Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1998, Page 87
mynt frávíkingaöld
91
að eins stór og viðamikill uppgröftur eins og farið hefur fram á Bessa-
stöðum skuli ekki hafa dregið fram í dagljósið fleiri muni en raun ber
vitni, vegna þess að búið hefur verið á Bessastöðum samfleytt frá land-
námsöld og fram á okkar daga.
Sumarið 1999 bættust loks við tveir peningar, og verður að telja það
töluverða viðbót með hliðsjón af heildartjölda fundinna mynta. Fyrri
peningurinn fannst á Þingvöllum þar sem Fornleifastofnun Islands var að
grafa könnunarskurð rétt við kirkjuna. Peningurinn er nokkuð heillegur,
þó að kvarnast hafi lítillega úr honum.Við athugun kom í ljós að liér er
ffin að ræða norskan pening af svokaflaðri nafnlausri gerð (norska:
anonym typ) frá tímabilinu um 1065-1080. Flann er af gerð sem slegin
var á Norðurlöndum á þessum árum þ.e.a.s. eftirlíking penings frá Aðal-
ráði II eða Knúti ríka sem slegnir voru á Englandi á tímabilinu um þús-
und (997-1003). Ekki tókst að fmna nákvæmlega sams konar pening í
bók Kolbjörns Skaare, en það segir ekki alla sögu. Eftir er að hreinsa
peninginn og einnig eru nflklar líkur á að þessi gerð sé slegin í áður
oþekktu móti. Þörf er þó á mun nánari athugun áður en slíkt verður
staðhæft.
Hinn peningurinn eða öllu heldur brotið úr peningi fannst við upp-
gröft á kirkju að Þórarinsstöðum við Seyðisfjörð. Af brotinu má ráða að
hann hafi verið, eins og sá sem fannst á Þingvöllum, eftirlíking af engil-
saxneskum peningi. Vegna þess að brotið sem fannst er lítið er erfitt að
greina peninginn með nákvæmni, en mestar líkur eru á að brotið sé úr
dönskum peningi, annað hvort frá Hörðaknúti (1035-42) eða Magnúsi
góða (1042-47) en báðir þessir konungar létu slá mynt sem var eftirgerð
engilsaxneskra mynta.
Aflir málmar, einkum góðmálmar, hafa verið mjög verðmætir á Is-
landi, enda þurfti að flytja þá inn. Því hafa íslendingar gætt vel að málm-
hlutum og er það eflaust ein ástæða þess að svo fáar myntir hafa fundist
hér á landi.
Þessi grein hefur áður birst á sœnskn í Ord mcd mening. Festskrifl til Jargen Steen Jensen 1. nov.
1998, og er hér birt iiokkru ítarlegri.
Tilvísuti
1 • Kristján Eldjárn: Lítil saga um lítinn pening, bls. 15.
Heimildir
ónton Holt: „Fynd av mynt frán vikingatiden pá Island". Ord med menitig. Festskrift til
Jorgen Steen Jenscn 1. nov. 1998.