tilsvör á hraðbergi, góða kímnigáfu, einlæg- ur og áhugasamur um atburði líð- andi stundar. Einn allra skemmti- legasti maður sem ég hef kynnst. Jón starfaði í Kanada að þjóð- ræknimálum Vestur-íslendinga, rak þjónustu fyrir ráðstefnur og hverskonar mannamót, hélt áfram að standa að útvarpsþáttum og léði Rauða krossinum starfskrafta sína um hríð. Kom víða við. Alltaf var hann þó áhugasamur um íþróttir og sat í ýmsum ráðum og stjórnum, var m.a. formaður Handknattleikssambandsins í eitt ár og sínu gamla félagi, Þrótti, var hann haukur í horni. Jón Ásgeirsson var léttstígur og léttlyndur, þrátt fyrir andstreymi á stundum, sem hann hélt leyndu fyr- ir samferðamönnum sínum flestum. Á yfirborðinu var hann glaðvær, hláturmildur og hrókur alls fagnað- ar. En undir niðri viðkvæm sál og brothætt. Vinátta hans var traust, sem og viðmót hans og viðkynning. Jón gerði alltaf gott úr öllu, skoðaði já- kvæðu hliðarnar og var upplífgandi samstarfsmaður og félagi. Persónuleiki Jóns, kurteisi, herramennska og glaðværð voru hans sterku hliðar. Reikul spor á hverfanda hveli voru veikleikar hans. Við fráfall Jóns minnast vinir hans og félagar þess besta úr fari hans. Gleðigjafans. Það er sjónar- sviptir að svo góðum manni. Ellert B. Schram. Enginn veit hver annan grefur. Enn fækkar í hópnum, sem starfaði á fréttastofu Ríkisútvarpsins liðug- an áratug eftir 1960. Jón Ásgeirsson er nú kominn yfir til þeirra mikil- hæfu snillinga, sem við fengum að vera samferða í nokkur ár, manna, sem kenndu okkur svo margt og voru ósparir á þekkingu sína og reynslu og stóðu við bak nýliðanna eins og þeir ættu í þeim hvert bein. Dauðinn var fjarlægur á þessum ár- um. Við ræddum meira um lífið og góðar gjafir þess. En tíminn tekur heljarstökk og árin hverfa á bak við okkur með hraða, sem engin skýr- ing fæst á. Þau bara hverfa og vin- irnir með. Flestar gömlu kempurn- ar eru horfnar - og nú Jón Ásgeirsson. I bókinni „Komiði sæl“ þar sem Vilhelm G. Kristinsson ritar frásögn Sigurðar Sigurðssonar íþrótta- fréttamanns er prýðisgóð lýsing á fréttastofunni, sem við Jón Ásgeirs- son vorum svo lánsamir að fá að kynnast: „Samstarfið á fréttastof- unni byggist á samningum manna á milli. Þar sitja menn nánast hver of- an á öðrum. Oft er hávaðinn ærandi þegar allt er í fullum gangi. Menn eru með nefið hver ofan í annars koppi og samskiptin verða náin. Fréttamenn útvarps tengjast sterk- um böndum. Þegar stórir atburðir gerast smellur allt saman eins og púsluspil. Hópurinn verður að ein- um manni.“ Á þessum sérstaka vinnustað vor- um við Jón Ásgeirsson saman um nokkurra ára skeið. Það var góður og skemmtilegur tími, enda öll leið- indin löngu gleymd. Jón var ein- staklega ljúfur félagi, mikill gleði- gjafi, vinsæll og vel látinn. Honum var margt til lista lagt; hann skrifaði almennar fréttir, var virkur íþrótta- fréttamaður og án efa muna margir lýsingar hans á kappleikjum. Mér er þó minnisstæðast góða skapið hans. Ég og félagar mínir á frétta- stofunni löðuðumst að honum og sóttumst eftir nærveru hans. Hann hafði góða frásagnargáfu og gladdi okkur með skemmtilegum sögum af mönnum og atburðum. Aldrei meið- andi eða særandi; sá bara hið skop- lega í umhverfinu og mannlífinu betur en flestir aðrir. Eg gæfi mikið fyrir endurtekningu margra þeirra stunda, sem við áttum á kaffistof- unni á 4. hæð í húsinu á Skúlagötu 4. En sumar þeirra eru til í minning- unni og þar situr Jón glaðbeittur á svipinn með tindrandi augu og vek- ur hlátur og gleði með hnyttnum at- hugasemdum og ummælum. Þama bundust margir vináttu- böndum, sem ekki hafa slitnað, þótt höf, lönd og breytingar á högum manna hafi skilið þá að um langt árabil. Úr þessum hópi hefur allra verið sárt saknað við brottför, eink- um þeirra, sem við töldum að myndu fremur fylgja okkur, sem eftir lifum, til grafar. En hinar und- arlegu og óskiljanlegu leikfléttur lífsins taka af okkur öll völd og getu til að skyggnast á bak við tjöld morgundagsins. Og nú er þessi góði vinur og félagi farinn. Oft liðu mörg ár án þess að leiðir okkar lægju saman, en þegar við hittumst varð tíminn afstæður; ekkert hafði breyst. Hann hefði eins getað hafa brugðið sér í viðtal eða á blaðamannafund. Hress að vanda, ljúfur, kátur og kunni margar nýjar sögur. En nú er ferðin kannski eitt- hvað lengri, enginn veit. Við sem kynntumst Jóni í höll gömlu Guf- unnar söknum góðs vinar og félaga. Um hann á ég bara góðar minning- ar. Árni Gunnarsson. 