Ársrit presta í Þórsnesþingi - 01.01.1846, Blaðsíða 33
33
III.
CJM SAUNG í KIRK.TUM.
Maö ei' kunnugra enn frá þurfi að segja, hver prýði
er að reglulegum og falleguiu saung, hverr helst
sem hann er og hvar sem hann heyrist; en þó mun
óhætt mega fullyrða, að sálmasaungurinn, sem hér
átti á að minnast, er hvað dýrðlegastur, af því hann
er einfaldastur allra saungva. 3?eu" Seta um hetta
horið, sem fundið hafa, hverja verkun það hafði á
þá að vera við embættisgjörð í prýðilegri kirkju,
þar sem saung-meistari lék á fjölraddað orgel, en
mörg hundruð manna, kvenna og únglínga, tóku undír
og fluttu Drottni sínum lofsaungva, allir í einuhljóði
og einum huga, að svo þótti sem sálir þeirra liði,
ásamt lofgjörðar - og bænar-orðunum^ á vængjum
hinna mjúku, blíðu, hljómfögru og hátíðlegu radda,
upp að hástóli Drottins. Jpað er engum láanda, sem
þvílíkrar ununar hefur notið, þótt hann ángrist og
hriggist með sjálfum sér af að hugsa til, því held-
ur hljóta að vera heyrnarvottur að, hversu sálma-
saungur almennt fer fram í kirkjum hér á landi;
jeg segi almennt, því til eru þær kirkjur, að hann
fari sæmilega fram og miklu betur enn við mætti
búast, hjá þeirri þjóð sem almennt þekkir hvorki
nafn eður gyldi nokkurrar saungnótu, eður hefur
einusinni heyrt j)ess getið , hvað það se, er menn
nefna „Takt" í saung.
3