Morgunblaðið - 23.12.2000, Síða 6
6 LAUGAKDAGUR 23. DESEMBER 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
ísfélag Vestmannaeyja
Morgunblaðið/Sigurgeir
Óskar Alfreðsson, viðgerðarmaður húseigna ísfélags Vestmannaeyja,
tínir sviðna stakka starfsmanna af slá.
Hreinsunarstörf-
um í austurhluta
hússins
HREINSUNARSTÖRF eftir
brunann í ísfélagi Vestmannaeyja
ganga vel og í fyrradag var m.a.
verið að hreinsa til í stakka-
geymslu starfsmanna og á kaffí-
stofunni.
Óskar Alfreðsson, viðgerðar-
maður húseigna Isfélagsins, sagði
að unnið hefði verið sleitulaust alla
daga síðan bruninn varð, frá
klukkan hálfátta á morgnana til
klukkan átta á kvöldin. Hann sagði
að veðrið hefði verið einkar gott
síðustu daga og að það hefði auð-
veldað hreinsunarstörfin.
að ljúka
í síðustu viku var brotinn niður
hluti af austurgaflinum til þess að
gröfur og vprubílar gætu farið inn
á það svæði sem eyðilagðist hvað
mest í eldsvoðanum. Hreinsunin á
svæðinu er langt komin og sagðist
Óskar jafnvel búast við því að
henni myndi ljúka í dag en búið er
að rífa þakið af þessum hluta húss-
ins og ljóst að mikið uppbygging-
arstarf er framundan.
Óskar sagði að nánast allt í
austurhluta hússins hefði eyðilagst
í brunanum en þó hefði eitt færi-
band af um 15 bjargast.
^ Nú fa/a ^
allir íslensku í
^sfri/borgr^
Fræösluleikur í hæsta gæða-
flokki! Foreldrar geta fylgst
með áranqri bama sinna i
sérstöku fjölskylduhomi I
E&ikaíi
bíUtan
____________ Skeifunni • Hafnarfirði • Kringlunni
Grafarvogi • Reykjanesbæ • Akureyri • Egilsstöðum
Halldór Laxness
maður aldarinnar
HALLDÓR
Laxness rithöf-
undur er maður
aldarinnar að
mati íslendinga,
að því er fram
kemur í alda-
mótakönnun
Gallups og Kast-
Ijóss Ríkisjón-
varpsins. Kona
aldarinnar er
Vigdís Finn-
bogadóttir, fyrr-
verandi forseti
Islands. Urtak í
könnuninni var
rúmlega 1.100
manns og var
svarhlutfallið 74%.
23,7% völdu Halldór Laxness
mann aldarinnar, í öðru sæti kom
Davíð Oddsson forsætisráðherra
með 12,9%, í 3.-4. sæti eru Bjarni
Benediktsson, fyrrverandi for-
sætisráðherra, og Kári Stefánsson,
forstjóri íslenskrar erfðagreining-
ar, með 4,2% og í 5. sæti er Ólafur
Thors, fyrrverandi forsætisráð-
herra, með 3,8%. í næstu sætum
eru Einar Benediktsson skáld,
Kristjan Eldjárn, fyrrverandi for-
seti, Ólafur Ragnar Grímsson, for-
seti, Jónas Jónsson frá Hriflu, fyrr-
verandi ráðherra, og Örn
Arnarsson sundmaður.
Kona aldarinnar er Vigdís Finn-
bogadóttir að mati 69,6% að-
spurðra, Bríet Bjarnhéðinsdóttir,
ritstjóri og kvenréttindafrömuður,
er í öðru sæti með 9,4% og Björk
Guðmundsdóttir tónlistarmaður
með 6,3%.
Aðrar sem fengu atkvæði voru
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir verka-
lýðsleiðtogi, Auður Auðuns, fyrr-
verandi ráðherra og borgarstjóri,
Guðrún Katrín Þorbergsdóttir,
fyrrverandi forsetafrú, Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og
Vala Flosadóttir íþróttakona.
Stjórnmálamaður aldarinnar er
að mati 38,9% aðspurðra Davíð
Oddsson for-
sætisráðherra, í
öðru sæti er
Ólafur Thors
með 11%, í
þriðja sæti
Bjarni Bene-
diktsson með
7,4%, Jónas
Jónsson frá
Hriflu er í fjórða
sæti með 6,1%
og Jón Baldvin
Hannibalsson
sendiherra var í
5. sæti með
4,8%. Næstir
voru Steingrím-
ur Hermanns-
son, fyrrverandi forsætisráðherra,
Ólafur Ragnar Grímsson, Ólafur
Jóhannesson, fyrrverandi forsætis-
ráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir
alþingismaður, Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir og Hannes Hafstein,
fyrrverandi ráðherra.
Nýjung aldarinnar að mati 32,5%
aðspurðra var tölvan, í 2. sæti var
tölvuvæðing með 11%, í 3. sæti raf-
magn/raftækjabyltingin með 9,1%,
í 4. sæti Netið með 8,6%, í 5. sæti
bíllinn með 6,3%, í 6. sæti síminn
með 5,8%, í 7.-9. sæti með 2,4% var
erfðafræði, sjónvarpið og framfarir
í læknavísindum og í 10, sæti flug-
vélar með 2%.
