Gefn - 01.01.1872, Qupperneq 23

Gefn - 01.01.1872, Qupperneq 23
25 tali, enda er og farið með það að því skapi. Eaunar eru fáeinar undantekníngar hér eins og annarstaðar, en þess gætir ekki; gdðir húsbændur og góð hjú í höfuðborg eru eins og perlur á sorphaugi. Eymdarástand hjúauna kemur sumpart af því, að þau eru fram gengin af skrílíiokkinum, sem vér lýstum áður, líka af iðnaðarfiokkinum, sem í borg- unum er fjarskalega ómenntaður og ruddalegur, hversu mjög sem smjaðrarar hrósa honum sumpart af því, að húsbændurnir sjálfir eru menntunarlaus skríll og fúlmenni, óþrifið og sið- laust fólk, sem ekki hugsar um annað en skemtanir og deyð- íugu tímans, og hefir enga hugmynd um að önnur þarfari vinna sé til. I stuttu máli: hjú og undirgefið fólk eru nú öldúngis eins og þrælar; það er raunar hvorki barið né drepið, og það getur klagað yfir ólöglegri meðferð og þar fram eptir götunum; en allir vita hvað það liefir að þýða, ef menn ættu að ákalla lögin til að hjálpa sér til að rekja úr hverri snurðu sem hlaupa kann á lífsins þráð, og mun þó nóg af slíkum málum vera til meðferðar fyrir rétti á degi hverjum. Hjúiu eru í hinni verstu ánauð, þrátt fyrir fullkomnun og menntun tímans; þau mega varla tala við húsbændurna og ekki vera í sömu herbergjum og þeir, þau hafa yfir höfuð ekkert heimili nema eins og hundahús og þess vegna hefir þetta fólk heldur enga virðíngu fyrir neinu, enga sómatil- finníngu, enga laungun til neins nema til að njóta lífsins svo frekjulega sem unnt er þessar enar fáu tómstundir sem það er ekki í ánauðinni. — Hér við bætist nú allur sá vinnufólksher, sem hefir atvinnu á verksmiðjum eða hjá ýmsum ríkismönnum sem hafa mikið að láta starfa; og má nærri geta, að þegar allt þetta fólk, sem er svo margt að millíónum skiptir, fer »að fá hugmyndir«, þá muni eitthvað eiga að gerast. Og það vantar ekki, að því sé gefnar »hugmyjidir«, því þessir »hugmyndapostular«, sem þykjast flytja frelsi og menntun, ferðast í kríng, og prédikafyrir fólkinu; en fólkið er aptur orðið »upplýst« af blöðunum, sem eru búin að vekja það, svo það er komið til sjálfs sín og raknað við úr »mið-

x

Gefn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.