Gefn - 01.01.1872, Side 53
55
segja henni hafi eins og hnignað nokkuð aptur. 1865 feng-
ust par millíón skeppur hveitis, en saudfénaður var tvær
millíónir. Ey þessi er 1177 ferhyrníngsmílur að stærð; þar
eru miklir og fríðir skógar, grösug engi, góðar hafnir og
fiskisælt haf.
En vér höfum enn ekkert getið um eyjarskeggja sjálfa,
eða þá eiginlegu syni landsins, sem voru fyrir þegar Norð-
urálfumenn komu þángað. Arið 1802, þegarEnglar settust
þar að, ætluðust menn svo á að tala þeirra mundi vera
200,000, og er það mikill fjöldi. J>egar nýlendumennirnir
komu fyrst, þá ætluðu eyjarskeggjar að nálgast þá með
vinsemd; en yfirmaðurinn enski misskildi aðferð þeirra og
lét skjóta á þessa vopnlausu aumíngjaog þessi hlutur mun
hér eins og annarstaðar standa sem eilíft merki ímenntun-
arsögu Englendínga, því þannig hefir þeim farist hvar sem
þeir hafa aö landi komið: þeir hafa níðst á vopnlausum
mönnum og drepið þá eins og dýr, og gera enn. þarna
vora nú margir eyjarskeggjar særðir og drepnir saklausir,
og upp frá því augnabliki blossaði í þeim óslökkvandi hatur
til allra hvítra manna. Raunar mátti segja að eyjarskeggjar
væri á enu lægsta stigi mannlegrar tilveru; ogí samanburði
við siðaðar jijóðir voru þeir næsta viðbjóðslegir: þeirgengu
naktir og mökuðu sig alla í feiti og moldu; hár þeirra
hékk í flóka og var allt úfið og fullt af fiskdálkum og leir-
stykkjum sem þeir festu þar í til prýðis; þeirlögðu og allt
sér til munns, orma og maðka, pöddur og rætur og allt
hvað tönn festi á: en þetta gaf Englendíngum engan rétt
til að fara með þá eins og þeir gerðu á degihverjum: þeir
fóru með þá eins og dýr, skutu þá niður og píndu þá, án
þess þessir varnarlausu menn hefði nokkuð þar á móti að
setja, og sú hegníng, sem »lögin« settu við það, var hlæg-
ileg. Sá sem til að mynda hjó fíngur af villidreng, til
þess að hafa fíngurinn til að troða tóbaki í pípuna sína
með honum — þetta er nú »siðanin« og »menntunin« —
var dæmdur til fáeinna vandarhagga. Stundum skemtu