Morgunblaðið - 23.12.2000, Side 14

Morgunblaðið - 23.12.2000, Side 14
14 LAUGAKDAGUR 23. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ HOFUÐBORGARSVÆÐIÐ Leikskólabörn á Norðurbergi í Hafnarfírði afhenda Rauða krossinum peningagjöf Börnin söfnuðu handa / dagheimili í Usbekistan Morgunblaðið/Jim Smart Það var glatt á hjalla á Norðurbergi í ga;r, enda verið að gleðja fátæk böm í Úsbekistan. Hafnarfjörður LEIKSKÓLABÖRN á Norð- urbergi í Hafnarfírði afhentu Rauða krossinum í gær pen- ingaupphæð, sem er afrakst- ur söfnunar þeirra í heilt ár. Peningamir renna beint til dagheimilis fyrir þroskaheft og fötluð böm í Tashkent í Usbekistan, en íbúar lands- ins eru rúmlega 2 milljónir, tala úsbekisku og rússnesku og era múhameðstrúar. Að sögn Helga Ivarssonar, sem veitti peningunum við- töku fyrir hönd Rauða kross- ins, lagði Iiafnarfjarðardeild RKI um áramótin 1998-1999 fram 1 milljón króna til að koma umræddu dagheimili á fót. Anna Borg Harðardóttir leikskólastjóri var spurð um tildrög þess að börnin á Norðurbergi fóra að safíta til handa börnunum í Úsbek- istan. Margir eiga bágara en við Hún sagði að leikskólinn væri vistvænn, legði mikla áherslu á umhverfismennt og hefði í því skyni markað sér umhverfisstefnu. „Eitt af markmiðunum er að börnin læri að bera virðingu fyrir náttúranni með því að stunda útivera og læra þar með að ganga vel um hana. Þegar við höfum farið í gönguferðir í nánasta um- hverfi leikskóians höfum við jafnan tínt allar dósir og flöskur sem hafa legið á víða- vangi. Við höfum svo leyft börnunum að koma með inn í endurvinnslu og stinga þessu inn í vélina og fá peninginn til baka, til að gera þau með- vituð um þessa hluti. Fyrir ári ákváðum við að það væri enginn tilgangur í því að við færum að nota þessa peninga fyrir okkur sjálf, því við ættum nóg af öllu, heldur skyldum við gefa þá til einhverra sem hefðu meiri þörf fyrir þá. Við bjuggum þess vegna til bauk úr gamalli krydddollu, sett- um utan á hana Rauðakross- tniðann, til að gera þetta sýnilegra, og límdum að auki á baukinn myndir af börnum úr þróunarlöndunum. Við ætluðum nefnilega að gefa þetta til útlanda. Og þetta höfum við gert í heilt ár.“ „Við ákváðum að velja þetta sérverkefni af því að við höfðum verið að tala svo- Iitið um þessa hluti, að börn víða í útlöndum hefðu það ekki eins gott og böm á Is- landi. Og t beinu framhaldi af þessum atburði ætlum við að gera eitthvað meira, setja upp kassa og leyfa börn- unum sjálfum að koma með eitthvað persónulegt að heiman, s.s. föt og leikfóng sem þau eru hætt að nota, sem þau kæmu svo til með að pakka sjálf niður. Allt færi þetta á sama dagheimilið í Úsbekistan. Börnin taka þetta mjög al- varlega, en era líka spennt og glöð, enda vita þau að þau era að hjálpa fátækum börn- um úti í heimi,“ sagði Anna Borg að lokum. „Handa þeim sem geta aldrei „kaupt“ neitt“ Hafnarfjörður JÓHANN Kristófer Krist- insson, fimm ára, er eitt þeirra leikskólabarna sem hafa tekið þátt í peninga- söfnuninni til handa dag- heimilinu í Úsbekistan og hann ásamt vini sínum, Daní- el Guðlaugssyni, afhenti ein- mitt fulltrúum Rauða kross- ins það sem kom úr bauknum árið 2000. Morgunblaðið hitti Jóhann að máli skömmu áður en til afhendingar kom og hann var spurður að því hvað væri að fara að gerast. „Við erum að fara að syngja í Kastalanum," sagði Jóhann. „Það eru að koma menn sem ætla að taka pen- ingana sem við ætlum að gefa þeim sem era óheppnir og hafa ekkert að borða í út- löndum. Héma á maður svo mikið af peningum en í út- löndum á maður ekki neitt af peningum. Þannig að maður getur ekki „kaupt“ neitt.“ Eruð þið búin að safna peningum íengí?„Dáldið.“ Hafið þið fengið peninga hjá pabba ogmömmu tilað gefa, eða hafið þið fundið dósir eða hvað hafið þið gert?