Ársrit presta í Þórsnesþingi - 01.01.1846, Síða 53

Ársrit presta í Þórsnesþingi - 01.01.1846, Síða 53
53 því, sem sérhverjum er trúað í'yrir, og ráðsmennsku þá sem sérhverr á síðan á að standa reikníngsskap á; þúsemhefur grannskilið það, hvílíka menn krist- in trú ætlaði að gjöra úr játendum sínum, getur þú leiðt þér í hug, ef þú virðir fyrir þér æfi ofdrykkju- mannsins, að kristin trú vilji kannast við þesshátt- ar áhángendur, eða telji þá með erfíngjum guðsrík- is? Getur þú séð ofdrykkjumanninn dratta og slaga áfram á glötunar- og glæpa - vegi, þarsem hann veit lítið eða ekkért af sér, líkari vitfyrríngi enn skyn- semigæddri veru, þarsem hann eyðileggur sjálfan sig og er óþarfur öðrum, og ímyndað þér, að þetta muni vera vegur til himins, vegur til arftöku í guðsríki? Eða þegar þú sér veiklaða krapta sálar og likaina hans, og heyrir rugl lians og heimskuþvættíng, og sér hann skjálfa og riða á betsta ahlri einsoghrum- asta gamalmenni, og þú hugsar til þess, aö liann er vera sköpuð í Guðs mynd, og kallaöur til þess af Jesú Kristi að fullkomna þessa mynd í helgun og réttlæti, getur þú þá leiðt þér í grun, að hann sé í tölu útvaldra? ]£egm' þú hugleiðir, hvernigæfi lians líður í vímu og skylduvanrækt og heimskupörum, og hversu ófær hann er um að gegna stundlegri köllun sinni, og óhæfilegur til að staiula í stöðu siimi, og til hvilíkrar óhæfu og íllverka og glæpa hann stundum, argari hverri skynlausri skepnu, geturvan- brúkað gáfur Drottins; þegar þú skoðar hann eins- og félagsbróður, eða einsog föður og forstöðumann sinna, og þú um leið hugsar til þess, hvernig hann hefði átt að vera, og getað verið, og hvernig hann er orðinn, og þú sér hvernig hann er ekki einúngis sveit sinni óþarfur, helður að hann líka leiðir óreglu og ógæfu heim á heimili sitt, og eymd og volæði yfir saklaus börn sín og konu sína, sein opt verður vesæll arfur, og hefur hryggilegar afleiðíngar fyrir óborna afkomendur, sem ekki verð-

x

Ársrit presta í Þórsnesþingi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit presta í Þórsnesþingi
https://timarit.is/publication/68

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.