Morgunblaðið - 23.12.2000, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2000 R riKU M MORGUNBLAÐIÐ
■ U ■ |
Vísindavefur Háskóla íslands
Hvenær kom fyrsta
teiknimyndasagan út?
VISINDI
Að undanförnu hefur verið
heldur rólegt á Vísindavefnum
og margir af fastagestunum greinilega uppteknir víð jólaundirbún-
ing. Svarhöfundar eru iíka margir farnir í jólafrí og því hafa birst mun
færri svör en venjulega. Þó höfum við birt svör við spurningum um
fastastjörnur í Vetrarbrautinni, tímasetningu á jólahaldi,
vaxandi og minnkandi tungl, furstadæmið Seborga,
Quicksort-algóritmann, gallblöðruna og fisktegundir við
ísland.
Hvenær kom fyrsta teikni-
myndasagan út? Hver var tii-
gangur hennar og um hvað
var hún?
SVAR:
Uppruni listforma er yfirleitt
ekki ákveðið ár eða dagur, heldur
mótast hefð og verður til á löngum
tíma. Myndir og myndmál eru eldri
tjáningarform meðal manna en rit-
mál með sértækum táknum, eins og
hljóðstafrófið okkar. Hellamálverk
virðast mörg vera málaðar frásagn-
ir af atburðum. Egypskt híeróglýf-
ur er einnig notað til frásagna af at-
burðum, sönnum eða skálduðum.
Hér á eftir verður rakið hvernig
myndasagan mótast til þeirrar
myndar sem við þekkjum hana, á
síðustu öldum.
Teiknimyndasögur eru sögur
sagðar í myndum sem styðjast fyrst
og fremst við ritmál til að birta
samtöl. Uppruna þeirra sem fjölda-
miðils má rekja til upphafs prent-
listar, en strax í kringum 1550 eru
prentaðar þýskar tréristur, mynda-
sögur sem fjalla um líf dýrlinga,
kraftaverkasögur úr samtímanum,
gamansögur um kynlegar ástir og
áróður gegn Gyðingum.
Árdagar myndasagna
Á 17. öld ber nokkuð á áróð-
^ lftíð
www.opinnhaskoli2000.hi.is
ursmyndasögum í kringum
trúardeilur og stjórn-
málaátök, aðallega í Þýska-
landi og Hollandi. Einna best þekkt
af þessum sögum er saga þrjátíu
ára stríðsins, gerð af Hollend-
ingnum Callot.
Hollenski listamaðurinn Romeyn
er sá fyrsti til að helga sig fyrst og
fremst myndasögugerð. Hann
fjallaði einnig um pólitíska viðburði
í sínum sögum.
Meinlegar harðstjórnar-eigin-
konur eru vinsælt viðfangsefni hæð-
inna myndasagna í Þýskalandi á 17.
öld - þær má enn sjá í myndasög-
um á borð við Gissur Gullrass. Þá
ber og á glæpasögum á 18. öld og til
verður rómantísk ímynd utangarðs-
glæpamanna, sem skilar sér í
spæjarasögum síðar meir. Hollend-
ingar framleiða á sama tíma nokkuð
af myndasögum ætluðum bömum.
Um miðja 18. öld gera Rússar líka
háðskar myndasögur um ýmis efni.
Myndasögur Bretans Hogarths
þykja listilegur tilbúningur. Sögur
hans voru oftar en ekki hæðinn far-
vegur samfélagsádeilu. En í þeim
var ekkert stuðst við talmál og þær
voru flestar sagðar í einum ramma.
Samlandar Hogarths, Rowland-
son og Gillray halda fram hefð hans
en ganga lengra í skrumskælingum
og ýkjum. Þeir og fleiri Bretar ein-
falda teiknimyndirnar og auka um
leið táknrænu - nota bakgmnn og
umhverfi til að gefa stétt og stöðu
til kynna með einstökum hlutum,
skissa upp arin frekar en teikna
heila stássstofu.
Svisslendingurinn Rodolphe
Töpffer hefur hins vegar verið
nefndur faðir teiknimyndasögunnar.