„Ég hef ekki fundið dósir en ég hef fundið flösk- ur og komið með hingað á leikskólann." Og hafið þið svo farið með þær og selt eða hvernijg hafið þið fengið peninga ? „Eg held MorgunblaðiOTim Smart Jóhann Kristófer Krist- insson hefur ásamt öðrum börnum á leikskólanum Norðurbergi í Hafnar- firði verið að safna pen- ingum til handa dagheim- ili íÚsbekistan. að við höfum fengið pening til útlanda til að gefa hin- um.“ Eruð þið búin að telja úr bauknum? „Já, við fengum 4.630 krónur." Ætlið þið svo að halda áfram að safna? „Já.“ Finnst þérgaman að vera á Norðurbergi? „Já.“ Ertu búinn að ákveða hvað þú ætlar að verða þegar þú verður stór? „Já. Pókemonmeistari." íbúi við Áland segir mælingar sýna þunga umferð og mikla slysahættu við götuna Allt að 350 bflar fóru um götuna á klst. ÞORSTEINN I. Víglundsson, íbúi við AJand og einn af tals- mönnum þeirra sem gengust fyrir undirskriftasöfnun tii að fá því framgengt að lokað yrði fyrir umferð um götuna frá Borgarspítala, segir að lokun- in hafi verið ákveðin vegna þess að um 2.000 bílar fóru um þessa húsagötu á dag og um 350 bílar á klukkustund þegar mestvar. Áland liggur sunnan Bú- staðavegar og samhliða þeirri götu milli Eyrarlands og Háa- leitisbrautar. Við austanverða götuna eru íbúðarhús en að vestanverðu liggur hún hjá Borgarspítalanum. Þorsteinn sagði að umferð um Aland hefði aukist mjög mikið á undanfömum árum og því hefðu íbúar við götuna, og í grennd við hana, óskað eftir að henni yrði lokað fyrir gegnum- akstri annarra bíla en sjúkra- bíla. Málið ætti sér fjögurra ára langa sögu og á þeim tíma hefðu farið fram mælingar á vegum íbúanna og borgar- verkfræðings. Þær mælingar hefðu sýnt að íbúar í Fossvogi voru innan við 5% þeirra fóru um gatnamót Eyrarlands og Alands. Þá hefðu allar vistir að spítalanum farið þessa leið. Um 350 bflar á klukkustund Mælingamar hafi gefið til kynna akstur allt að 350 bfla á klukkustund. Þorsteinn segir að mæling- ar borgarverkfræðings hafi jafnframt gefið til kynna að oft hafi legið við slysi við gatna- mót Aiands og Eyrarlands; þau hafi verið talin hættuleg og umferð um götuna oft mjög hröð. Um 300 íbúar rituðu nöfn sín á undirskriftarlista sem varð til þess að borgaryf- irvöld ákváðu að loka Álandi í tilraunaskyni til eins árs á síð- asta ári. Þorsteinn sagði að undirtektir nágranna við und- irskriftasöfnuninni hefðu verið góðar og yfirleitt verið skrifað undir samstundis enda hefðu undirskriftimar 300 safnast á einum degi. Ekki em þó allir í hverfinu sammála um lokunina og, eins og Morgunblaðið greindi frá á fimmtudag, hefur hópur íbúa sent lögreglustjóra bréf þar sem farið er fram á að tak- mörkunum verði aflétt. í sam- tali við talsmenn þessa hóps í blaðinu kom fram að þeir teldu að borgaryfirvöld hefðu verið hálfþartinn blekkt til að loka götunni því meirihluti nafna á undirskiiftarlistanum væri búsettur norðan Bústaðaveg- ar og ætti lítilla hagsmuna að gæta. Jafnframt kom fram að í kjölfar lokunarinnar hefði um- ferð um Fossvogsveg stórauk- ist en sú gata tengir saman Háaleitisbraut og Eyrarland í grennd við útivistarsvæðið neðar í dalnum. Þorsteinn I. Víglundsson sagði að það væra ekki bara íbúar Álands, sem hefðu staðið fyrir lokuninni og orðið fyrir ónæði vegna umferðarinnar heldur hefðu íbúar beggja vegna Eyrarlands, t.d. við Dalaland, Búland, Brúnaland, Efstaland, Aðalland og Álfa- land, einnig tekið þátt í að- gerðunum. Alls væra um 70% þeirra sem skrifuðu á undir- skriftarlistana búsettir við þessar götur en um 30% norð- an Bústaðavegar, flestir við Grensásveg. Þorsteinn sagði að eftir að lokað var fyrir gegnumakstur um götuna hefði umferð minnkað verulega en eftir sem áður væri nokkuð um fólk, sem ekki virti bannmerki og æki í gegn þrátt fyrir að sjúkrabílum væri það einum heimilt. Umferðina út úr hverfínu og á stofnbrautir Þá sagði Þorsteinn að þrátt fyrir staðhæfingar um aukna umferð um F ossvogsveg í kjöl- far lokunarinnar sýndu upp- lýsingar frá borgarverkfræð- ingi að umferðin hefði ekki aukist að ráði. Hins vegar væra íbúamir sem stóðu fyrir undirskriftasöfnuninni and- vígir því að umferð um Foss- veg ykist. „Við höfum jafnframt barist fyrir því að hindranir séu sett- ar á Fossvogsveg eða honum lokað af sömu ástæðu," sagði Þorsteinn. „Markmiðið er að færa þessa umferð út úr hverf- inu og á stofnbrautir en ekki að skipta hverfinu í tvennt.