Morgunblaðið - 23.12.2000, Page 16
16 LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2000
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Bjöm Gíslason
Þung fjárhagsstaða íþrdttafélaganna
Þrjú stærstu félög-
in standa verst
Pottasleikir
spilar
fyrir börnin
NÚN A þegar skammt er til jóla er
mikið líf í Jólabænum og í gær tók
Pottasleikir sig til og spilaði og
söng jólalög fyrir börnin sem kunna
vel að meta það uppátæki hans.
Níu nýjar íbúðir
að Drekagili
Félags-
stofnun
ijárfestir
í íbúðum
FÉLAGSSTOFNUN stúdenta á
Akureyri og SJS verktakar und-
irrituðu í gær samning um kaup á
níu nýjum íbúðum við Drekagil og
hefur þá Félagsstofnunin eignast
allt húsið. Dan Brynjarsson, for-
maður stjórnar FÉSTA, segir að
samkvæmt áætlun hafi ekki átt að
fjárfesta í þessum íbúðum fyrr en á
næsta ári. „Það var stefnt á það í
upphafi að eignast allt húsið en þeg-
ar lagt var af stað höfðum við ekki
fé nema til kaupa á tíu íbúðum á
ári. Því var reiknað með því að
þessar íbúðir, sem nú var verið að
fjárfesta í, yrðu ekki keyptar fyrr
en á næsta ári en þar sem við gát-
um keypt þær nú var ákveðið að
ráðst í það.“
87 íbúðir alls
Kaupverð íbúðanna m'u var 64
milijónir og segir Dan að þær hafi
verið fjármagnaðar með 90% láni úr
íbúðalánasjóði til félagslegra leigu-
íbúða og eigin fjármögnun. FÉSTA
á nú orðið 87 íbúðir á Akureyri, allt
frá þriggja herbergja íbúðum til
einstaklingsherbergja og samtals
búa í þeim um 150 manns.
Dan segir að nú þegar þessum
áfanga sé lokið verði næstu skref
skoðuð en ekki liggi alveg ljóst fyrir
nú hver þau verða. „Fyrst íbúðirnar
voru keyptar nú á ég ekki von á því
að fleiri íbúðir verði keyptar á
næsta ári heldur fari það í und-
irbúningsvinnu. Þetta veltur einnig
á því hvaða stefnu fjármögnun á
félagslegum leiguíbúðum tekur.
Vextir hafa verið að hækka og
hækka jafnvel enn og ef þeir gera
það þá verður erfitt að láta leiguna
standa undir fjármagnskostnaði."
EINS og tíðrætt hefur verið undan-
farið eiga stærstu íþróttafélögin á
Akureyri í umtalverðum rekstrar-
erfiðleikum. Slæm fjárhagsstaða
íþróttafélaganna var tekin til um-
ræðu á fundi Iþróttabandalags Ak-
ureyrar í vikunni og segir Þröstur
Guðjónsson, formaður íþrótta-
bandalags Akureyrar, að stærstu
félögin standi illa. „Þrjú félög standa
hvað verst, en það eru KA, Þór og
Golfklúbbur Akureyrar. Önnur félög
standa hins vegar flest hver nokkuð
vel. Það sem spilar helst inn í erfiða
stöðu þessara þriggja félaga er að
þau eru með þungan rekstur á mann-
virkjum og það hefur sitt að segja.
Jafnframt er það nú svo að góðir
hlutir sem menn ætla sér fara oft úr
böndunum og verða of fjárfrekir.“
Nauðsynlegt að
taka á málunum
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu nýverið nema skuldir Þórs
um 40 milljónum króna og skuldir
GA eru um 30 milljónir. Ljóst er að
staða KA er síst betri og segir Þröst-
ur að þar spili þungar rekstrarein-
ingar inn í. „Staðan hjá KA er mjög
erfið. Það er ekkert launungarmál að
það er íþróttahúsið sem er KA hvað
erfiðast, en á því liggja þung lán.“
Þröstur segir að nauðsynlegt sé að
taka á þessum málum og finna
rekstrargrundvöll fyrir íþróttafélög-
in. „Við ætlum okkur að taka af full-
um þunga á þessum málum og nú er
búið að stilla upp nefnd hjá Akureyr-
arbæ til viðræðu við okkur um lausn
þessara mála. Það er mjög ánægju-
legt að Akureyrarbær sé tilbúinn til
að koma til móts við okkur og við
vonumst til að það skili sér.“
Vonast eftir auknum
styrkveitingum
„Við bindum m.a. vonir við að sam-
starfssamningur verði gerður á milli
ÍBA og Akureyrarbæjar sem tekur á
rekstri íþróttafélaganna þar sem
ÍBA verður ábyrgðaraðili gagnvart
bænum fyrir hönd allra íþróttafélag-
anna sem aðild eiga að bandalaginu.“
Þröstur segir að ÍBA sé einnig að
þreifa fyrir sér með auknar styrk-
veitingar og þá sérstaklega vegna
ferðakostnaðar og bama- og ung-
lingastarfs félaganna. „Kostnaður
við þessa tvo liði er gríðarlega mikill
eða um 60 milljónir hjá öllum félög-
unum. Þegar verið er að ræða fjár-
málin vilja hlutir eins og bama- og
unglingastarfið gleymast, en í félög-
unum er unnig mjög ötullega að
þeim málum og vildum við gjarnan
sjá bæjaryfirvöld koma að þeim mál-
um.“
Tollaf-
greiðsla flyst
aftur til
Akureyrar
TOLLAFGREIÐSLA íslandspósts
til landsins sem flutt var frá Akureyri
nú í haust til Tollstjórans í Reykjavík
verður flutt aftur til bæjarins frá og
með næstu áramótum. Að sögn Skúla
Ámasonar fulltrúa hjá íslandspósti á
Akureyri, er þessi breyting sam-
hangandi við breytingu sem verður
hjá Tollstjóra nú um áramót, þar sem
fanð verður út í pappírslaus viðskipti.
