Morgunblaðið - 23.12.2000, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2000
BRÉF TIL BLAÐSINS
Umönnunarstörf,
verðmæti og umbun
Frá starfsmönnum heimaþjónustu
Bólstaðarhlíð:
TILEFNI þess að við, hópur starfs-
manna (-kvenna) í „umönnunar-
störfum", setjum smáhugleiðingu á
blað eru skrif Þórunnar Svein-
björnsdóttur, 1. varaformanns Efl-
ingar-stéttarfélags og á sæti í nefnd
um ímynd ellinnar og þess að starfa
með öldruðum á vegum heilbrigð-
isráðuneytisins.
Við viljum í upphafi taka undir þá
uppgötvun nefndarinnar og ekki síst
þinnar, Þórunnar, að störfin sem við
vinnum era mjög mikilvæg, oft gef-
andi en væntum við ekki síst slít-
andi. Ekki minnst vegna þess að á
undanfömum misserum hefur gefist
minni og minni tími til að sinna
félagslega þætti starfsins en þess í
stað hefur „umönnunin“ þróast
meira yfir í ræstingar, skúringar og
þessháttar störf. Svo og er gefinn
minni og minni tími á hvert heimili.
En þetta hlýtur þessi hamingju-
sama nefnd að hafa uppgötvað á yf-
irferð sinni á milli öldrunarstofnana
þó svo að við undirrituð höfum ekki
hitt téða nefnd. Enda við á fullri
ferð á milli heimila. Við að vísu skilj-
um ekki alveg að þú, Þórann, sem
ert fyi-rverandi formaður Starfs-
mannafélagsins Sóknar (starfsmað-
ur okkar og formaður), skulir upp-
götva í nefnd hvað starfið er
mikilvægt, merkilegt, gefandi og
fjölbreytt. En það sem ekki síst
vakti okkur til umhugsunar var
launaþátturinn í greininni. Þar talar
þú um að laun þessa hóps hafi
hækkað veralega í sumar og einnig
talar þú um að stofnanir eigi meiri
möguleika á að laða til sín fólk
vegna „sveigjanlegra matsaðferða"
til launa. Við könnumst ekki við
þessar gífurlegu launahækkanir
sem þú talar um, altént komu þær
ekki til okkar. Eða ert þú að tala um
samningana við einstaka öldrunar-
stofnanir þar sem þátttaka í at-
kvæðagreiðlu var lítil sem engin?
Við vitum að þú hlýtur að svara
þessu og viltu þá ekki segja frá í
krónum hvað þessi veralega hækk-
un var mikil.
Og þá era það launin fyrir hin
mikilvægu, fórnfúsu og verðmætu
(svo eitthvað sé nefnt) störf. Hér er
dæmi um grunnlaun einnar okkar
sem vinnur í heimaþjónustu, er með
20 ára starfsreynslu við umönnun
eldra fólks; grannlaun 83.897 krón-
ur á mánuði fyrir fullt starf. Þú seg-
ir í grein þinni „að sjálfsögðu væri
æskilegt að laun væru veralega
hærri en það skortir á vilja rík-
isvaldsins eins og oft áður“. Við urð-
um allmikið hissa þegar við sáum
þetta.
Við spyrjum í einlægni hvenær í
sögu okkar í baráttunni fyrir bætt-
um kjöram hefur ekki verið skortur
á vilja hjá atvinnurekendum.
Það sem brennur á að okkar mati
er að bæta úr þeim skorti á þeirri
hvatningu og stuðningi af hálfu for-
ystu okkar til að hvetja okkur til
dáða og nota þau verkfæri sem við
búum yfir til að sækja þau réttlátu
kjör sem era eitthvað í takt við þá
miklu ábyrgð, fómfýsi og verðmæti
sem störf okkar eru.
Víða út um land hafa, sem betur
fer, náðst mun betri kjör, ekki síst
fyrir tilstuðlan duglegrar forystu
sem hefur hvatt til dáða og sam-
stöðu. Tökum það sem fyrirmynd,
ekki til að semja félaga okkar í átt-
ina niður til okkar, heldur okkur
upp til þeirra.
