Gefn - 01.01.1872, Side 39
41
dimmari ráðgáta en áður, þegar heimspekíngarnir ætluðu að
rifna af sálarfræði og hugsunarfræði, sem nú fyrir laungu
hafa lifað sitt fegursta: því þessir menn bygðu ekkert á
reynslunni, heldur hverr á sínum eigin hugarburði; en nú
sýnist sem mönnum ætli að takast að komast miklu nær
enu andlega fvrir krapt ens líkamlega, en mönnum áður
hefir getað dottið í hug, að minnsta kosti að vissu leyti og
í vissum skilníngi. Fornfræðin er nefnd áður í riti þessu,
og hnýtum vér hér því einu við, að steinöldin er eiginlega
sá kafli hennar, sem einna helst lýtur að rannsóknunum um
ena elstu og fyrstu menn, þegar menn lifðu í hellrum, sem
víða finnast enn; en enar ýngri fornleifar, frá eiröldinni og
koparöldinni, skýra frá háttum enna ýngri manna og grípa
fremur inn í sögurnar. Fornleifafræðin kvíslast á eina hlið-
ina yfir í málfræðina, en á hina hliðina yfir í náttúrufræð-
ina, með því menn verða að vita hvernig á stendur beinum
og steinum þeim sem þar til heyra, í hversu gömlum jarð-
lögum þetta finnist, hvernig beinin sé sködduð og nöguð —
Steenstrup hefir til að mynda sýnt, að ótal nöguð bein frá
steinöldinni sé ekki sködduð af mönnum, heldur nöguð af
glepsandi dýrum, því þau naga ætíð hnúturnar, til þess að
sjúga feitina úr; en þar á móti eru önnur bein klofin af
mönnum til mergjar, eins og Edda segir að þjálfi hafi gert
við hafurinn þórs. Eptir öllum þessum merkjum verður að
taka — vér höfum jafnvel myndir frá steinöldinni: dýra-
myndir skornar 'eða ristnar á leggi og fuglsbein, svo dýrin
eru þelckjanleg og bera skýrt vitni um að jafnvel þá hafi
meun verið svo skynsamir að geta framið ena fyrstu dráttu
listarinnar. Til málfræðinnar gengur fornfræðin beinlínis
með rúnasteinunum og allri þeirri leturgjörð sem rist er eða
grafin á fornleifarnar; ogsvoer enn hin þriðja stefna hennar
sú að fást við lögun og sjálft smíði gripanna, og marka
hverjum sinn aldur, stað og ætlunarverk. Aptur á móti má
segja, að málfræðin eða sjálf hin eiginlega ástundan túngn-
anna sé ekki yfirgripsminni, með því menn henda orð þjóð-