Hann lifði fyrri hluta 19. aldar og
leggur til myndasöguhefðarinnar
hennar helstu aðalsmerki til okkar
daga:
• Andhetjuna sem stritar mark-
laust og hlægilega gegn örlög-
um og óvinveittu samfélagi.
• „Markvisst markleysi" í frá-
sögn, útúrdúra og uppákomur
sem vart koma fléttu sögunnar
við.
• Og síðast en ekki síst: Skissu-
legar teikningar þar sem raun-
særri þrívidd var kastað fyrir
róða en áhersla lögð á hreyf-
ingu og spennu.
Siðferðisboðskapur sagna hans
var óræður þar sem hefðbundið or-
sakasamhengi glæps og refsingar
var hunsað.
Myndasögur sem upp úr miðri
19. öld taka að birtast í dagblöðum
og tímaritum em flestar undir
sterkum áhrifum frá Töpffer.
Bresku hjónin Marie Duval og
Charles Ross lögðu persónuna Ally
Sloper til myndasöguhefðarinnar.
Hann var fyrsta framhaldspersóna
myndasagnanna, það er fyrsti fasta-
gestur í blaði.
Fyrsti listamaðurinn til að hafa
myndasögur að atvinnu var Þjóð-
verjinn Wilhelm Busch á seinni
hluta 19. aldar. Hann gaf bæði út í
blöðum og bókum. Bækumar gerðu
honum kleift að gera lengri sögur
en annars tíðkuðust. Sögur hans
em byggðar á hefð Töpffers en em
rökvísari og jarðbundnari. Best
þekktar meðal persóna hans em
stráklingamir Max og Moritz, en
tvíeyki af þeirra toga enduróma um
alla sögu myndasagnanna, á síðustu
ámm, til dæmis í Beavis og Butt-
head. Busch lagði líka til ýmislegt
táknmál sem enn er stuðst við, tákn
fyrir hreyfingu, hávaða og tilfinn-
ingaviðbrögð.
Fyrri hluti 20. aldar
og Bandaríkin
Fyrstu myndasöguna sem birtist
í almennu dagblaði átti Frakkinn
Caran d’Ache í dagblaðinu Le Fig-
aro, upp úr 1880. Myndum hans
fylgdi ekkert ritmál. Hann þróaði
mjög uppbyggingu myndasagna;
skapaði stígandi í fáránleika, sem
margir hafa síðan leikið eftir.
Myndasöguræmur dagblaða, í
þeirri mynd sem þær þekkjast í
dag, urðu til undir lok 19. aldar,
þegar bandarísk dagblöð kepptu
harkalega um hylli lesenda. Persón-
an Yellow kid, sköpuð af Richard
Outcault, varð þá til sem fyrsta
framhaldspersóna bandarískra
teiknimyndasagna. Talblaðran
staðlaðist með gula krakkanum, en
lítið hafði farið fyrir henni síðan á
17. öld.
I kjölfarið sló myndasagan „Katz-
enjammer Kids“ eftir Rudolph
Dirks í gegn, með talblöðrur, stöð-
ugan hóp persóna og skiptingu frá-
sagnarinnar í ramma.
Aðrar myndasögur sem gegndu
mikilvægu hlutverki í þróun mynda-
sögunnar eftir að hún komst í dag-
blöð voru „Little Nemo in Slumber-
land“ eftir Winsor McCay, „Winnie
Winkle“ eftir Martin V. Branner og
„Tillie the Toiler" eftir Russ West-
over.
Tarzan var fyrsta ævintýraræm-
an. Höfundur hennar, Harold Fost-
er, sótti mikið til kvikmynda í fram-
setningu sinni og teikningar hans
voru nákvæmari og raunsærri en
lengi hafði sést í myndasögum.
1933 hefst útgáfa myndasögu-
blaða í Bandaríkjunum, í sama broti
og algengast er enn í dag (19x26
cm).