Og semjum um krónur ekki prós-
entur. Það var óskiljanleg afstaða í
samningum vetrarins að kröfur Efl-
ingar skyldu vera í prósentum. Við
viljum ekki trúa því að það hafi ver-
ið þinn vilji, Þórann. Krafa okkar í
komandi samningum hlýtur að vera
í takt við þær kröfur sem verið er að
gera við ríkið og sveitarfélög í þeim
mikilvægu störfum sem unnin era
t.d. í skólum. Við skulum hætta að
æfa „sveigjanleikann". Við eram
orðin bæði sveigð og beygð.
P.S. Hvað er annars borgað fyrii’
þessi nefndarstörf?
STARFSMENN HEIMAÞJÓN-
USTU BÓLSTAÐARHLÍÐ:
Guðrún Ág. Sæmundsdóttir,
Anna Jóhannsdóttir, Helga Sveins-
dóttir, Elsa Jónsdótth’, Guðrún
Jóna Melsteð, Guðfinna Björns-
dóttÍTj Erna Hannesdóttir, Anna
Sigrún Ásmundsdóttir, Ragnhildur
ísleifsdótth’, Guðrún Margrét Sig-
urbjörnsdóttir, Kiistín Árnadóttir,
Helga Árnadóttir, Sigríður S. Sig-
urjónsdóttir, Ragnheiður G. Gests-
dóttir.
Rey kj anesbr aut
FráÁrna Birni Guðjónssyni:
ÞAÐ DÝRMÆTASTA sem við eig-
um er lífið sjálft, við elskum lífið.Virð-
ing okkar fyrir lífi annars fólks er slík
að við eyðum stóram hluta þjóðarút-
gjalda til að vernda og bæta mannslíf
og koma í veg fyrir að fólk deyi fyrh’
aldur fram af völdum slysa eða sjúk-
dóma. Því er stöðugt reynt að efla
læknavísindin með kostnaðarsömu
rannsóknai’starfi, auk þess sem öllum
ráðum er beint til forvama ekki síst
með því að fræða almenning á ýmiss
konar hættum.
Lög þjóðarinnar era sett til að
vemda líf okkar, gera það hamingju-
ríkt. „Líf í fullri gnægð“ er það sem
Jesús heitir okkur ef við fylgjum hin-
um góða og fullkomna vegi sem fagn-
aðarerindið boðar. En óvinurinn, djöf-
ullinn, er sá sem kemur til að deyða
okkur.
Guð elskar okkur og vill að við vilj-
um velja hans leið sem er kærleik-
urinn, að við elskum hvert annað.
E.t.v. reynum við að gera okkar
besta en við eram misjöfn. Sumum
tekst vel til en öðram ekki, því miður.
í lýðræðisþjóðfélagi eins og okkar
höfum við tækifæri til að hafa áhrif, á
hvert annað og á þjóðfélagið í heild.
Við getum talað skrifað og rökrætt
um það sem betur mætti fara og ekki
síst höfum við tækifæri til að koma
skoðunum og hugmyndum okkar til
þeirra sem við höfum kosið til að ráða
morgundeginum fyrir okkur.
Enginn er fullkomin, okkur skeikar
og bregðumst okkai’ skyldum við
hvert annað, við fjölskyldm- okkar og
þjóðfélagið. Margir fá góðar hug-
myndir sem gætu breytt heilmiklu ef
næðist að framkvæma þær. Sumir
hafa ekki kjark til að koma fram í
dagsljósið með hugmyndir sínar því
þeir era hræddir við valdhafanna.
„En ótti er ekki í elskunni."
„Ef Guð er með þér, hver er þá á
móti þér?“
Mörg líf hafa tapast og fjölmargir
eiga um sárt að binda, fjölskyldur
sundrast er ástvinir deyja eða slasast
eða að þeir verða örkumla allt sitt líf.
Margir upplifa þjáningar eftir slys í
langan tíma sem ástvinir finna sem
óhamingju í lífinu. En í þjáningunni
vill Guð mæta okkur og gefur okkur
sinn frið.
Ábyrgð stjómvalda er því mikil, því
þeir ráða aðgerðum og hafa með
höndum alla gát á lífi okkar ófull-
komnu manna með alls konar lögum
og reglugerðum. Hlutverk stjóm-
valda er að sýna þjóðinni ást og um-
hyggju. Og eins og þegar er komið
fram er í raun öllum skattpeningum
okkar eytt í þetta, allt til að vemda líf
okkar og gera það hamingjusamara.
