Morgunblaðið - 23.12.2000, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2000 43
UMRÆÐAN
Styðjum sjálfs-
ákvörðunar-
rétt Palestínu-
manna
TÍMI Ísraelsríkis á
mælikvarða mann-
kynssögunnar er
skammur og forsendur
þess gera það ekki líf-
vænlegt. Óll barátta
fyrir jafnrétti borgar-
anna, afnámi forrétt-
inda og brottför hers
af hernumdum svæð-
um sneiðir að rótum
ríkisins. TUurð þess er
ekki óskyld landnámi
hvítra manna í „villi-
manna“-samfélögum í
Ródesíu og Suður-Afr-
íku, nema ísrael varð
seinna að raunveru-
leika og byggði ekki
síst á nauðungarflutningum föður-
landslausra Gyðinga þangað fyrir
og eftir heimsstyrjöld.
Mikilvægt er að átta sig á hvaða
spurningar pólitísk saga undan-
genginnar aldar er búin að afgreiða,
hvaða öfl eru nú að verki í þessum
heimshluta og hvaða styrkur býr í
baráttu Palestínumanna.
Síonismi (stuðningur við ísraels-
ríki og brottrekstur Palestínu-
manna) og gyðingdómur eru tvennt
ólíkt, en margt er skylt með gyð-
ingahatri og síonisma. Gyðingahat-
ur er líka kynþáttastefna, þekktust
fyrir villimannlega útfærslu nasista.
Gyðingahatur er ekki horfið af sögu-
sviðinu. Það á samleið með hægri-
öfgahópum sem víða eru lögð drög
að nú, þegar fyrirsjáanlegt er nota-
gildi þeirra til þess að sigta út blóra-
böggla í þj óðfélagskreppu og at-
vinnuleysi og ógna vinnandi fólki og
bægja frá baráttu og sjálfstæðri
stj ór nmálaþátttöku.
Kenningar um samantekin ráð
„gyðinga" eru sögulega þáttur í
slíku ferli og gegndu ekki hvað síst
hlutverki í Bandaríkjunum þegar
menn voru kallaðir fyrir nefnd til að
gera grein fyrir því hvort þeir hefðu
„óamerískar" hugsanir, hvaða fólk
jaeir umgengjust og þess háttar.
Kenningar um gyðingasamsæri eru
ódýr skýring stjórnmálaafstæðna
og sneiða að öllum sem teljast vera
af gyðinglegum uppruna. Nútíma-
stjórnmál eru ekki samsæriskennd.
Ráðherrar í ríkisstjórn William
Clintons þjóna ekki hagsmunum er-
lends ríkis, þeir þjóna ráðastétt
Bandaríkjanna. Það sést ævinlega
þegar nýr forseti setur saman rík-
isstjórn, því hún samanstendur af
fulltrúum auðvalds-
samsteypna og stór-
fyrirtækja í helstu
fylkjum ríkisins. Það
sem næsta ríkisstjórn
aðhefst í Austurlönd-
um nær tekur ekki mið
af öðru en heildarhags-
munum þessa heims-
valdaríkis. Hvað ríkis-
stjórn í ísrael gerir
mótast af spennitreyju
sem hún er í. Fyrst af
baráttu Palestínu-
manna og getu þeirra
til að afla bandamanna
og gera fjendur sína
óvirka. Þá af skilmál-
um sem Bandaríkja-
stjórn setur henni og mótast af
bandalagi hennar við aðrar ríkis-
stjómir á svæðinu.
Bandaríkin leiða í krafti hervalds
„samninga" og „aðgerðir“ á átaka-
svæðum. Persaflóastríðið var
áhrifamikið um þær styrkleikaaf-
stæður sem ríkja nú milli heims-
Austurlönd
Kenningar um sam-
antekin ráð „gyðinga“
eru ódýr skýring stjórn-
málaafstæðna, segir
______Sigurlaug S.________
Gunnlaugsdóttir, og
sneiða að öllum sem
teljast vera af gyðing-
legum uppruna.
valdaríkjanna. Eitt af markmiðum
Bandaríkjanna í því stríði í var að
komast í þá aðstöðu að þvinga fram
„lausn“ á Palestínumálinu. Tækist
þeim að uppræta Intifada-uppreisn-
ina að einhverju leyti án þess að
hætta á að byltingarástand blossaði
upp, væru þeir miklu nær því að
koma sér upp stöðugu og ábatasömu
sambandi við helstu ríkisstjórnir á
svæðinu. Það eru þjóðir allt frá Atl-
antshafsströnd Norður-Afríku til
Persaflóa, margfalt stærri en ísrael,
sem ráða yfir gífurlegum olíuauð-
lindum. Það er markmið Bandaríkj-
anna að verða ráðandi og hafa til-
Sigurlaug S.
Gunnlaugsdóttir
tölulega tryggt og ábatasamt
samband við ríkisstjórnir þessara
landa.
