Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1998, Page 104
108
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
ætla að gaflinn hafi upprunalega verið um 4,5 m langur. Byggingar sem
síðar voru reistar norðan við skálann höfðu skaddað gaflinn að utanverðu
svo að eftir voru aðeins um 0,6 m breiðar veggjaleifar.
Tvö notkunarskeið
Við rannsókn á skálanum kom í ljós að hann hefur skipt urn hlutverk
eftir að hafa verið tiltölulega skamman tíma í notkun, kannski fáein ár
eða áratugi. Upphaflega var hann byggður og notaður sem vistarvera
manna (6. mynd). Þannig hefur hann líklega aðeins verið notaður
skamma hríð, enda er gólfskánin sem heyrir til þessu tímabili aðeins ca 1-
2 cm þykk. Hún er gráleit og í henni fundust matarleifar, m.a. brennd og
óbrennd dýrabein. Neðst í gólflaginu var mikið af höggspónum sem
munu vera frá byggingu hússins.
Eftir að fólk flutti úr skálanum hefur honum verið breytt í útihús, lík-
lega fjárhús (7. mynd). Eftir að húsið hafði þjónað því hlutverki urn skeið
hefur kviknað í því og það brunnið til kaldra kola. Þak og þakgrind hef-
ur fallið inn og myndað um 10-15 cm þykkt ösku- og brunalag af kol-
uðu timbri og brenndu torfi. Eftir eldsvoðann hefur verið jafnað yfir
brunarústirnar og virðist efri hluti veggjanna hafa verið felldur inn í tóft-
ina, en veggjarbrot sem eftir stóðu hafa einfaldlega verið látin ganga inn í
veggi nýrra húsa.
Eldra notkunarskeið
Eins og fram er komið var skálinn notaður sem mannabústaður á fyrra
notkunarskeiði. Hér verður greint frá því sem fannst innandyra og til-
heyrði þessu skeiði. A þessum tíma skiptist skálinn í inngang, anddyri eða
forskála, búr eða eldhús og vistarveru. Frásögnin miðast við að komið sé
að skálanum að austan, gengið inn í hann og því lýst sem fyrir verður.
Inngangur
Norðarlega á austurlangvegg hefur verið 1 m breiður inngangur, að
nokkru lagður þunnum hellurn, sem hvíla á um 2 cm þykku lagi af
kurluðu hrísi. Ofan á hellulaginu er um 1 cm þykk grá gólfskán. Undir
hríslaginu er allt að 20 cm þykkt mjög hreyft lag þar sein gulur sendinn
leirinn er blandaður höggspónum. Þetta er hluti af nrýrlenda laginu
austan við bæinn sem nær þarna upp að húsinu og sem hefur traðkast út
þegar skálinn var reistur. I línu við ytri veggjarbrún inngangsins er
þröskuldur úr tré. Hann er þannig gerður að fjöl hefur verið reist upp á
rönd og við hvorn enda hennar stendur hæll. Þessir hælar eru 4-6 crn í