Skírnir - 01.01.1830, Blaðsíða 17
17
jarl hertekinn, og allr hans farángr, herbúðir og
vistir og failstykki. VarS Paskevitsh mjög frsegr
af þessum sigrvinníngum, sem von var, JtviaS á
einum sólarhríng ytirvann hann fimtíu þúsundir
Tyrkja, meb einum 20 þúsundum, og lýsir þaS
bæSi ráöum og hreysti. Eptir þetta sneri hann
til borgarinnar Erzerúm, var portunum lokið upp
fyrir hönum af borgarmönnum , og veittar slíkar
viStökur, sem Díbitsh voru veittar í Adríanópel.
Erzerúm er höfuSborg á Ermlandi; stendr hún
nálægt uppsprettum Evfrat -fljótsins, og hefir
100,000 innbyggjara. Eptir aÖ Paskevitsli hafði
hvílt liS sitt, og sett varnarlið í borgina, lagði
hann upp með liði sínu, og stefndi til Trapezúnt,
er liggr við Svartahafið, og er þar lángr vegr ,á
milli. Atti liann margar smáorrustur og fekk sigr
í öllum. Loksins átti hann mikla orrustu við
Osman jarl frá Trápezúnt, og fekk þar líka sigr,
tók hann herbúðir lians ok mikið herfáng. Paske-
vitsh tók allar borgir og kastala, þar sem hann
fór, og þurfti hann lítið að hafa fyrir því suin-
staðar, því innbyggjararnir komu víða til hans, og
buðu hönum sína þjónustu. Eigi komst liann
samt alla leið til Trapezúnt, því friðrinn komst
fyrri á, en mestu torfærunum var haíln búinn að
ryðja úr vegi fyrir ser, svo að eigi var annað
sýnna, enn að ferð hans hefði orðið hin greiðasta
til Trapezúnt, og þaðan til Bospórus'rétt á móti
Miklagarði. þar mun liann hafa ætlað að veitá
soldáni móttöku, ef til hefði þurft að taka, og
soldán hefði leitað yfir til Asíu.
Svona var soldáu umkríngðr á allar hliðar af
. (2)