Morgunblaðið - 23.12.2000, Page 61

Morgunblaðið - 23.12.2000, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2000 61 | FÓLK í FRÉTTUM •t ■ I Baldinn barnaskari TOJVLIST Geisladiskur ÓSKABÖRN ÞJÓÐARINNAR Óskabörn þjóðarinnar. Tónlist úr samnefndri kvikmynd. Flytjendur eru Bláskjár, XXX Rottweilerhund- ar, Stjörnukisi, Kanada, Ruxpin, Jag-úar, Dip, Purrkur Pillnikk, Mín- us, Toymachine, Dr. Spock, Brain Police, Biogen og Bix. 57,51 mín. Smekkleysa sm/ehf gefur út. ÞAÐ er óhætt að segja að kvik- myndin Óskaböm þjóðarinnar sé með umdeildari kvikmyndum ársins og sitt sýnist hverjum um ruslaralega úttekt leikstjórans Jóhanns Sigmars- sonar á ruslaralýð nútímasamfélags- ins. En hvað um það, eins og lög gera ráð fyrir er tónlist myndarinnar hér komin á hljómdisk. Innihaldið sam- anstendur að mestu af rokki í harðari kantinum og raftón- list sem sveipuð er hæfilegri neðanjarð- aráru. Efnisvalið er heilsteypt og það liggur groddalegur þráður í gegnum plötuna sem speglar inntak myndarinnar vel. Andi hennar er hér fangaður á far- sælan hátt. Bláskjár ríður á vaðið með titillagi myndarinnar og gefúr tóninn með valíumlegu víð- buxnarokki sem nikkar nett til sveita eins og Stone Roses og Happy Mondays. Sigurvegarar Músíktilrauna, takt- rímssveitin XXX Rottweilerhundar, fylgja svo í kjölfarið með dónarapps- laginu „Þér er ekki boðið“ sem er reyndar líkara löngum brandara með undirspili. Stjörnukisamenn koma svo næstir með nútíma kuldarokk og spyrja hlustandans hryssingslega hvort hann vilji deyja. Næst kemur rafrænt millispil, Kanada leikur sýru hlaðið hljóðbúta- verk með viðkomu í svona tuttugu dægurtónlistarstílum og hinn merki raflistamaður Ruxpin fylgir í humátt á eftir með ekki ósvipað verk, þó öllu skerptara. Funasveitin Jagúar brýt- ur þetta svo upp með frekar hefð- bundinni hrynhitakeyrslu og snúa í leiðinni út úr lífsspeki frá bresku sveitinni Primal Scream er þeir hrópa „You’ve got the money, I’ve got the dope!“ Dip, samstarfsverk- efni Jóhanns Jóhannssonar og Sig- tryggs Baldurssonar, eiga hér lagið „Mind in a vice“, lag sem hægt er að finna á plötu þeirra Hi-camp meets lo-fi. Dip lögðu upp með að semja „kvikmyndatónlistarlega“ tónlist og lagið hér er ágætis dæmi um þá við- leitni. Pönkgoðsögnin Purrkur Pillnikk hleypir því næst miklum rokkkafla í gang með tveimur lögum, „Excuse me“ og „Surprise“. Mínus eiga því næst frábært lag, „Denver", sem er að finna á nýjustu breiðskífu þeirra Jesus Christ Bobby, einni bestu ís- lensku rokkplötu síðustu ára. Akur- eyrska sveitin Toy Maehine læðir inn gruggskotnu kálhorníurokki sem er nokkuð í anda Korn og viðlíka sveita og hin dularfulla sveit Dr. Spock á hér glæsta þungapönkssmíð, hvar Óttarr Proppé, aðalleikari myndar- innar, fer á kostum. Eyðimerkur- rokkararnir svölu í Brain Police eiga svo hér svalan og kæruleysislegan rokkara sem er fullkomlega í stfi við myndina. Plötunni er svo snyrtilega pakkað saman af Biogen og Bix. Biogen sendir frá sér dramatíska, dimma og afar tilkomumikla raftóna en Bix leggur hins vegar til fallegt og vona- bjart lag sem er nokkuð í stíl við hina sætu sveit múm og lokar með því plötunni. Myndin var nokkuð lengi í vinnslu og sum laganna hér eru komin nokk- uð til ára sinna. Það kemur hins veg- ar