Gefn - 01.01.1872, Qupperneq 32
34
gera klórsilfraðan pappír svartan í verksmiðjum ljósmyndar-
anna. (Ljósvakinn á sér raunar enga geisla, en hann flytur
alla þessa geisla frá sólinni í gegnum himingeiminn). Af
því sem nú hefir sagt verið, munu menn sjá, að það er rétt
að kalla mynd í speigli »bergmál ljósvakans«: vér skiljum
þá ljósið sem hljóð. Enn skulum vér benda á samræmi
ljóssins og hljóðsins: á hverjum hljóðfærisstreng kemur lægsta
hljóðið fyrst, meðan vér stj'ðjum engum fíngri á strenginn;
en því hærra sem vér færum fíngurinn upp á strenginn, því
mjórra verður hljóðið; eða með öðrum orðum, strenguriuu
skelfur því tíðar sem vér styttum hann meir, og því meira
sem hann skelfur og styttist, því meira mjókkar hljóðið.
Öldúngis eins er hlutfallið með járnstaungina: meðan hún
er dimmrauð, þá eru í henni en lægstu hljóð ljósvakans og
minnstur geislaskjálftinn; en við magnaðri hita magnast ljóss-
titríngurinn allt þángað til hinn fjólublái litur sýnist í þrístrend-
ínginum, hærra kemst ljósið ekki, því meira getur það ekki
skolfið: eins og dimmra hljóðið í strengnum gengur á undan
enu mjóa, eins gengur rauða Ijósið á undan enu fjólubláa,
og eptir sama hlutfalli hverfa geislarnir eða Ijóshljóðin: fyrst
hverfur fjólublái geislinn, þá hinn myrkblái, þá hinn ljós-
blái, þá hinn græni, hinn guli, hinn gulrauði, og loksins
verður staungin aptur rauð: hún svngur enu sama hljóði ljós-
vakans, sem hún byrjaði með.
Á þenna hátt, með því að setja hlutina í glóandi hita
— náttúrlega miklu meiri hita en vér erumvanir í daglegu
lífi —, með því að hita hlutina svo mjög að þeir verði að
lopti, og skoða síðan geisla lopts og málma á sama hátt
og sólargeislann, þá geta menn fúndið öll þau efni sem þar
eru í, hversu lítið sem afþeim er; því hverrhlutur brennur
svo, að í geisla lians koma enar svörtu rákir á sinn vissa
hátt, og öðruvísi en í öðrum hlutum. En þess ber að geta,
að í sólarljósinu eru svörtu rákirnar undantekníngar, en þar
á móti eru ljósrákirnar undantekníngar í enum jarðnesku efn-
um; þau eru dimm, en sólin björt; svörtu rákirnar í sólar-