Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1918, Page 1

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1918, Page 1
Finghald i Fnjóskadal á sög’uöldinni. Ari fróði segir í 5. kap. íslendingabókar: »Þá (þ. e. 962) var landinu skipt í fjórðunga, svá at -iii- urðu þing í hverjum fjórðungi —--------, nema í Norðlendinga fjórðungi voru -iiii-, af því at þeir urðu eigi á annat sáttir; þeir, er fyr norðan voru Eyjafjörð, vildu eigi þangat sækja þingit«. Af þesssu og ýmsu öðru má ætla, að Þingeyingar hafi haft sjerstakt þinghald áður en fjórðungaskiftingin komst á1. Hvar þingstaðurinn var þá, er ekki greint, en fullvíst er það, að síðar var hann í Þingey í Skjálfandafljóti og fjekk hvort nafn af öðru, þingið og eyin, og svo hjeraðið (sýslan) af eynni, er kend var við þingið2. Þingey var á lýðveldistímabilinu hinn lög- legi og venjulegi vorþingsstaður fyrir hina 4. og nyrstu þinghá í Norðlendingafjórðungi. Um þetta hafa allir verið að mestu leyti sammála. Nú segir í Þingskapaþætti í Grágás3, að þar skuli vera leið (þ. e. leiðarþing, haustþing) goða sem þingstöð (þ. e. vorþings- stöð) þeirra er, nema þeir fái lof (þ. e. lögrjettulof) til annars. Sam- kvæmt því skyldu menn mega ætla, að Þingeyingar hafl háð leiðar- þing sín öðrum stöðum fremur í Þingey. I vestur-útnorður frá Hálsi er rétt austanvið Fnjóská gamall þingstaður í svo nefndu Leiðarnesi; hefir Kr. Kalund lýst honum i sögustaðalýsingu sinni (Isl. Beskr.) II, 141—42 og Brynj. Jónsson í Árb. Fornleifafjel. 1901, 14—15 (m. uppdr.). Ber nesið oafn af leið- arþingi, er þar hefir verið háð. Staður þessi er hvergi nefndur í fornum ritum og er óvist, hvenær hjer hafa verið háð leiðarþing. Dr. Kálund álítur (á umgetnum stað) að varla muni ofdjarft að ætla, að hjer hafi verið háð Ljósvetninga-leið, sem nefnd er nokkrum sinnum í sögunum; ætlar hann, að hjer hafi hún verið, þá er þeir Guðraundur ríki og Þorgeir goði á Ljósavatni börðust við sonu Þor- geirs, svo sem sagt er frá í Ljósv. sögu, 2. kap., og getið er í Njáls 1) Sbr. B. Th. Melsteð, ísl. saga II, 67—71. 2) Kr. Kálnnd, I. B. II, 165—56 o. fl. 3) Grág. Ia, 111,

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.