“ Hann sagði að böm úr hverfinu þyrftu að fara yfir Áland og Eyrarland í skóla og sumir íbúar ofan gatnamót- anna hefðu fyrir lokun þurft að fylgja bömum sínum yfir göt- una á annatíma vegna mikillar og hraðrar umferðar. Vandséð væri að þörf væri á gegnumakstri um Áland. Bæði hefði umferð að og frá Borg- arspítala ágæta aðkomu frá Háaleitisbraut og eins væri íbúum við götumar út frá Eyr- arlandi ekki vandara en íbúum austar í Fossvogi, þ.e. í göt- unum út frá Hörgslandi og Ós- landi, að búa við það að Eyr- arlandið eitt tengdi þá umferðaræðum að og frá hverfinu. Hins vegar vildu íbú- amir gjaman að gatan væri opin fyrir sjúkrabifreiðar í neyðartilvikum. Þorsteinn sagði að þau rök hefðu heyrst frá andstæðing- um lokunar að mikil teppa myndaðist milli Grensásvegar og Bústaðavegar á annatímum vegna lokunar Álands en hann sagði að mælingar sýndu að það tæki innan við mínútu að aka þessa leið á annatíma. Hvað varðar þátttöku íbúa norðan Bústaðavegar í undir- skriftasöfnuninni sagði hann að umferð um Áland og Eyr- arland hefði fylgt aukinn um- ferðarþungi um Grensásveg, sem íbúar þar hefðu hagsmuni að því að draga úr. Eins og fyrr sagði vora um 30% þeirra sem undir áskoranina skrif- uðu búsett þeim megin Bú- staðavegar. Fráleitt væri hins vegar að tala um að borgaryf- irvöld hefðu verið blekkt til að loka götunni enda hefðu upp- lýsingar um heimilisföng þeirra sem undir rituðu fylgt skjalinu til borgarinnar. Hávær minnihluti á móti Gunnar Guðni Tómasson, íbúi við Búland, sagði í samtali við Morgunblaðið að sér fynd- ust öll rök hljóta að hníga í þá átt að loka Álandi fyrir umferð og það væri rangt sem mátt hefði skilja á andstæðingum lokunarinnar að íbúar í svo- kölluðum B-löndum væru and- vígir lokuninni. Akstur um Álandið yki mikið umferð um hverfið en Fossvogshverfi væri ekki skipulagt fyrir mikla umferð. „Þetta hom er mikil slysagildra," sagði Gunnar Guðni um gatnamót Álands og Eyrarlands. „Það er mjög blint og gífurleg umferð á álagstoppum, að mestu leyti til og frá Borgarspítala. Hún er í raun ónauðsynleg, því spítal- inn hefur aðra, ágæta aðkomu eftir stofnbrautum. Ég held að það sé hávær minnihluti sem er á móti þessu.“ Gunnar Guðni sagðist því telja lokunina áhugamál meiri- hluta íbúa gatnanna út frá Eyrarlandi en ekki bara ör- fárra íbúa í Álandi. Hann sagði að eldhúsglugginn sinn sneri að Eyrarlandi og hann hefði séð með eigin augum hvílík slysagildra gatnamótin væru. „Við höfum horft upp á mörg tilfelli þar sem nærri hafa orð- ið slys. Menn koma frá Borg- arspítalanum, sjá ekki upp Eyrarlandið og svína fyrir um- ferð á niðurleið. Oftar en einu sinni og oftar en tvisvar hef ég séð menn þurfa að sveigja frá til að afstýra árekstri og lenda upp á gangstétt eða jafnvel inni á lóð.“ Lokun samþykkt á ný í borgarsljórn Reykjavíkurborg ákvað síð- astliðinn vetur að loka Álandi í tilraunaskyni í eitt ár en úr- skurðamefnd byggingar- og skipulagmála hefur fellt þann úrskurð að ekki hafi verið efni til að breyta deiliskipulagi svæðisins vegna breytinga á umferð. Borgaryfirvöldum hafi fremur borið að óska eftir því að lögreglustjóri takmark- aði umferðina og heimilaði uppsetningu viðeigandi um- ferðarmannvirkja. Beri því að fella lokunina úr gildi. Borgarstjóm Reykjavíkur samþykkti á ftmmtudagskvöld með átta atkvæðum meirihlut- ans gegn sjö atkvæðum sjálf- stæðismanna að í samræmi við úrskurðinn yrði óskað heim- ildar lögreglustjóra fyrir upp- setningu skilta um bann við innakstri á Áland, með sama hætti og lögreglustjóri hefði áður ákveðið. Þannig hefði borgarstjóm staðfest vilja sinn til þess að gegnumakstur um Áland yrði bannaður fram ávor. I 1

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.