Morgunblaðið - 23.12.2000, Qupperneq 29
Öldrun
Andleg hnignun sýnist
byrja um fertugt
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2000 29
Lyf
Lítið vitað um verkun
sumra lyfja á börn
Kólesteról
Heilbrigt líferni dugir
ekki alltaf til
Genamengi mannsins sagt
opna nýjar dyr
við með því að leita annarra úrræða
til að taka virkan þátt í samfélaginu
og eiga félagsleg samskipti," sagði
dr. Melinda Forthofer, sem starfar
við Háskólann í Suður-Flórida (Uni-
versity of South Florida). „Hún sýn-
ir okkur að við ættum ekki að gefa
okkur að fólk, sem getur ekki átt
börn, geti þar með ekki lifað inni-
haldsríku lífi og notið þess,“ bætti
hún við.
Könnun þessi gefur því til kynna
að viðteknar hugmyndir um barn-
leysi hjóna og líðan þeirra einstak-
linga síðar á æviskeiðinu eigi ekki
við rök að styðjast. Hún ætti einnig
að vera þeim nokkur huggun, sem
geta ekki eignast börn nú af ein-
hverjum sökum.
Flestir komast
yfir barnleysið
„Mjög margir gefa sér að barn-
leysi fylgi að einu af meginmark-
miðum lífsins hafi ekki verið náð og
að það hafi aftur í för með sér
óæskileg sálræn áhrif,“ sagði Mel-
inda Forthofer. Hún tók fram að
vissulega skiptu uppkomin börn
miklu máli í félagslífi eldri foreldra
og að barnleysi gætu að sönnu fylgt
minni félagsleg virkni og skortur á
stuðningi af ýmsum toga. „Hins veg-
ar sýnir þessi könnun að í mörgum
tilfellum er enginn munur á hinum
barnlausu og foreldrunum þegar um
er að ræða sál-félagslega þætti og
almenna lífsánægju. Þetta getur ef
til vill orðið þeim pörum, sem ekki
geta eignast börn nokkur huggun.
Margir spyrja sig hvernig þeir eigi
að geta komist yfir ófrjósemi og
barnleysi en rannsókn mín sýnir að
flestum tekst það ágætlega. Barn-
lausir geta lifað innihaldsríku lífi
ekkert síður en fullorðnir foreldr-
ar.“
Barnlausir ekkert síður
ánægðir en foreldrarnir
Sú skoðun hefur lengi
verið viðtekin að fólk
sem ekki getur eignast
börn líði fyrir það með
ýmsum hætti. Rann-
sókn sem ellilífeyris-
þegar í Flórída tóku
þátt í leiðir í ljós að
þetta er ekki rétt og að
hinir barnlausu njóta
lífsins ekkert síður en
foreldrarnir.
New York. Reuters
FÓLK, sem vildi á sínum tíma eign-
ast böm en gat það ekki af einhverj-
um ástæðum, nýtur lífsins síðar á
ævinni ekkert síður en þeir sem
urðu foreldrar. Ný rannsókn sem
gerð var í Flórída í Bandaríkjunum
skilar þessari niðurstöðu.
Ef einhver munur er greinanleg-
ur á hinum barnlausu og foreldr-
unum er hann helst sá að þeir, sem
ekki eignuðust börn, eru félagslega
virkari en hinir.
Associated Press
Barnleysi er engan veginn ávísun á einsemd og ófullnægju í lífinu þótt skoðanir í þá veru hafi löngum verið á
kreiki í þjóðfélaginu. Þvert á móti virðast rannsóknir gefa til kynna að þeir sem ekki eignast börn lifi ekki síður
innihaldsríku lífi þegar aldurinn færist yfir en þeir sem verða foreldrar.
Virkari og ferðast meira
í könnun þessari tóku þátt 854
eftirlaunaþegar í Flórída og kom í
ljós að það fólk, sem ekki hafði eign-
ast börn, tók frekar þátt í félagslegu
starfi af ýmsum toga, ferðaðist
meira, stundaði frekar líkamsrækt
og íþróttir en foreldrar á svipuðum
aldri. Af þeim sem þátt tóku höfðu
71% eignast börn, 21% voru barn-
laus en 7% kváðust ýmist aldrei hafa
gengið í hjónaband eða hafa verið
komin af barneignaraldri þegar þau
giftust. Þegar leitað var eftir sjálfs-
mati, sálarástandi og almennri
ánægju með lífið kom í ljós að hinir
barnlausu gáfu foreldrunum ekkert
eftir.