íslandspóstur tilkynnti með bréfi
til viðskiptavina sinna í haust um áð-
umefndar breytingar á þjónustu á
tollafgreiðslu til landsins. Kaupmenn
á Akureyri vom ekki alls kostar sátt-
ir við breytingarnar. Þeir töldu að
með því að þurfa að skila toll-
skýrslum til Reykjavíkur en ekki á
næsta pósthús, myndi vöruafgreiðslu
seinka um 2-3 daga frá því sem verið
hafði. Því væri verið að stíga stórt
skref í þá átt að draga úr þjónustu við
landsbyggðina.
Skúli sagði að breytingin frá í
haust hefði farið frekar stirðlega af
stað en væri farin að ganga ágætlega
en það að flytja tollafgreiðsluna aftur
til Akureyrar um áramót ætti eftir að
verða enn betra fyrir bæjarbúa og
aðra Norðlendinga.
Nú um áramót verða yfirmanns-
skipti hjá íslandspósti á Akureyri en
þá tekur Skúli við starfi stöðvarstjóra
af Guðlaugi Baldurssyni.
Bráðabirgðatölur um mannQölda
á fslandi 1. desember sl.
Akureyringum
fjölgaði um rúm-
lega 250 manns
AKUREYRINGAR vom 15.396
hinn 1. desember sl. og hafði fjölgað
um 253 eða 1,7% frá síðasta ári, sam-
kvæmt bráðabirgðatölum frá Hag-
stofu íslands um mannfjölda á Is-
landi. Um síðustu áramót var
íbúafjöldi á Akureyri 15.143.
Á þéttbýlisstöðum í Eyjafirði varð
aðeins fólksfjölgun á tveimur stöðum
utan Akureyrar, á Grenivík um 5,2%
og Svalbarðseyri um 3,1%. Á Greni-
W'
w
vík/Grýtubakkahreppi fjölgaði it
um úr 269 í 283 og á Svalbarðsej
Svalbarðsstrandarhreppi úr 196 í
202. íbúafjöldinn stóð hins vegar í
stað milli ára í Dalvíkurbyggð en þar
búa 1.479 manns. íbúum í Hrísey
fækkaði um 30 manns, eða 13,8%,
þeir vom 188 hinn 1. desember sl. en
218 á síðasta ári. í Grímsey fækkaði
um 5 manns, úr 98 í 93, eða um 5,1%.
í Ólafsfirði fækkaði um 36 manns
eða 3,4% en þar bjuggu 1.036 manns
um síðustu mánaðamót. Á þéttbýlis-
stöðunum tveimur í Dalvíkurbyggð
fækkaði íbúum nokkuð, um 5,5% á
Litla-Árskógssandi, úr 128 í 121 og
5% á Hauganesi, úr 160 í 152. Þá
fækkaði íbúum á Hjalteyri um 9
manns, úr 63 í 54, eða 14,3%.
Morgunblaðið/Bjöm Gíslason
Arekstur á
Hlíðarbraut
MAÐUR slasaðist í árekstri
tvcggja bíla á Hlfðarbraut, á móts
við Hlíðarfjallsveg á Akureyri um
miðjan dag f gær.
Slysið varð með þeim hætti að
ökumaður jeppabifreiðar sveigði
yfir á rangan vegarhelming til
þess að forðast að aka aftan á bíl
sem hægði á sér og hafnaði jepp-
inn á fólksbfl sem kom á móti.
Nota þurfti tækjabíl Slökkviliðs
Akureyrar við að ná ökumanni
fólksbflsins út úr bfl sfnum og var
hann fluttur á slysadeild FSA. Að
sögn lögreglu var maðurinn ekki
talinn alvarlega slasaður.
Kirkjustarf
AKUREYRARKIRKJA: Aftansöng-
ur í Akureyrarkirkju kl. 18. Sr.
