Morgunblaðið - 23.12.2000, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2000 31
Opið Frá 10-13
Le C r II r
LAU GARDAGU R
Skíðabox
Verð áður
26.900.-
Handunnir massífir
viðarbarir í úrvali
20% afsláttur
Sigurstjama
Urval af
glæsilegri
gjafavöru
Fákafeni (Bláu húsin), s. 588 45451
Fékkstu kartöflu
í skóinn?
Snúðu þá vörn í sókn!
Fáðu pabba þinn eða mömmu til að skrifa með
þér bréf til jólasveinsins svo þú getir útskýrt fyrir
honum af hverju þú hagaðir þér ekki alveg nógu
vel. Settu svo bréfið í skóinn þinn í kvöld og
biddu Ketkrók að koma því til skila. Ef bréfið
verður horfið í fyrramálið getur þú verið viss um
að eiga a.m.k. einn vin sem er jólasveinn.
Þímrvinir
íslenskir kartöflubændur
Vísindamenn leita svara við alvarlegum sjúkdómi
Líkaminn
breytist í bein
Fort Lee í New Jersey. AP.
SOPHIA Forsthay liggur á bakinu
og getur ekki hreyft höfuðið. Hún
getur ekki lyft handleggjunum.
Líkami Sophiu er smám saman að
breytast í bein. Hún er ein af um
2.500 einstaklingum víðs vegar í
heiminum sem haldnir eru sjúk-
dómnum fibrodysplasia ossificans
progressiva, skammstafað FOP.
„Það er eins og hryðjuverka-
menn hafi sett af stað sprengju
innan í þessum börnum. En við
getum ekki sagt fyrir um hvar og
hvenær hún muni springa," segir
dr. Fred Kaplan, bæklunarskurð-
læknir sem hefur helgað líf sitt leit
að svari við þessum dularfulla, arf-
genga sjúkdómi.
Kaplan og aðrir vísindamenn
reyna að finna út hvað er á seyði í
útlimum Sophiu. Og vísbendingar
hafa fundist á ólíklegustu stöðum, í
hákarli, flugu og halakörtu. Stökk-
breytt gen kemst inn í fóstrið, ann-
að hvort úr egginu eða sæðisfrum-
unni. Einhvern tímann á barnsaldri
setur þetta óþekkta gen af stað
sársaukafullar bólgur í vöðvum og
vefjum sem síðan breytast í bein-
frumur. Þar kemur að líkaminn er
ofurseldur „annarri beinagrind“.
Liður getur læst á einni nóttu, og
hreyfist ekki eftir það.
Spurningin er sú, hvar í hinu
stóra safni arfbera mannsins er
þetta villugen að finna, sem setur
af stað þessa þróun? Hvernig er
hægt að slökkva á þessum rofa?
Flestir FOP-sjúkiingar lifa fram
á fullorðinsár, eftir að hafa greinst
með sjúkdóminn á barns- eða tán-
ingsaldri. Sophia var eins árs þeg-
ar hún greindist með sjúkdóminn.
Kaplan telur að einungis svar við
einni spurningu geti stöðvað eyð-
inguna: Hvaða gen er þetta?
Af þeim tugum þúsunda gena
sem eru í genamengi mannsins hef-
ur vísindamönnum tekist að útiloka
langflest sem mögulega orsök FOP
Associated Press
▲ Dr. Fred Kaplan gantast við Sophiu Forshtay er hún kemur til hans í
eftirlit. Kaplan hefur helgað starfsævi sína því að leita leiða til að lækna
þann skelfilega erfðasjúkdóm sem Sophia þjáist af. Móðir Sophiu,
Constance Green, er einnig á myndinni.
► Olivia Forshtay, til
vinstri, fylgist með yngri
systur sinni, Sophiu, að
leik í garðinum á heimili
þeirra í Fort Lee í New
Jersey. Sophia lætur
ekki þverrandi mátt í
handleggjum aftra sér
frá leiknum. Sophia þjá-
ist af afar sjaldgæfum
sjúkdómi er nefnist
fibrodysplasia ossificans
progressiva á latínu
læknavísindanna sem
þýðir „mjúkur vefur sem
markvisst verður að
beini.“
og Kaplan segir að ekki sé
langt í land. Útskýring á
FOP myndi veita vísbend-
ingar um aðra beinasjúk-
dóma, s.s. gigt, beinþynn-
ingu og beingerðar hjarta-
lokur.
Associated Press
Eistland
Samþykkt
lögum
genabanka
Tallin. Reuters.
EISTNESKA þingið sam-
þykkti á laugardaginn lög sem
leyfa stofnun genabanka í
landinu og segja vísindamenn
að hann verði sá stærsti í
heiminum og mikill fjársjóður
fyrir rannsóknh- í erfðafræði.
Lögin voru samþykkt með
42 atkvæðum gegn þrem og
einn þingmaður sat hjá. „Þetta
þýðir að nú getum við hafist
handa,“ sagði Andres Metsp-
alu, prófessor í líftækni við
Háskólann í Tartu og einn
helsti málsvari genabankans,
sem verður notaður til þess að
rannsaka tengslin milli gena,
eða arfbera, og sjúkdóma.
Ekki í hagnaðarskyni
Lögin kveða á um reglur um
hvernig safna megi erfðaefni,
meðhöndla það og geyma til
þess að vernda gjafana. Mark-
miðið er að safna á næstu
fimm árum í bankann erfða-
efni úr einni milljón Eista, en
alls er íbúafjöldi landsins 1,4
milljónir. Lögin takmarka
notkun á upplýsingum úr
bankanum við visindarann-
sóknir sem ný stofnun, sem
sett verður á laggimar á
næstu mánuðum og ekki rekin
í hagnaðarskyni, leggur bless-
un sína yfir. Þeir sem brjóta
gegn lögunum eiga fangelsis-
vist yfir höfði sér.
Strangar
takmarkanir
Samkvæmt lögunum verða
þeir, sem gefa erfðaefni í
bankann, að gera það sjálfvilj-
ugir og halda þarf leyndu
hverjir þeir eru. Vinnuveitend-
um og tryggingafélögum er
bannað að safna erfðaupplýs-
ingum um starfsmenn eða við-
skiptavini og bannað er að
nota upplýsingar úr bankanum
í dómsmálum.
y.yyjyj.-
www.slilling ,is I
SKEIFUNN111 • SÍMI 520 8000 • BÍLDSHÖFflA 16 • SfMI 577 1300 • DALSHRAUN113 ■ SÍMI 555 1019
®] Stilling
snn. nAi rhraiini . rími
HEIMILISSÍMI
MEÐ NÚMERABIRTI
• Geymir allt að 90 númer
• Hringt beint
úr númerabirtingaminni
• Tengi fyrir heyrnartól
Doro