Umferðin er stærsti, ótímabæri líf-
taki þjóðaiinnar. Árið sem er að að
enda hefur verið eitt versta hvað
þetta varðar í manna minnum. Þetta
er alvarlegt mál. Hvemig hafa menn
bragðist við, aðilar eins og Umferð-
arráð, Almannavamir, slysavarnar-
félögin og Vegagerðin. Þessir aðilar
sem fá mikla fjármuni af almanna fé
til starfa, allt undir vemdarvæng
stjórnvalda? Nú heyrist aðeins frá
þeim að slysin séu fólkinu sjálfu að
kenna, það gerir „mistök“, þetta er
haft eftir embættismönnum stjóm-
valda, ekki síst í ríkisfjölmiðlunum.
En mannslíf tapast. Enginn er full-
kominn nema Guð. Við geram mistök
sem við verðum að taka ábyrgð á.Við
getum að sjálfsögu bætt okkur mik-
ið.Við eigum að læra af mistökunum.
Við beram vissulega ábyrgð á eigin
mistökum. Beram við sem einstak-
lingar ein ábyrgðina? Stjómvöld bera
ábyrgð á framkvæmd laga og reglu-
gerða sem snerta þessi mál. Þau fara
með öll öryggismál fyrir okkur, með
lögum. Við þörfnumst aðgerða strax.
Þrátt fyrir fjölda slysa og mildnn
kostnað í umferðarmálum hafa engar
hugmyndir komið fram um aðgerðir
„strax“ á Reykjanesbraut.
Ýmislegt er hægt að gera strax
sem engin hefur enn minnst á.
Ég er hér með hugmyndir sem ég
GA.NGA. 1GARÐ
Jólasveinn í heinisókn á
!. Iiverjum degi kl. 15
fram að jólum!
SFIÖLSKYLDU-OÚ
HÚSDYRACARDURINN
WHOHi
óska eftir að séu ræddar. Þær era eft-
irfarandi:
1. Á hraðbrautum erlendis era víða
settar upp á miðju vegarins steyptar
einingar þannig að þær skilja á milli
akreinanna þannig að útilokað er að
bifreiðar geti rekist á úr gagnstæðri
átt. Þetta ætti að gera strax við Kúa-
gerði. Þessar einingar era til staðar -
til sölu hjá B.M. Vallá.
2. Rifflaðar rendur (steyptar) sem
valda miklum hávaða þegar keyrt er
yfir á þær, þannig að bifreiðarstjóri
myndi strax bregðast við ef hann er
kominn út í kant eða of nálægt miðju.
Slíkar rendur era á flestum hrað-
brautum erlendis og era mikið öryggi
og viðvöran fyrir ökumenn.
3. Blikkandi viðvöranarljós við
ýmsu, t.d. of miklum hraða, skyndi-
legri hálku, slæmri færð, óveðri og
m.fl.
4. Framúrakstur verði nú þegar
bannaður á ýmsum stöðum þar sem
ekki verða settir upp steyptir skil-
veggir á milli. Mai’gt fleira er hægt að
gera, svo sem sterk viðvöranarskilti
sem vara við hættulegum stöðum.
Nú era jól í nánd og við skulum
biðja til Guðs að eitthvað raunhæft
gerist í þessum málum, aðgerðir fari
af stað. Ég vonast eftir viðbrögðum
við þessum tihögum,
Guð blessi íslendinga.
ÁRNIBJÖRN GUÐJÓNSSON,
talsmaður Kristilega
lýðræðisflokksins.
ALMANAK HÁSKÓLANS
Jótagjöf útivistarfóí/fins
Verð If. 755
Fæst í öllum bókabúðum
Grýlukvöld
í Kolaportinu
ÞORLÁKSMESSU KL. 20:00
Grýla dansar með krökkunum
Jólasveinar gefa 400 jólagjafir
Grýluskrúðganga um miðbæinn
Tröllabúningakeppni krakka
Það komu tvö þúsund manns í fyrra. Grýla,
Leppalúði og jólasveinar koma því aftur
núna ð Þorlðksmessu og gefa krökkum
400 jólagjafir. Fyrstu tíu krakkarnir sem mceta
í tröllabúning fð að sitja í Grýluvagninum.
Tröllabörnin, Grýla og Leppalúði fara síðan
fyrir grýluskrúðgöngu um miðborgina.
Opið á Þorláksmessu
Kl. 11-23
Markaðslorg
KOLAPORTIÐ