Seinna stríð og Evrópa
Á tíma seinni heimsstyrjaldar
snúast bandarískar myndasögur
mikið um stríð og glæpi og eru mik-
ið lesnar af amerískum hermönnum
á vígvöllum. Þessar sögur urðu al-
ræmdar fyrir siðleysi og bæði evr-
ópskir og bandarískir uppalendur
urðu mótfallnir myndasögum.
Myndasöguiðnaðurinn brást við og
dró nokkuð úr ofbeldi, kynþátta-
hatri og stríðshyllingu.
„Bókmenntalegar" myndasögur,
með heimspekilegu, sálfræðilegu og
félagsfræðilegu ívafi, urðu vinsælar
á seinni hluta 6. áratugar. Einna
hæst reis Smáfólk eða Peanuts eftir
Charles Schulz sem enn birtist í
Morgunblaðinu.
I Evrópu nutu amerískar mynda-
sögur mikillar hylli, svo Bretar
lögðu fyrst og fremst til myndasög-
ur handa börnum, t.d. Róbert
bangsa (Rupert bear) eftir Mary
Tourtel. En í seinni heimsstyrjöld-
inni urðu fullorðinsmyndasögur vin-
Jólasveinadraum ur
DRAUMSTAFIR Kristjáns Frímanns
Mynd/Kristján Kristjánsso
ÞORLÁKUR sá er messa dagsins
er kennd við mun hafa lifað og þjón-
að drottni við upphaf kristnitöku á
íslandi. í lífi sínu var hann öðrum
mönnum fyrirmynd um gott líferni
og góðvildin ein í garð annarra.
Stuttu eftir komu pilts frá námi er-
lendis í kristnum fræðum urðu ætt-
ingjar hans ólmir að útvega honum
auðugt kvonfang eins og segir frá í
Sögu daganna:
„En þá voru þær konur svo í hér-
aði er bestur kostur þótti vera er
ekkjur voru. Nú varð Þorlákur að
því ráði eggjaður, og fór hann síðan
og frændur hans með honum á bæ
þann er í Háfi heitir og ætlaði að
biðja sér ekkju þeirrar virðulegrar
er þar bjó, og var við þeim tekið þar
forkunnarvel. En er þeir tóku svefn
eftir góðan beina á þeirri hinni
sömu nátt þá sýndist Þorláki í
draumi maður göfuglegur yfirlits
og með sæmilegum búningi, og
mælti: „Hvert hafið þér ætlað hing-
að yðar erindi," segir hann, „ef þér
megið ráða.“
Þorlákur svaraði: „Ég veit eigi að
hverju verða vill,“ segir hann.
Sá mælti er honum sýndist i
drauminum: „Veit ég,“ sagði hann,
„að þú ætlar þér hér konu að biðja.
En þú skalt það mál eigi upp láta
koma af því að það mun eigi ráðið
verða, og er þér önnur brúður
miklu æðri huguð (þ.e. kirkjan) og
skaltu öngrar annarrar fá.“
En er hann hafði þetta mælt þá
hvarf hann frá honum að sýn, en
Þorlákur vaknar. Og var hann þá
svo frá horfinn þessu máli að hann
bað sér aldrei konu þaðan frá.„
Um andlegan kraft Þorláks og
kynngimögn segir meðal annars:
„Ef fénaður sýktist þá batnaði
ávallt við hans yfirsöngva ef lífs var
auðið. Vatnsvígslur hans voru
merkilegar svo að bæði fékk bót af
menn og fénaður. Ef vatni því var
dreift yfir fénað, er Þorlákur hafði
vígt, þá grandaði því nálega hvorki
sóttir né veður eða dýr. Ef mýs
gerðu mein á mat eða klæðum þá
kom fall í þær eða hurfu allar af
vatninu ef því var yfir stökkt.“
Þegar Þorlákur var vígður bisk-
up 1178 var þettahafteftir vígslu-
biskupi hans, Eysteini erkibiskup:
„Biskup hæfir að sé,“ sagði hann,
„lastvar og lærður vel, dramblaus
og drykkjumaður lítill, ör og óá-
