Gefn - 01.01.1872, Blaðsíða 20
22
sem hæglega gátu orðið rituð á vora túngu, ellegar þá forn
orðatiltæki sem menn eru nú orðnir afvanir og sem er að
öllu leyti óþarft að nota, þar sem önnur betri eru til (þannig
er í Skírni »vetfáng« fyrir »vígvöllur«; í J>jóðólfi »slagbúinn«
• fyiir »búinn til bardaga«, ogótal aðrar smekkleysur; »Tuill-
erihöll« held eg sé óþýðara í munní en »Tigulhöll«, því
»Tuileries« merkir einmitt gamalt tiglbrennuverk, sem var
til forna þar sem höll þessi var síðan bygð, en það hafa
höfundarnir ekki vitað — þetta segjum vér lesendum rita
þessara, en ekki höfundunum, því þeir munu þykjast allt
of góðir til þess að taka nokkurri leiðbeiníngu).
A. Allt það sem hér er um að ræða er raunar fram-
hald þeirra hluta, sem stofnaðir liafa verið fyrir laungu og
eiga kyn sitt að rekja lángt í aldir fram. Hið fyrsta, sem
er styijöld sameignarmannanna eða jafnaðarmannanna í París,
er í rauninni eldgömul hugmynd, því hin upprunalega skoðun
eða kenníng þeirra er sú, að enginn megi eiga meir en
annar og allir megi njóta alls árángurs af vinnu sinni.
|>etta er í sjálfu sér ekkert rángt; en nú er komið í það
horf, að þessar hugmyndir hafa verið notaðar af ýmsum fúl-
mennum til þess að æsa ómenntaðan skríl, sem úir af í
hverri höfuðborg, með því að taka fram þann liryllilega
mismun, sem sé á milli enna ríku og enna fátæku. Orsökin
eða tilefnið til þessara æsínga er samt ekki öfund, það er
ekki svo vel; heldur er það hin fúlasta sérplægni og ágirnd,
og augnamiðið er einúngis það, að egna skrílinn upp, til þess
að reyna að krækja í penínga. Til þessa hefir verið stofnað
félag það sem kennt er við allar þjóðir og tekur félags-
menn af öllum þjóðum; það kvíslast út um öll lönd og
áform þess er að kollvarpa öllum gildandi lögum, öllum
mannlegum réttindum og allri trú. í rauninni er sú hin
upprunalega hugmynd þessa félags góð, að því leyti menn
bera það alltaf fyrir sig, að menn vilji leitast við að bæta
kjör enna fátæku; en aðferð þess er svo ofsaleg og skökk,
að allir menntaðir menn hafa risið upp á móti henni. Eugu