Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.08.1908, Blaðsíða 24

Skírnir - 01.08.1908, Blaðsíða 24
216 Trúarjátningarnar og kenningarfrelsi presta. nm saman persónunum né greinum sundur veruna. Þvi að ein er per- sóna föðurins, önnur sonarins, önnur heilags anda. En guðdómur föð- urins og sonarins og heilags anda er einn og hinn sami, dýrðin jafn mikil, hátignin jafneilif. Slíkur sem faðirinn er, svo er og sonurinn, svo er og heilagur andi. l'aðirinn er óskapaður, sonurinn er óskapaðurr heilagur andi er óskapaður. Faðirinn er ómælanlegur, sonurinn ómæl- anlegur, heilagur andi ómælanlegur. Paðirinn er eilífur, sonurinn eilífur, heilagur andi eilifur. Og þó eru ekki þrír eilífir, heldur einn eilifur, eins og ekki eru þrír óskapaðir, heldur einn óskapaður og einn ómælan- legur. Á sama hátt er faðirinn almáttugur, sonurinn almáttugur, heilag- ur andi almáttugur. Og þó eru ekki þrir almáttugir, heldur einn al- máttugur. Þannig er faðirinn guð, sonurinn guð, heilagur andi guð. Og þó eru ekki þrir guðir, heldur einn guð. Þannig er faðirinn drott- inn, sonurinn drottinn, heilagur audi drottinn. Og þó eru ekki þrir drotnar, heldur einn drottinn. Því að eins og hinn kristilegi sannleikur knýr oss til að játa hverja persónu út af fyrir sig guð og drottin, þannig hannar hin kristna trú oss að tala um þrjá guði og þrjá drotna. Eaðirinn er af engum gerður, né skapaður, né fæddur (getinn). Sonurinn er af föðurnum einum, — hvorki gerður, né skapaður, heldur fæddur (getinn). Heilagur andi er af föðurnum og syninum, — hvorki gerður né skapaður, né fæddur (getinn), heldur framgangandi. Fyrir því er einn faðir, ekki þrir feður; einn sonur, ekki þrir synir; einn heilagur andi, ekki þrír heilagir audar. Og í þessari þrenningu er ekk- ert fyr eða siðar, ekkert meira eða minna; heldur eru allar þrjár per- sónurnar jafneilifar og jafnmiklar sin í milli, svo að tigna her í öllu, eins og þegar áður er sagt, hæði þrenninguna í einingunni og eininguna i þrenningunni. Sá sem því vill hólpinn vera, verður að hafa þessa skoðun á þrenningunni. En það er nauðsynlegt til eilífrar sáluhjálpar: að maður trúi og einlæglega holdtekju drottins vors Jesú Krists. Það er þvi rétt trú, að vér trúum og játum, að drottinn vor Jesús Kristur, guðs sonur, sé guð og maður; guð af veru föðurins, fæddur íyrir allar aldir, og maður af veru móðurinnar, fæddur í tímanum, fullkominn guð, fullkominn maður, gerr af skynsemigæddri sálu og mannlegum likama, jafn föðurnum eftir guðdómseðli sínu, en föðurnum minni eftir mannlegu eðli sinu. Og þótt hann sé hæði guð og maður, eru samt ekki tveir, heldur einn Kristur. En hann er einn, ekki fyrir breyting guðdómseðl- isins í hold, heldur fyrir upptekning manneðlisins i guð; yfir höfuð einn, ekki fyrir samanblöndun verunnar, heldur fyrir eining persónunnar. Því að eins og skynsemigædd sálin og líkaminn eru einn maður, þann- ig er guð og maður einn Kristur, sem píndist oss til sáluhjálpar, steig niður til dánarheima, reis upp frá dauðum á þriðja degi, steig upp til himna, situr við hægri hönd guðs, hins almátka föður; þaðan mun hann koma að dæma lifandi og dauða. Og við komu hans verða allir menn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Skírnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.