gjarn, skýr og skapgóður, góðgjam
og gestrisinn, réttlátur og ráð-
vandur, hreinlífur og hagráður,
tryggur og trúfastur, mildur og
máldjarfur, ástsamur viður alþýðu
en ávítsamur við órækna,“ og má
sjá að það er heilags manns að vera
með þeim hætti.“
Þorlákur var tekinn í helgra
manna tölu við andlát sitt 1193, þá
sextugur að aldri. Sem biskup
skrýddist Þorlákur tisku þess tíma,
rauðleitum skrúða og skikkju með
ljósum kraga og þegar myndir af
honum er skoðaðar minnir útlit
hans og lífemi óneitanlega á annan
biskup er Nikulás hét og þjónaði í
Mym í litlu Asíu á fjórðu öld. Sá
varð vinsælastur þeirra biskupa er
helgi hlutu því hann þótti einkar
bamgóður, ljúfmenni hið mesta og
gæddur yfimáttúrulegum kröftum
til góðra verka. Eftir dauða sinn óx
hann í hugum manna sem vemdari
bama og fátæklinga og fékk við-
umefnið „Faðir jóla.“ Nikulás helgi
varð því Sankti Kláus eða Jóla-
sveinninn, faðir jóla og mér er ekki
örgrannt um að Þorlákur helgi sé
sá hinn sami faðir þótt skatan hafi
ratað hér á hans borð.
Gleðilegjól.
Draumur „Dísu“
Mig dreymdi að ég væri að byggja
kirkju, hún var úr viði og lík staf-
kirkjunum. Ekld var hún stór en
mér þótti hún falleg. Ég var ekki
búin að ljúka við hana, ætlaði að
klára hana þegar ég hefði tíma til.
Veðrið var gott í draumnum, logn
og blítt.
Mér fannst ég líta í kring og sá
þá móður mína álengdar (hún er
látin fyrir mörgum áram), sat hún
með fallega hymu á ökklunum og
prjónaði. Brosti hún til mín og var
afskaplega ánægð yfir þvi sem ég
var að gera. Þó sérstaklega að ég
ætlaði að klára bygginguna.
Draumurinn var ekki lengri og
um það bil eitt ár síðan mig
dreymdi hann.
Ráðning
Þegar líður á æfina og maðurinn
hefur öðlast þroska til að greina
hismið frá kjarnanum verða draum-
arnir oftar tærir og lausir við allt
óþarfa prjál, sviðsmuni og aukaleik-
ara sem ragla drauminn og gera
hann þvælulegan eins og greina má
í draumum unglinga. Draumur
þinn, Dísa, er skýr, hann lýsir
manneskju sem hefur byggt upp
traust en sveigjanlegt sjálf (staf-
kirkjan), laust við hroka og yfirlæti.
Þetta veganesti virðist hafa dugað
vel í gegnum tíðina (kirkjan er enn í
byggingu) og skilað þér góðum and-
legum arði (hyrnan og prjónaskap-
ur móður þinnar) sem þú hefur get-
að miðlað víða. Ef stafkirkjan er
skoðuð nánar sem draumtákn er
hún fyrst ígildi sálarinnar en efnið
og formið hefur sérstaka merkingu.
Stafimir merkja stoðirnar (grann,
stuðning, heilbrigða skynsemi) sem
þú hefur veitt í lífinu og lagið visar
til þess andlega krafts sem jarðfesti
stoðirnar. Hyrnan í draumnum gef-
ur í skyn heilaga þrenningu og því
má ætla að móðir þín hafi gengið
um heilagan veg inn í draum þinn
og þannig séð er draumurinn ekki
bara draumur.
• Þeir lesendur sem vitfa fá drauma sína birta
og ráðna sendi þá með fullu nafni, fæðing-
ardegi ogári ásamt hcimilisfangi og dul-
nefni til birtingar til:
Draumstafir
Kringlunni 1
103 Reykjavfk
eða á hcimasíðu Draumalandsins
http://www.dreamland.is.