Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1954, Page 10
14
sennilega veriS tveir (eða fleiri) bæir, sem skammt var á milli, eins
konar hjáleigur. 1 Reykholti eru rústir á tveimur stöðum (nr. 25 og
26 hér að framan) og er því sennilegt, að það séu Lóþrælarnir (sbr.
Arb. ’97). Báðar þær rústir eru svo langt frá hvernum, að óhugsandi
væri, að bæirnir hafi verið nefndir eftir reyknum, fjarlægðin er margir
km, og sést hverinn frá hvorugum staðnum. Bæjarstæðin bæði eru
við fjallið sunnanvert, en hverinn við norðurenda þess. Umhverfis
Reykholt eru blásnir, sléttir melar og er varla mögulegt að bæjarrúst
geti leynst þar. Fjallið sjálft er svo bratt, að ekki er líklegt, að bær
hafi staðið uppi í hlíðunum, en þar eru víða grastorfur og nokkur
jarðvegur.
Á korti í Fg, bls. 12, er sýnd bæjarrúst norðvestan við Reykholt, en
það hefur ekki við rök að styðjast.
28. Rústir í Fossárdal, vestan ár. Rústirnar eru í
víðum slakka, sem skerst inn í undirhlíðar Fossöldu nokkru neðar
en þar sem áin kemur fram úr gljúfrunum. Þær eru við læk, sem fell-
ur úr hamragili í klettabrúnunum, ofan við bleika líparítskriðu. I gil-
inu eru hvassir drangar, sem sjást vel tilsýndar.
Br. J. (Árb. ’84—5, nr. 16) getur aðeins um fjósrúst og birtir
uppdrátt af henni. Rústin er á moldarbing á innri lækjarbakkanum
og er nú mjög úr lagi færð. Bæjarrústin er 30 m innar við brekku-
rætur, en þaðan er aflíðandi halli niður að Fossáreyrum. Þessi rúst
virðist að mestu óhögguð, enda sennilega nýblásin upp. Hún er
a. m. k. 30 m löng. Vestan við lækinn, um 150 m ofar en fjósrústin,
eru óljósar byggingarleifar á melbrún, og er mikið grjót hrunið niður
í brekkuna. Á vestri lækjarbakkanum, neðan til á móts við fjósið, er
grjótþúst, sem gæti verið leifar af húsi.
Beint upp af bæjarrústinni og innan við lækinn eru nýlegar tóftir í fögru
graslendi neðst í hlíð Fossöldu og sjást langt að. Voru þar reist tvö sambyggð
hús skömmu eftir síðustu aldamót að undirlagi franska ræðismannsins í Reykja-
vík. í daglegu tali eru tóftir þessar kallaðar Frönsku húsin.
29. Rúst í Fossárdal, austan ár. Á grýttum moldar-
rana, er myndast milli lækjargils og Fossáreyra, er forn rúst. Nú er
bílabraut upp ranann og yfir rústina, enda naumast fært annars staðar
upp af eyrunum. Sunnan við rana þennan eru eyrarnar breiðar, en
snarmjókka hér. Rústin er litlu innar en á móts við tóftirnar vestan
ár. Greina má m. a. grjótvegg a. m. k. 17 m langan og öskuhrúgu
hjá, mikið af smiðjugjalli. Ofan og vestan við þetta er önnur ösku-
hrúga, og litlu neðar en aðaltóftin eldstæði með hellum, reistum á