Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.08.1908, Blaðsíða 75

Skírnir - 01.08.1908, Blaðsíða 75
Jonas Lie. 267 og risavöxnum fjöllum, minti hann á norsku dalina, sem hann unni svo heitt. í Berchtesgaden lifði Jónas mjög reglubundnu og starf- sömu lifl. Dag hvern gekk hann bæði kvelds og morgna langar leiðir með konu sinni og þá var nú ekki um annað talað en »bókina«, sem hann var að semja. Gaf hún hon- um þá einatt góðar bendingar, og Jónasi sjálfum fórust svo orð um aðstoð þá, er hún lét honum í té: »Þær skáldsögur mínar, þar sem mikið er komið undir smekk- vísi, rökvísi og að gæta vel efnissambandsins, hefðu varla orðið til án fulltingis hennar, að minsta kosti ekki í þeim búningi sem þær eru nú. Eg var sem sé hugsjóna-maður — þar átti eg heima«. Starf hennar var að rökrýna og vinsa úr, en hans að skapa og yrkja. Þegar þau komu heim, settist hann við að yrkja, en hún fór að hreinskrifa handritið. Kom það þá stundum fyrir, að Jónas hafði alt á hornum sér, er illa lá á honum eða andagiftin var ekki heima. En kona hans tók rausi hans með stakri stillingu og sefaðist hann þá brátt. Sextán sumur dvaldi Jónas í Berchtesgaden; afkastaði hann þar afarmiklu, því fátt var það sem truflaði eða olli ónæði. Hann fullsamdi þar eða lagði smiðshöggið á 16 skáldsögur alls, sem hann hafði undirbúið á veturna í París. Einn sumartíma dvaldi Ibsen í Berchtesgaden. Var hann þá að yrkja »En Folkefjende« og fór mikið einför- um og átti varla mök við nokkurn mann. En á hverju laugardagskveldi kom hann til Jónasar og réð sér þá stundum ekki fyrir kæti. Hann talaði þá um alla heima og geima, neytti alls, sem fram var borið, og hélt sjaldan heim fyr en langt var liðið á nóttu. En þess á milli sá- ust þeir Ibsen varla nokkurn tíma, enda höfðu þeir komið sér saman um að trufla ekki hvor annan á öðrum tímum, því að báðir höfðu ærið nóg að starfa. En oft gekk Ibsen á kveldin fram hjá húsi Jónasar og skotraði þá forvitinn augunum inn til hans. — í Paris kyntist Jónas nánara veruleikastefnunni og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Skírnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.