Hvernig umgangast Bandaríkin
þá ísrael? Áður þurftu Bandaríkin
að reiða sig á ísrael. Það var þegar
uppreisnir gegn fornlegri áþján og
ásælni heimsvaldaríkja gerðu þeim
ástandið erfiðara í löndunum í
kring, áður en kapítalískar ríkis-
stjórnir festu sig þar í sessi. Israel
er í vaxandi mæli einangrað. Bilið
milli utanríkishagsmuna Israels og
Bandaríkjanna breikkar. Það lýsir
glöggt stöðu ísraels að Bandaríkja-
menn héldu ísrael frá þátttöku í
Persaflóastríðinu, ráðlögðu þeim að-
eins að dreifa gasgrímum.
Sjálfsstjórnarsvæðin urðu til með
Óslóarsamningnum 1993 og byggð-
ust ekki síst á þeirri afstöðu þorra
Palestínumanna að það væri kostur
sem mætti nota í baráttunni. Á korti
þar sem sjálfsstjórnarsvæði Palest-
ínumanna eru merkt líkjast þau
meira skotmörkum en sjálfstæðu
landi. Jassir Arafat, forseti Palest-
ínu ræddi í nóvember við Clinton
forseta Bandaríkjanna og Blair for-
sætisráðherra Bretlands um
„verndarlið“ 2000 manna sveitar frá
Sameinuðu þjóðunum. Arafat skýrði
í sjónvarpsviðtali að hann ætti við
„skjóta liðsveit sem verndaði okk-
ur“.
Þess eru engin dæmi að „friðar-
gæslulið“ hafi verið notað til þess að
styðja þjóðfrelsisbaráttu neins stað-
ar í heiminum. Bandaríkin, sem hafa
undirtökin í öllum aðgerðum Sam-
einuðu þjóðanna, hafa stutt tilþrif í
átt til vopnahlés. Bandaríska leyni-
þjónustan CIA hefur átt aðild að
samningaviðræðunum. Þáttur henn-
ar hefur verið ljós síðan samkomu-
lag var undirritað að undirlagi
Bandaríkjastjórnar árið 1998 um
stjórnunarskipulag á „sjálfsstjórn-
arsvæðum" Palestínumanna, út-
færslu á Óslóarsamningnum. Þar
samþykkti Netanyahu, þáverandi
forsætisráðherra Israels, að draga
sig að einhverju leyti til baka frá
Vesturbakkanum, en Þjóðarráð Pal-
estínumanna skyldi standa við fyrra
loforð um að strika út setningu úr
stofnskrá PLO, Þjóðfrelsisfylkingar
Palestínumanna, þar sem krafist er
endaloka Ísraelsríkis og lýðræðis-
legrar, veraldlegrar Palestínu. Sam-
kvæmt samkomulaginu þjálfar
bandarísk og ísraelsk lögregla pal-
estínskar lögreglusveitir, og hafa
þrýst á um að þær verði notaðar til
að halda Palestínumönnum í skefj-
um.
Það er engin leið fyrir hvorki
ísrael né Bandaríkjastjórn að
„leysa“ deiluna án þess að viður-
kenna sjálfsákvörðunarrétt Palest-
ínumanna. Það er þversögn sem
samrýmist ekki tilveru Ísraelsríkis.
Alþýða manna um allan heim horfir
til Palestínumanna með virðingu
fyrir baráttuþreki þeirra. Þeir geta
unnið sigur en þarfnast skilyrðis-
lausrar, alþjóðlegrar samstöðu.
Höfundur er (Félaginu
Ísland-Palestína
DQ
TISSOT
Swiss 1853
Garðar Ólafsson
úrsmiður, Laekjartorgi
FERSKT • FRAMANDI « FRUMLEGT
Framandi
grænmeti og
kryddjurtir
Nýja NILFISK KING er
heimilisryksuga í sérflokid
NILFISK
5 ára mótorábyrgð
Einstök ryksíun
Hreint loft fyrir alla
Fyrsta flokks frá
i?n nix
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420
FRÁBÆR DÓMUR 3 \
„Endurminningar Rannveigar Löve sérkennara er ein athygl-
isverðasta ævisaga þessa árs, því ævi hennar er svo sannar-
lega söguleg...Rannveig var síðan brautryðjandi sem sér-
kennari við Melaskólann. Starf hennar þar var liður í að gera
skólastarfið manneskjulegt og nútímalegt þar sem engum var
úthýst....Eiginlega er þessi saga hálfgerð íslandssaga og um
leið saga kynslóðar sem hefúr lifað tímana tvenna, íslensku
lýðveldiskynslóðarinnar...Þessi saga stendur okkur nærri og
þessar endurminningar eru prýðilega samdar, stíllinn er lát-
laus og atburðimir em látnir tala sínu máli. Sagan er ítarleg
og þannig næst að skapa heilsteypta mynd af áhugaverðri
konu, óvenjulegri íjölskyldu hennar, þrautum og erfíði og að
lokum óeigingjömu starfi í þágu annarra. Sögunni er ekki *
skipt í kafla sem gerir að verkum að lesandinn verður að
sökkva sér í textann til að fylgja sögunni. En það gerir ekkert
til því að sagan er bæði spennandi og heillandi.“
Úr ritdómi Armanns Jakobssonar í DV, 20. des. sl.
Hér verða ekki sögð fleiri orð, en bókin sem íjallað var um er
Myndir úr hugskoti, æviminningar Rannveigar I. E. Löve.
Sjá nánar www.jolabok.is
Satínnáttkjólar
Stuttirverð kr. 3.500
íðir verð kr. 5.900