Morgunblaðið - 23.12.2000, Blaðsíða 62
MORGUNBLAÐIÐ
62 LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2000
á mbl.is
Um síðustu jól bauð Skjár£/V;fl og mbl.is, fyrstir netmiðla
og sjónvarpsstöðva, upp á beina útsendingu frá
aftansöng á aðfangadag. Sami háttur verður hafður á í ár
og munu Netverjar um heim allan geta fylgst með
íslenskum aftansöng. Útsendingin úr Grafarvogskirkju
mun hefjast rétt fyrir kl. 18 á aðfangadagskvöld og er í
samstarfi við Símann-lnternet.
Prestur verður séra Vigfús Þór Árnason og mun hann
þjóna fyrir altari. Organisti guðsþjónustunnar verður
Hörður Bragason og kór Grafarvogskirkju syngur.
Einleikarar eru Birgir Bragason á bassa, Bryndís
Bragadóttir á fiðlu og Einar Jónsson á básúnu og síðast
en ekki síst flytur Egill Ólafsson einsöng.
©
skjáre inn SÍMINNinternet
Fylgstu með
hátíðlegri athöfn!
AFTANSÖNGUR
jr
A
>
FÓLK í FRÉTTUM
Morgunblaðið/Jim Smart
Bjöm Jörundur er spakur í lund um þessar mundir, enda jólin að nálg-
ast: „Tónlistarmenningin hór á landi er hægt og rólega að skána.“
„Vegurinn til helj-
ar... eða himna“
Björn Jörundur Friðbjörnsson er potturinn
og pannan í gæðasveitinni Luxus en eftir
hana steinliggur platan Have a nice trip
sem út kom fyrir stuttu. Arnar Eggert
Thoroddsen átti glúrið samtal við Björn á
dögunum um þetta mál sem önnur.
HÚN lét nú lítið á sér bera, plata
Luxusar, er hún læddist upp í rekka
plötubúðanna. Útlitið minnir helst á
gæluverkefni hlédrægra grasrótar-
rokkara sem hímt hafa hundrað ár í
skúrnum. Bjöm Jörundur hefur enda
sjaldnast bundið bagga sína sömu
hnútum og meðreiðarsveinamir. Far-
síminn hringir. Bjöm svarar. Og við-
talið hefst.
„Upphaflega lagði ég upp með það
að gera plötu bara einn og sér,“ segir
Bjöm er hann útskýrir tilurð Luxus.
„En ég var með þennan óskamann-
skap og langaði mikið til að prófa
hvemig hann hljómaði saman. Strák-
arnir lögðu síðan svo mikið af mörk-
um að ég ákvað fljótlega að vera ekk-
ert að hafa þetta sólóplötu heldur sem
plötu hljómsveitar, þ.e. plötu Luxus.“
Hann segir upptökumar og hafa
gengið hratt og vel fyrir sig. „Þetta
tók svona þrjá vikur á að giska, fór
fram í ágústlok/septemberbyrjun."
„Þetta er voðalega listrænt um-
slag,“ lýsir blaðamaður yfir. „Já,“
svarar Bjöm. yÞetta er mjög glæsi-
legt umslag. Eg er mjög ánægður
með það. Þetta er mikil pæling ef
djúpt er rýnt. Þetta á sem sagt að
vera vegurinn til heljar...eða himna.
Menn velja. Þetta er sem sagt vegur
þama framan á.“
„Já,“ svarar blaðamaður og nú log-
ar ljósapera glatt yfir hausamótunum
á honum. „Mér sýndist þetta vera
svona skott...eða eitthvað.“
„Nei, þetta er sem sagt vegur sem
hverfur svona,“ segir Björn með
hægð.
Bjöm Jörundur gaf út plötuna um-
deildu BJF iyrir sex ámm síðan, van-
metið verk að mati Orra Harðarson-
ar, dægurtónlistargagnrýnenda
Morgunblaðsins eins og fram kom í
dómi hans um Have a nice trip í þessu
blaði (12/12/00). „Jú, hún er svolítið
þung, það er mikil pæling í henni og
það skildu hana ekkert allir almenni-
lega. Menn vom heldu ekkert að
leggja sig neitt eftir því að hlusta á
hana þar sem hún kom út á alveg af-
leitum tíma. Þegar hún kom út var
svona dans-, trommuheilabrjálæði í
gangi. Einn hljómur spilaður í fjóra
daga og allir ánægðir. Svo kemur
þessi plata út og hún passar ekkert
inn í umhverfið. Bara engan veginn.
Það var svona heildarhugmynd sem
lá á bak við hana, Guð almáttugur er
að líta yfir sköpunarverkið og er
svona frekar óánægður með þetta og
mannkynið er verstu mistök sem
hann hefur nokkum tíma gert. Sér-
staklega að því hann skapaði mann-
inn í sinni mynd, þar af leiðandi væri
hann líklega gallaður sjálfur eins og
við. Þetta var nú málið á plötunni.
Greinilega allt of safaríkar pæhngar
fyrir þetta lið.“
Útvarpið er dautt
Hvað nýju plötuna varðar hefur
nafn David Bowie verið nefnt ótt og
títt sem áhrifavaldur. „Það byrjaði
einhver á þessu helv... tuði og þá fóm
auðvitað allir að elta,“ segir Björn
ákveðinn. „Málið er að það em áhrif
þama frá David Bowie alveg eins og
er með alla tónhst sem ég hef gert en
hvorki meiri eða minni en áður hefur
verið. Það era auðvitað allir tónhst-
armenn undir áhrifum frá öðmm tón-
listarmönnum. Bowie er ekkert eini
áhrifavaldurinn þama, menn em
bara ekki nógu vel að sér í tónlistar-
sögunni til að heyra í hinum. Það er
fullt af Lou Reed, Peter Gabriel og
Bítlunum þama líka ef menn kunna
að hlusta á það. Það er svo sem skilj-
anlegt að menn reyni að negla þetta
svona niður, menn era náttúmlega
alltaf í bölvuðum vandræðum við að
skilgreina tónlist. En það er t.d. eng-
inn að agnúast út í hann Noel (Gallag-
her úr Oasis) fyrir að vera alltaf að
semja Bítlalög eða þá að fullt af bönd-
um séu að apa upp eftir Radiohead.
Þannig að ég vil bara segja þessu
fólki að halda sér saman og láta mig í
friði.“
Bjöm hefur álíka skeleggar skoð-
anir á fslensku tónlistarlífi í dag og
setur þær fram skýrt og skiþulega.
„Tónlistarmenningin hér á landi er
hægt og rólega að skána. Gaukur á
stöng er orðinn nothæfur. Útvarpið
er dautt og fólk er farið að fara á tón-
leika í staðinn. Það er búið að eyði-
leggja útvarpsstöðvamar. Rás 2 er
eina stöðin sem spilar eitthvað af viti,
svo em bara trommuheilar og rassa-
köst. Þannig að fólk er farið út að
hlusta á músík aftur og ég held að það
sé bara mjög jákvætt. Bara leyfa
þessum útvarpsstöðvum að fremja
þetta hægláta sjálfsmorð í friði og við
bara spilum á hljóðfæri í klúbbunum
á meðan. Það er bara fínt.“