9 Fleiri minningargreinar um Jón Ásgeirsson bíða birtingar ogmunu birtast í blaðinu næstu daga. Opið hús f dag frá M. 14.00-16.00 Þinghólsbraut 54 - Vesturbær Kópav. Frábæriega staðsett ca 90 fm 4ra herbergja íbúð á 2. hæð með frábæru útsýni. Góð stofa með parketi, rúmgott eldhús, 3 góð svefnherbergi, ný- standsett baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf. Svalir í suður með glæsilegu útsýni. Verð 10,2 millj. (510) Athugið! Útsýnið úr þessari íbúð er sérstaklega glæsilegt. Birgir Birgisson tekur vel á móti gestum frá kl. 14.00 til 16.00. HÓLL FASTEIGNASALA, Skúlagötu 17, sími 595 9000 LUNDUR F A S T E I G SÍMII 533 1616 SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F/OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK Jóhannes Áegeirsson hdl., lögg. íasteignasah N A S A L A FAX 533 1617 Opið hús í dag frá kl. 12 ti!14 Bólstaðarhlíð 68 1. hæð Höfum í einkasölu rúmgóða 2ja herb. íbúð á 1. hæð fyrir miðju í vel staðsettu stigahúsi. Nýlegt parket. Vestursvalir. Verð 8,2 m. íbúðin er til sýnis i dag milli kl. 12-14. Drápuhlíð, 2 hæð Vorum að fá í einkasölu 4ra herb. 113,7 fm íbúð á 2. hæð í fjór- | býli. Verð 13,3. \* Opið hús Bárugata 34, 2. hæð og ris Vorum að fá í sölu stórglæsilega og mikið endurnýjaða efri hæð og ris í þessu fallega húsi. Búið er að endurnýja gler, glugga og innréttingu í eldhúsi. Parket á 'M gólfum. (búðin skiptist m.a. í þrjú svefnherbergi og þrjár stof- ur. Þetta er eign sem þú mátt ekki missa af. Áhv. 6,3 millj. Verð tilboð Marteinn býður ykkur velkomin l á milli kl. 14 og 16. Suðurlandsbraut 20, sími 533 6050, www.hofdi.is E I G N AVA L SUQURLANGSBRAUT s(m| 5S5 9339 IFÉLAS FASTEIGNABALA 16 • ÍOS reykjavIk FAX 5S5 9 9 9 B Atvinnuhúsnæði AUÐBREKKA - KÓP. Húsnæðiö er á einni hæð (0201) ásamt tveimur milliloftum. Eignin skiptist í móttöku, tvö skrifstofu- herbergi, tvær snyrtingar, eldhús, stóran sal, milliloft með tveimur skrifstofum. Annað milliloftið er með einni skrifstofu. Verð tilboð. WWW.EIGNAVAL.IS OPIÐ HUS 26. NOVEMBER HLAÐBREKKA 8 - EFRI SÉRHÆÐ - LAUS STRAX Nýkomin í sölu 86 fm 3-4ra herb. íbúð á efri hæð í tvíbýli með sérinn- gangi og 33 fm fullbúnum sérstæð- um bílskúr. Ný innrétting í eldhúsi og baði. Þak nýmálað. Vestursvalir. Húsið er staðsett neðan götu á stórri lóð. Áhv. 4,8 millj. byggsj. og húsbréf. Verð 11,6 millj. Þórhildur og Níels taka á móti ykkur í dag á milli kl. 14.00 og 17.00. FLÉTTURIMI 1 - MEÐ SÉRGARÐI - LAUS FLJÓTLEGA Nýkomin í sölu afar glæsileg 100 fm 3ja-4ra herb. íbúð á 1. hæð ásamt stæði í bílskýli. Glæsilegar innrétt- ingar og dökkt mahóní-parket á öll- um gólfum nema baði. Sérþv.hús inn af eldhúsi. Baðherbergi flísalagt. Hús í góðu standi utan sem innan. Áhv. 6,5 milij. Verð 12,9 millj. Anna tekur á móti ykkur í dag á miili kl. 14.00 og 16.00 FASTEIGNASALAN GIMLI, ÞORSGOTU 26, FAX 552 0421, SIMI 552 5099 Helgubraut 5 - Kópavogi Stórglæsilegt endaraðhús, 159,8 fm, í vesturbæ Kópavogs. Dökkt olíu- borið parket á gólfum og náttúruflís- ar. Eldhús er með fallegri innrétt- ingu, sem er spónaður kirsuberja- viður og grátt á móti. Vönduð AEG tæki í eidhúsi. Arinn í stofu, gott út- sýni. Sólpallur sem er ca 40 fm. Verð 21,0 millj., áhv. 7,2 millj. bygg- sj. og húsbréf. Ásgeir og Silja taka vel á móti gestum milli kl. 16.00 og 17.00. MARÍUBAKKI 6 - 2. HÆÐ Vorum að fá í einkasöiu mjög vel skipulagða 81 fm 3ja herb. íbúð á 2. hæð í fjölb. Tvö rúmgóð svefnher- bergi, þvottahús í íbúð. Fallegt bað- herbergi flísalagt í hólf og gólf. Stof- an er rúmgóð og björt og útg. á suð- ursvalir. Sameign að utan sem innan í góðu ástandi. Áhv. 4,6 millj. Verð 10 millj. Eva og Ólafur taka á móti ykkur í dag á milii kl. 15.00 og 17.00.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.