Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1954, Síða 45

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1954, Síða 45
49 inn renndi svo langt niður í hann, að hann gleypti sóknarsteininn; enn fremur þegar hákarlinn bylti sér, þá skrapaðist færið, ef það lenti á búknum. Færinu var svo hnýtt í hinn endann á sóknarbálkinum. Á sóknarönglinum voru 2 agnhöld, annað fram undir odd eins og venja er á öllum önglum, hitt var neðanvert við miðjan legg. Nú var að beita krókinn; var það gert með selspiki, og varð það að vera vel verkað, annars leit sá grái ekki við því. Fyrst voru skornar nokkrar kantaðar beitur um 8 sm á kant, og var þeim stungið alla Ieið upp fyrir efra agnhald og var það bil á krókleggnum fyllt af svo- leiðis bitum og gátu þeir aldrei fallið niður í buginn á króknum, því agnhaldið hélt við. Því næst var skorin aflöng, oddmjó beita, um 20—25 sm löng, sem kölluð var oddbeita, hún féll niður í buginn á króknum, og lafði mjórri endinn niður eins og beitan hafði lengd til. Hákarlinn byrjaði á því að sjúga þá beitu, og ef honum líkaði lykt og bragð, þá vildi hann líka ná í það, sem var beitt upp á legginn, og varð vaðarmaðurinn að finna það á því, hvernig hann tók í oddbeit- una, hvenær hann gapti til að ná í meira, og var þá færinu rennt út um 1 faðm. Var það kallað að setja í, því færið var strax dregið til baka, og var þá hákarlinn fastur á því. Ekki þótti vel sett í nema krók- urinn væri fastur niðri í maga á hákarlinum. Þegar búið var að beita krókinn, var færinu rennt út. Síðan var tekið grunnmál, það er að önglinum var lyft frá botni, og var það um 4 faðmar. Því næst var færið sett fast og farið að laga til í bátnum, hafa öll áhöld á sínum ákveðna stað. Því næst fengu menn sér bita að borða, því sá grái var vanur að láta bíða eftir sér. Það þótti ágætt, ef vart varð við hann eftir 2 klst., og stundum gat hann látið bíða eftir sér eitt og tvö sjávarföll. Venjulega var hann örastur um liggjandann (það er fjöruna); þá dró úr straum, og færin lágu beint að botni, og var það kallað að bera heim. Á flóði aftur á móti var stundum svo mikill straumur, að á 60 faðma dýpi bar færin út, svo að 90 faðmar voru úti eða meira. Venjulega var reynt að leggjast í byrjun útfalls, og væri eitthvað verulegt um hákarl, fékkst hann þegar fór að líða að háfjöru. Venjulega var hver hákarl dreginn af einum manni. Þó kom það fyrir, ef hákarlinn var stór og dýpi mikið, að tveir drógu sama hákarl- inn, en meira þótti það metnaðarmál að draga sinn afla sjálfur hjálparlaust. Þegar hákarlinn kom að borði, var fært í hann. Til þess voru not- aðir stórir járnkrókar, sem kallaðir voru ífcerur. Við þær var fest sterkum kaðli, um faðmslöngum, og var hann kallaður ífceruband. Árlók Fornleifafélagaina — 4

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.