Gefn - 01.01.1872, Qupperneq 21
23
að síður hefir þetta, og einkum nú eptir styrjöldina, gefið
mönnum alvarlegt umhugsunarefni um hagi manna, miklu
fremur en áður; en það bágasta er, að enir menntuðu menn
eru í rauninni þreklausir þrjótar, og skríllinn aptur á hinn
bóginn þussar, svo íslendskir almúgamenn geta enga hug-
mynd haft þar un), og því hæfir að fara um þetta efni fá-
einum orðum.
1 mannfélaginu er óhroði, eins og í öllum jarðneskum
hlutum, og því magnaðra sem ágætið verður, því magnaðri
verður óhroðinn, eins og skugginn verður því dimmari sem
ljósið er bjartara. J>ess vegna er eiginlegur skríll hvergi
til nema í höfuðborgum, þar sem mest ágæti safnast saman
af alls konar menntum og tilbreytíngum lífsins, glaumi og gleði,
listum og leikum: einmittþar kviknar þetta mannamor, sem
ekki er réttir og sléttir almúgamenn, eins og til sveita; heldur
ekki ómenntaðir þussar og berserkir eins og fjallamenn eða
gengnir úr sjáfarhömrum — nei! fað era allt öðruvísi myndir!
J>að eru óskammfeilnir og frekir þrælar og aumíngjar, sumir
vel klæddir, sumir hálfnaktir, svo hér á norðurlöndum mundu
þeir strax verða teknir fastir; það eru þjófar og rummúngar,
morðíngjar og svikarar af öllu tagi, sem ekki þekkja til
samvitsku eða veglyndis; þúsundum saman eiga þeir ekkert
þak yfir höfði sér, en liggja um nætur á kömrum og í saur-
gryfjum, í dauðra manna gröfum og líkkistum, í öllu sem
þeir finna — þeir hafa sínar eigin samkundur og sitt eigið
mál sem enginn skilur nema þeir, teiku og merki til að
þekkja hvorr annan; þeir eiga ekkert og geta ekkert unnið,
ekkert nema drifið og betlað, drepið og stolið, spilað og
svikið: þetta er þeirra athöfn, og þannig er aðalstofn þessa
»félags«, sem nú liggur í stríði við »félagið«. Svo þegar
þar upp úr kemur, þá tekur iðnaðarmannaflokkuriun við, lítið
betri, nema að því leyti hann hefur vinnu til að framfleyta
lífinu á ærlegan hátt; en þessir menn eru líka harla ómennt-
aðir; menntan þeirra er ekki innifalin í öðru en því sem
þeir hramsa úr dagblöðum, sem hrósa þeim og skjalla þá