Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1954, Blaðsíða 11
Í5
rond, og er viðarkolaaska í því. Rústin nær um það bil þvert yfir ran-
ann. 20—30 m ofar gætu verið leifar af öðrum húsum, en ekki svo
öruggt sé.
30. Undir v esturhlíð S t an g arf j all s, um það bil IV2
km sunnan við Lambaréttarnef, er rúst lítið eitt hærra en láglendi
Þjórsárdals. Hún er í kvos syðst í lítilli hæð, sem skorin er frá hlíð
Stangarfjalls með grunnu skarði. Frá þessari rúst sést Lepparústin
1. mynd. Rúst í Leppum. í baksýn vinstra megin Skeljafell,
hægra megin Hagafjall. (Ljósm. Gísli Gestsson.)
(nr. 31) í tæplega eins km fjarlægð og er stefnan rétt innan við
Heklu. Til að sjá ber mest á grjótdreif í hvítum vikurbing á norður-
bakka lækjarins, sem fellur um kvosina. Önnur grjótdreif er þar litlu
ofar, sem virðist vera úr húsi. Aðalrústirnar eru hinum megin lækjar-
ins. Er þar stór grjótflekkur, en leifar einstakra húsa verða ekki að-
greindar. (Sjá Árb. ’84—5, nr. 17 og Árb. ’97 og enn fremur næstu
grein hér á eftir.)
31. Rúst í Leppum. Á bröttum vikurhrygg við rætur Stangar-
fjalls, um IV2 km norður frá Stöng, en sunnan við klettamúla, sem