Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1908, Page 43

Skírnir - 01.08.1908, Page 43
Trúarjátningarnar og kenningarfrelsi presta. 235 semja ný játningarrit. Kirkjan hafi þó ekki staðið í stað þessi 400 ár. Kirkjan sé hætt við játningarrit. Norskt safnaðarfólk telji gömlu játningarnar sér með öllu óvið- komandi. Alt hjal um að þær séu játning þess hljómi sem kinverska í eyrum þeirra. Það sem tyrir oss vakir, sem aðhyllumst kenningar- frelsi presta, er einmitt þetta: Vér viljum forðast kyr- stöðuna og afturförina. Vér treystum sannleika kristin- dómsins til þess að þola alt frelsi. Vér teljum honum bezt borgið þar, sem hugsunarfrelsið er einlægast. Vér viljum ekki að neinu leyti binda hendurnar á sannleik- anum, heldur leysa alla þá fjötra, er mennirnir af grunn- hygni sinni, en sjálfsagt stundum af góðum hug, hafa viljað á hann leggja. Og oss stendur stuggur af því, að kirkjan á nokkurn hátt reyni að hefta hugsunarfrelsið. Skjöldur hennar er orðinn of óhreinn af hluttökunni í því óhappaverki á umliðnum öldum. Og svo er eitt atriði enn: Því meira sem frelsið verður innan kirkjunnar, því minni verður hræsnin. Ofrelsið elur hræsnina. Og hræsnin er trúarlífinu eitur. Eitthvert heit munu prestar þó verða að gangast undir. En æskilegast væri, að það heit færi að eins í þá átt, að presturinn lofi því, að kenna samkvæmt heilagri ritningu eftir beztu samvizku, og jafnframt væri það tekið fram í heitinu, að vér teljum ritninguna grundvöll og uppsprettu kenningarinnar. Alvara embættisins og ábvrgðartilfinn- ingin gagnvart söfnuðinum er prestinum nægilegt aðhald. Nafnkendur þýzkur maður sagði eitt sinn: »Eg er barn kirkju minnar, en ekki þræll hennar«. Barnið hlustar á heilræði móður sinnar og hugfestir sér þau. En þegar það er orðið fullorðið og það öðlast æðri og fullkomnari þekkingu en móðir þess hafði fengið, lætur það eigi heilræði móður sinnar aftra. sér. Það hugsar sem svo: Þú gafst mér, móðir mín, það bezta sem þú áttir, þann fullkomnasta skilning á guði, tilver- unni og lífinu, sem þú hafðir hlotið. Þinn tími var ekki kominn lengra en þetta í þekkingu sannleikans. En nú

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.