Glerbrot
fannst
í sósunni
FJÖLSKYLDU nokkurri brá í brún í
fyrrakvöld þegar hún hugðist snæða
saman kvöldverð. Húsmóðirin hafði
matreitt kjöthakk og bætt út í það
spaghettísósu frá fyrirtækinu Hunt’s.
Þegar sonurinn hugðist gæða sér á
fyrsta gaffalbitanum varð hann var
við aðskotahlut á diski sínum. Reynd-
ist þarna vera glerbrot. Þegar nánar
var að gáð fannst annað og stærra
glerbrot í matnum á pönnunni. Gler-
krukkan undan sósunni reyndist þó
alveg heil. Húsbóndinn á heimilinu
segir að stærra glerbrotið hafi verið
með sveigju í sér og samsvaraði lag-
inu sem er á botni krukkunnar.
Ólafur Bjömsson, framkvæmda-
stjóri Innness, sem flytur inn vörur
frá Hunt’s, segir að fyrirtækið líti
málið mjög alvarlegum augum, tilvik
eins og þetta hafi aldrei komið fyrir
áður. Hann segir að viðkomandi
knikka ásamt glerbrotinu verði strax
send til Bandaríkjanna þai- sem rann-
sakað verður hvort glerbrot þetta sé
úr samskonar glerkrukku og varan.
Skipt var út vöru frá Hunt’s í Fjarð-
arkaupum þar sem spaghettísósan
var keypt. Aðspurðm- um hvort gripið
yrði tÖ frekari aðgerða eins og t.d.
innköllunar vöru í öðrum verslunum
sagði Ólafur að það stæði ekki til því
hér væri um afar einangrað tilvik að
ræða. „En við bíðum fyrirmæla frá
fyrirtækinu.“
Ef grannt er skoðað má sjá gler-
brotin fyrir framan krukkuna.
Heimatilbúið hreindýra-
paté í allar jólagjafír
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Jólapakkamir tilbúnir til afhendingar hjá Ás-
geiri og Oddnýju.
JÓLASIÐIRNIR eru
jafn ólíkir og þeir
eru margir en allir
eiga þeir það sam-
eiginiegt að vera
hverri fjölskyldu
hjartfólgnir og fæst-
ir vildu án þeirra
vera. Þannig er það
um fjölskyldu Ás-
geirs Hjartar og
Oddnýjar Eiríks-
dóttur þar sem
bragðsterkt, heima-
lagað hreindýrapaté
er ómissandi hluti í
jólapökkum ættingj-
anna.
„Þetta byrjaði nú
bara þannig að við
vorum svo skítblönk
ein jólin að við áttum
ekki fyrir jólagjöfum
og þá varð að grípa
til einhverra ráða,“
sagði Ásgeir og hló
þegar hann var innt-
ur eftir hvemig
þessi sérstaki jóla-
siður varð til. „En
þar sem ég er skot-
veiðimaður sjálfur
þá hefur alltaf verið
nóg til af villibráð á mínu heimili
svo þá var bara að bretta upp erm-
amar, girða sig svuntu og galdra
fram gjafirnar í eldhúsinu heima.
Úr varð að ég gerði paté úr hein-
dýrakjöti og gæs. Þessu pökkuðum
við hjónin svo fallega inn ásamt
rifsberjasultu, súrsaðri gúrku og
rúgbrauði og gáfum öllum vinum
og ættingjum í jólagjöf."
Engar búðargjafír, takk!
Villibráðarsögunni lauk þó ekki
þar með - síður en svo.
„Svo vænkaðist hagurinn eins og
gengur og gerist og maður fór að
komast aðeins í álnir. Þá ákváðum
við hjónin auðvitað að fara í búðir
og kaupa „alvöru" jólagjafir. En þá
vildi bara ekki betur til en svo að
fólk brást hið versta við og neitaði
að taka við pökkunum - það vildi
enginn sjá neitt annað en paté!“
Engin breyting varð á óskum
skyldmennanna jólin eftir, né jólin
eftir það og nú eru Iiðin ríflega tutt-
ugu ár frá því fyrstu paté-krúsirnar
fóru í jólapakkana og enn kemur
ekkert annað til greina en sælkera-
patéið hans Ásgeirs.
Þessa dagana er fjölskyldan að
leggja lokahönd á undirbúning
jólanna, patéið komið í fallegar
krakkur og eldhúsið tandurhreint
eftir aðfarir húsbóndans. „Ég sé
nefnilega um eldunardeildina á
heimilinu og svo er hún Oddný kon-
an mín aldeilis framúrskarandi
gjafapakkari," segir Ásgeir. Þegar
hann er spurður hvort hann fái
aldrei leið á paté-gerðinni svarar
hann að bragði: „Nei, alls ekki. Ég
sé nú eiginlega bara fram á að búa
til villibráðarpaté allt til æviloka,
sem er hið besta mál því ég hef líka
alveg þrælgaman af þessu."