Skírnir - 01.01.1830, Blaðsíða 25
mót Tyrlcjum. }>eir unnu mikinn sigr hjá Mar-
tínó { Böózíu, yfir tveimr jörlum, Mahmúd frá
Lívadíu og Omer frá Thebahorg, þetta var þann
8. marzí. Eptir þaö tóku þeir kastalann Vojniza;
síðau settust þeir um Missolonglu' og Lepantó,
bæði frá sjó og landi, og inntóku hvörutveggi.
Fleiri horgir tóku þeir, og lögðu undir sig mest-
allt það land, er þeim hafði veriÖ ánafnað, þegar
mest var tiltekið, nefnilega: frá firðinum viö Arta
og beint í fjörðinn við Vóló. |>ó ætlaði að verða
nokkur tálman á herferðum þeirra. Enskir komu
þar í leikinn, og bönnuðu Grikkjum tð haldaher-
liði, fyrir utan Móreu og hinar Kykladisku eyar.
Landstjórnarinn Kapódiatría svaraði forboði þessu
á þá leið, að eigi mundi hann aptríaka skipanir
sinar, að svo stöddu. Ilann sendi og öllum
skipaforíngjum sínurn orð , að þeir skyldu fram-
halda fyrirsátrum sinum, hvað sem livörr segði,
en ef Enskir reðist á þá með ofbeldi, þá skyldu
þeir gefast upp, og gera eigi neina mótstöðu.
Fyrir forhoði Enskra mæltist ílla, en Kapódist-
ría þókti vaxa af aðgjörðum sínum. Seinna tóku
Enskir forboð sitt aptr, og letu sem ekkert
hefði íorðið.
Kapódistría annaðist landsstjórnina með sömu
árvekni eins og áðr, hann fjölgaði 'skólum, og
framaði akryrkjuna; hann hefir komið einíngu á
í landinu, stökkt víkíngum, og fært alla hluti til
hetri vegar, svoað þeir undrast það, sem vissu
livörnig ástadt var í Grikklandi, þegar hann tók
við. Grikkjum sjálfum geðjaðist svo vel að at-
liöfnum hans, að þeir á ríkis-samkomunni í sum-