Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1908, Page 95

Skírnir - 01.08.1908, Page 95
Erlend tiðindi. 281 inn á band með sér víða um ríkið, svo að brydda tók á uppreist- aróeirðum hingað og þangað meðal tyrkneskra hermanna, einkum. í Makedoníu. Þá varð soldán skelkaður, og 1/sti hann því yfir fyrir þegnum sínum, að nú léti hann fyrirnefnda stjórnarskrá frá> 1876 ganga í gildi. Það var 25. júlí. Þá sefuðust óeirðirnar. Ogr var þessum tíðindum tekið með miklum fögnuði um alt ríkið. Stjórn- arskráin er sögð allfrjálsleg. Kristnum mönnum og Múhameðs- trúar gert jafnt undir höfði að lögum, prentfrelsi tekið í lög og kenslufrelsi, bannað að pína sakborna menn til sagna o. s. ft v. Því næst tók soldán sér ráðuneyti út liði U<ngtyrkja, þar á meðal tvo kristna menn, og heitir yfirráðgjafinn Kiamil, niikilhæfur mað- ur og vel metinn. Tignarbróðir Tyrkjasoldáns, Persakonuugur, hefir hag- að sér næsta ólíkt í sumar. Hann lét ráðast á þingið með vopn- uðu liði, skjóta á þinghöllina í Teheran með fallbyssum og brjóta,. eftir furðu-vasklega en skamma vörn af þingmanna hendi og þeirra. vina. Tvo hina helztu foringja þingsins sér andvíga lót hann hengja þegar í stað og örðalaust, og 12 þingmenn aðra síðar. Ekki þóttist hann ætla sór þó að afnema alla þingstjórn, heldur efna til n/rra kosninga og stefna saman þingi í haust. En ekkert hefir úr því orðið enn, og mun lítið þykja í varið kjörfrelsi frammi fyrir gínandi byssukjöftum. — Að öðru leyti hefir verið töluvert um óeirðir þar í landi í sumar. Loftferðalög hefir verið mikið fengist við hin síðustir missiri víða um heim, einkum með stórþjóðunum; þær hugsa sér að hafa þeirra mikil not í hernaði og vilja komast þar hver fram úr annari. Með Þjóðverjum hefir maður sá, er Zeppelin heitir,. greifi, unnið manna mest að umbótum og framförum í loftsigling- um. Hann lauk í sumar við sitt fjórða tilraunaloftfar, afarstórt og vel út búið, og ætlaði hermálastjórn Prússa að kaupa það af hon- um, ef honum tækist að sigla þvi viðstöðulaust heilan sólarhring og tiltekna leið, ekki lægra í lofti en 600 faðma. Það hepnaðist sæmilega. Loftfarið leið frá Bodenvatni í Sviss 4. ágúst norður eftir Þ/zkalandi alt norður í Mainz, nteð Zeppelín sjálfan innanborðs við tólfta mann; þangað var ferðinni heitið. Sneri síðan við heim á leið næstu nótt og staðnæmdist daginn eftir stundarkorn hjá þorpii

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.