Skírnir - 01.08.1908, Blaðsíða 85
Stikukerfið.
277
anir lagarmálsins bæði hjá oss og öðrum þjóðum 'dregnar
af ílátunum, sem mælt er í (sbr. tunna, kútur, pottur, peli),
og höfum vér þar mjög hentugt orð fyrir frumheitið »liter«,
þar sem er mœlir, því að pottur mætti heldur segja að
væri villandi, eins og nú stendur á. Engin vandræði eru
heldur að fá íslenzk orð yfir »dekaliter« (sJcjóla), »hekto-
Iiter« (ker) og »kiloliter« (dma), en »deciliter« mætti vel
kalla staup og »centiliter« skel, eins og Hollendingar kalla
það »vingerhoed« (o: fingurbjörg). Annars munu þessi
smærri skiftinefni vera fremur sjaldhöfð í viðskiftum.
Flatarmálsstærðirnar1) »are« og »hcktare« hefir verið
lagt til að fengi íslenzku heitin reitur og teigur, sem virð-
ist að flestu leyti vel fallið. Teigur er fornt og fallegt
heiti á afmarkaðri landspildu (einkum sléttlendi), sem
farið er nú að úreldast um ákveðna flatarmálsstærð (í stað
þess komið: dagslátta), og hefir auk þess táknað sitt hvað
í túni og á engjum (vallarteigur, engjateigur), svo að það
getur varla fremur talist villandi, að nota það um »hekt-
are«, heldur en orðið míla (metramíla.) um »myriameter«,
eins og gjört var í stjórnarfrumvarpinu og stendur nú í
lögunum um »metramæli og vog«, enda mætti kalla
»hektare« til skýringar í viðlögum málteig eða mæliteig
(sbr. málband, raálfaðmur). Auðvitað getur sitt sýnst
hverjum um það, hvort hin eða þessi íslenzk heiti á ýms-
um máls- og vogareindum stikukerfisins sé heppileg, og
má vera að sumum þeirra sé vandfundnar táknanir, en
fyrir því þurfum vér ekki að leggja árar í bát, fremur
en Bollendingar, sem munu hafa valið hverri eind í stiku-
kerfinu hollenzkt heíti. Mestir annmarkar eru líklega á
því, að finna hentug íslenzk nöfn á sumum vogareindum,
en þó má þar beita sama ráði og við lengdarmál og
*) Ölafur Danielsson stæröfræðingur liefir bent á það, að betra væri
í flatarmáli að hafa flatar- en fer-, og mætti þá t. d. segja: „flatar-
stika“, „fiatarröst11, „flatarskor11 (o: ,,fersentimetri“) o. s. frv. — Sam-
kvæmt því væri réttnefni í rúmmáli: „rúmstika“ (a: teningsstika) o. s. frv.
sem þeir Bjarni Jónsson frá Vogi og Guðm. Björnsson hafa fundið. Þó
virðist raega vel una við heitin: „ferstika“, „teDÍngsstika“ o. s. frv.