„Þessi rannsókn gefur til kynna
að barnlaus eldri pör geti brugðist
Imyndun og sýn
eitt og hið sama
Of mikið kaffi eykur
hættu á fósturláti
Washington. Reuters.
ÞEGAR maður ímyndar sér eitthvað
og þegar maður aftur á móti sér það
er heilastarfsemin í manninum í báð-
um tilfellum hliðstæð, að því er
bandarískir vísindamenn greina frá.
Segja þeir að sami staður í heilanum
uppljómist þegar einstaklingm’ ann-
ars vegar ímyndar sér andlit eða stað
og þegar hann hins vegar horfir á
mynd af sama andliti eða stað.
Auk þess segjast vísindamennirn-
ir, sem starfa við Massachusetts-
tæknistofnunina (MIT), geta sagt til
um með 85% nákvæmni hvort ein-
staklingurinn er að ímynda sér andlit
eða stað, einfaldlega með því að skoða
hvernig heili einstaklingsins upp-
ljómast.
„Við notum að sumu leyti sömu
heilastöðvar þegar við í rauninni
sjáum og þegar við einungis ímynd-
um okkur,“ sagði Nancy Kanwisher,
aðstoðarprófessor í heila- og vits-
munavísindum við MIT, í fréttatil-
kynningu.
I grein í Journal of Cognitive
Neuroscience sögðu þær Kanwisher
og Kathleen OCraven við Rotman-
rannsóknarstofnunina í Toronto í
Kanada, að þær hefðu notað virka
segulómmyndun (fMRI) til þess að
skoða heila í sjálfboðaliðum. Með
fMRI geta vísindamenn skoðað blóð-
streymi og virkni á ýmsum stöðum í
heilanum.
I iyrri rannsóknum höfðu Kan-
wisher og samstarfsmenn hennar
komist að því að tiltekið svæði í heila-
berkinum, svonefnt parahippocamp-
al-svæði, brást sterklega við myndum
af stöðum, bæði inni og úti, en ekki við
myndum af andlitum. Annað svæði í
heilaberkinum, fusiform-svæði, brást
við myndum af andlitum.
I nýjustu rannsókninni, sem beind-
ist að þessum tveimur svæðum, voru
sjálfboðaliðar beðnir að horfa á
myndir af svæðum eða andlitum og
svo að ímynda sér, með lokuð augun,
sömu staði og andlit. Segul-
ómmyndunin „leiðir í ljós áberandi
hliðstæður milli svæða sem bregðast
við ímyndun og sem bregðast við
myndum,“ segir í niðurstöðum rann-
sóknarinnar.
Ennfremur athuguðu vísinda-
mennimir hvort þeir gætu, með því
einu að skoða segulómmyndimar,
sagt til um hvort einstaklingurinn
væri að hugsa um andlit eða stað og
komust þeir að því að þeir hittu nagl-
ann á höfuðið í 85% tilvika.
TENGLAR
Journal ofCognitive Neuroscience:
http://lntl-Jocn.mitpress.org/
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
OF MIKIL kaffidrykkja á fyrstu
mánuðum meðgöngu eykur hættuna
á fósturláti, að því er fram kemur í
nýrri sænskri rannsókn sem birt er
í New England Journal of Medi
cine.
Leggur Sven Cnattingius, læknir
við Karolínsku stofnunina í Solna til
að konur drekki ekki kaffi á fyrstu
þremur mánuðum meðgöngu.
Rannsóknin var gerð á 562 kon-
um sem misst höfðu fóstur. Nið-
urstaðan var sú að koffein eykur
hættuna á fósturláti þar sem það
berst úr móður í fóstrið. Fjórir boll-
ar af kaffi tvöfalda líkurnar á fóst-
urláti og þær aukast þegar við tvo
bolla daglega.
Um var að ræða konur sem ekki
reyktu en reykingar auka líkur á
fósturláti. Kaffidrykkja ofan í reyk-
ingar virðist hins vegar ekki auka
þær frekar.
Cnattingius leggur til að geti
barnshafandi konur ekki án kaffis
verið, reyni þær að takmarka neysl-
una við einn bolla á dag, fyrstu þrjá
mánuði meðgöngu.
TENGLAR
New England Journal ofMedicine:
www.nejm.org
Associated Press
Læknar mæla nií með því að ófrískar konur velji annan drykk en kaffi.