Svavar A. Jónsson. Björn Steinar
Sólbergsson leikur á orgel kirkj-
unnar frá 17.30. Kór Akureyrar-
kirkju og Björg Þórhallsdóttir
sópran syngja. Miðnæturmessa
verður kl 23.30. Sr. Jóna Lísa Þor-
steinsdóttir. Kammerkór Akureyr-
arkirkju og Rósa Kristín Baldurs-
dóttir sópran syngja. Á jóladag
verður hátíðarmessa í Akureyrar-
kirkju kl. 14. Sr. Jóna Lísa Þor-
steinsdóttir. Kór Akureyrarkirkju
og Sigrún Arngrímsdóttir mezzo-
sópran syngja. Guðsþjónusta verð-
ur á Seli kl. 14.30 á jóladag. Guðs-
þjónusta verður á Hlíð kl. 16 en þar
mun Barnakór Brekkuskóla syngja.
Á öðrum degi jóla verður fjöl-
skyldu- og skímarguðsþjónusta í
Akureyrarkirkju kl. 11. Sr. Svavar
A. Jónsson. Barna- og unglingakór
Akureyrarkirkju syngur. Þá verður
hátíðarmessa í Miðgarðskirkju í
Grímsey kl. 14. Sr. Jóna Lísa Þor-
steinsdóttir. Óskar Pétursson tenór
syngur. Hátíðarguðsþjónusta verð-
ur einnig á öðrum jóladegi í Minja-
safnskirkjunni kl. 17. Sr. Svavar A.
Jónsson. Miðvikudaginn 27. desem-
ber verður guðsþjónusta í Kjarna-
lundi kl. 16. Sr. Gylfi Jónsson.
GLERÁRKIRKJA: Aftansöngur
verður á aðfangadag jóla kl. 18.
Nicole Vala Cariglia leikur á selló
og Lúðrasveit Akureyrar leikur í
anddyri kirkjunnar frá 17.30. Há-
tíðarmessa verður á jólanótt kl.
23.30. Séra Guðmundur Guðmunds-
son predikar og sóknarprestur
þjónar fyrir altari. Barbara Vigfús-
son sópran syngur einsöng. Hátíð-
arguðsþjónusta verður á jóladag kl.
14. Sr. Birgir Snæbjörnsson pre-
dikar. Á öðrum degi jóla verður
fjölskylduguðsþjónusta. Barnakór
Glerárkirkju syngur.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Hátíðar-
samkoma verður á jóladag kl. 20.
Ragnhildur Jóna Níelsdóttir talar.
Allir velkomnir.
HRISEYJARPRESTAKALL: Aft-
ansöngur verður í Hríseyjarkirkju
á aðfangadag kl. 18 og í Stærri-
Árskógskirkju kl. 22.30 á aðfanga-
dag.
HVITASUNNUKIRKJAN: Jólin
verða sungin inn á aðfangadag kl.
16.30-17.30 með almennum söng,
kvartett og jólahugleiðingu. Hátíð-
arsamkoma verður annan í jólum
kl. 14. Stella Sverrisdóttir leik-
skólakennari mun predika og verð-
ur kaffihlaðborð eftir samkomu.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa kl.
18 á Þorláksmessu. Á aðfangadag
verður messa kl. 11 og miðnæt-
urmessa kl. 24. Á jóladag verður
messa kl. 11 og á annan jóladag
verður messa kl. 11.
KFUM OG KFUK: Hátíðarsam-
koma verður á öðrum degi jóla í
Sunnuhlíð kl. 20.30. Ræðumaður
verður Lilja Sigurðardóttir. Allir
velkomnir.
LAUFÁSPRESTAKALL: Aftan-
söngur verður í Svalbarðskirkju á
aðfangadag kl. 16. Guðsþjónusta
verður á jólanótt í Grenivíkurkirkju
og hefst hún kl. 22. Þá verður há-
tíðarguðsþjónusta í Laufáskirkju
annan jóladag kl. 14.
LAUGALANDSPRESTAKALL:
Aftansöngur verður á aðfangadag í
Munkaþverárkirkju kl. 22. Á jóla-
dag verður hátíðarmessa í Hóla-
kirkju kl. 13.30 og messa sama dag
á Kristnesspítala kl. 15. Á öðrum
degi jóla verður hátíðarmessa á
Grund kl. 11.
MÖÐRUVALLAKLAUSTURS-
PRESTAKALL: Fjölskylduguðs-
þjónusta verður fyrir allt presta-
kallið í Möðruvallakirkju aðfanga-
dagskvöld kl. 23. Syngjum saman
jólasálmana, hlýðum á jólaguð-
spjallið og njótum friðar í kirkju á
helgustu nótt ársins. Hátíðaguð-
sþjónusta fyrir allt prestakallið í
Möðruvallakirkju á jóladag kl. 14.
Hátíðaguðsþjónusta í Glæsibæjar-
kirkju á jóladag kl. 16.Á annan í
jólum verður hátíðaguðsþjónusta í
Bakkakirkju kl. 14. Hátíða-
guðsþjónusta í Bægisárkirkju á
annan í jólum kl. 16. Mætum öll og
njótum jólafriðar í kirkjunum okk-
ar.