Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1918, Blaðsíða 18

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1918, Blaðsíða 18
18 ingarnir sjeu báðir frumlegir, og þá um eitt heilt og annað hálft erindi að ræða, og vanti vísuhelming. I næstu erindum, 112. o. s. frv., er fyrri vísuhelmingur svo: Ráþornt þér Loddfáfner, en þú ráþ nemer, njóta mont, ef nemr, þér mono góþ, ef getr. Önnur hvor síðari línanna er frábrigði frá hinni. F. J. telur hina fyrri þeirra vera óupprunalega (innskot), en Rask og Munch sleptu hinni síðari í sínum útgáfum. Það virðist geta verið álita- mál, hvor frumleg er; á hvorugri er rímgalli eða máls og báðar eru 8ömu merkingar, að heita má. Eitt virðist þó geta orðið hjer til úrskurðar. I hverju erindi er að eins eitt ráð, og það virðist vera það ráð, sem átt er við með orðinu »ráð« í 2.1., og þá eintala. Nú er í 4. 1. höfð fleirtala, en í 3. 1. er ekki geflð í skyn, hvort átt sje við fleiri ráð en eitt. Af þessu virðist kunna vera eðlilegra, að telja 3. 1. upprunalega, en hina 4. síðara frábrigði. 142. er. (B.) er svona: Rúnar mont fnna ok ráþna stafe, mjöik stóra stafe, mjök stinna stafe, es fáþe fmbolþulr, ok gerþo ginnregen, ok reist hroptr rögna. F. J. álítur þetta heilt og fornt erindi; í útg. frá 1888 telur hann 4. 1. innskot, en í útg. frá 1905 telur hann enga frá. Um þess háttar frábrigði, ljóðaháttarerindi með 7 ljóðlínum, var rætt hjer að framan, og verður að telja ólíklegt að þau sjeu frumleg með öllu í Hávamálum eða öðrum. Eddukvæðum. — Hjer virðist hver silkihúfan upp af annari, sem menn segja, og erindið samtíningur og frábrigði. Fyrstu tvær línurnar virðast góðar og gamlar, en hin- ar allar sýnast vera langlínur úr ljóðaháttarerindi og að eins ein- hver ein þeirra geta átt við þessar fyrstu tvær. 3. eða 4. 1. erfrá- brigði af hinni og báðar eru þó í rauninni hreinasta lokleysa, senni- lega orðnar til sem upptugga á 2. 1. að nokkru leyti. 5. og 6. 1. eru úr 80. er. (B), en settar hjer í mótsetta röð við þá sem þar er. 7. 1. er orðin til úr 5. og 6. 1. í 13. er. (B.) i Sigrdrífumálum (rjettara Sigurdrífar-málum, sbr. 44. er. (B.), 5. 1., i Fáfnismálum). Erindið

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.