ekki að sök því heildarupplifunin er, eins og áður segir, góð. Umslagið er smekklegt og stflhreint en aftur á móti afar rýrt af upplýsingum. Meg- inkosturinn við plötur eins og þessa er að oft bjarga þær lögum sem ella hefðu týnst, gott dæmi er t.d. framlag Dr. Spock. Oft eru svona plötur þó frekar tilgangslaus samtíningur laga, gerðar, að því er virðist, til að mjólka út smá aukapening og halda nafni myndarinnar á lofti. Því er ekki fyrir að fara hér. Hér hefur tónlistin úthugsaða hliðstæðu við myndina og er útgáfan því vel til fundin. Arnar Eggert Thoroddsen Nýja plata Óskar heitir Silent Journey Ósk sýnir á sér nýja hlið. Morgunblaðið/Kristinn Rokkið er ríkt í mér Ósk Óskarsdóttir sýnir á sér nýja hlið þar sem hún tínir til lög fyrir fólk sem hefur taugar til rokksins. FJÓRÐA plata tónlistarkonunn- ar Óskar Óskarsdóttur nefnist Sil- ent Journey. Ósk gaf fyrst út jóla- plötu, og síðan fylgdu fast á eftir tvær plötur; sú fyrri var unnin út frá þema um vorið en sú síðari var haustplata. Þar samdi Ósk lög við íslensk ljóð. Nú eru textarnir hins vegar á ensku og flestir eftir Lawrence J. Muscat, sem líka er þekktur sem trymbillinn Laurie Driver úr pönksveitinni The Ad- verts, en hann leikur einmitt i mörgum laganna á Silent Journey. Ljúft í minningunni „Þetta eru allt lög í rokkaðri kantinum. Þrjú þeirra tók ég upp árið 1982 en hin hef ég verið að taka upp frá 1985 og allt til dags- ins í dag.“ Ósk segist hafa fengið tækifæri til að gefa út disk vegna mistaka við seinasta disk, þar sem röng mynd var prentuð á diskinn. „Mér voru gefnir tveir mánuðir til að safna efni á diskinn ef ég vildi nýta mér tilboðið svo ég týndi til þessi rokklög sem ég átti. Ég hef aldrei sýnt þessa hlið á mér opinberlega þótt rokkið sé mjög ríkt í mér, og hef alltaf verið að vinna að því samfara þjóðlegu tón- listinni. Ég var mjög rokkuð áður fyrr.“ t - Rifjast þá ekki upp minningar við gerð plötunnar? „Jú,“ segir Ósk og hlær. „Þrjú laganna voru einmitt fyrstu upp- tökuverkefni Hjartar Howser, og þegar ég sagði honum frá því að ég hefði sett lögin á diskinn, sagði hann; „Já! Rauðvínsupptökurnar!" Bjólan var þá að kenna honum á græjurnar og við vorum með stór- an rauðvínskút með okkur, sem hjálpaði upp á stemmninguna þar sem við vorum fimm einstaklingar að spila saman í fyrsta sinn. Þetta. var 1982 og upptökurnar eru mjög* ' ljúfar í minningunni. Ákveðin stemmning myndaðist í lögunum svo mér datt ekki í hug að taka lögin aftur upp eða útsetja þau fyrir þessa útgáfu.“ Lagræn tónlist - En eru elstu lögin ekki ólík þeim nýjustu? „Ég sem mjög lagræna tónlist og lögin eiga það öll sameiginlegt. Eg betrumbætti kannski eitthvað þau lög sem ég hafði tekið upp hér heima, en annars eru þau lítið öðruvísi." - Hverjir hafa mest gaman af nýju plötunni? ^ „Ég er með það á hreinu að kon-' ur á aldrinum 30 - 40 hafa mjög gaman af henni,“ segir Ósk og hlær. „Ég segi þetta því vinkonur mínar hafa verið að dásama þenn- an meira en þjóðlegu diskana mína. Þetta kveikir einhverja minningu hjá fólki sem hefur taugar til rokksins. Arnar Eggert á Mogganum kallaði tónlistina síð- pönk og mér finnst það skemmti- legt og vel viðeigandi,“ segir Ósk brosandi að lokum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.