Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1998, Síða 190
194
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
í Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla í Stykkishólmi komu 4.269
gestir. Norska húsið var lagfært og settar nýjar lýsingar í sýningarstofu á annarri
hæð.
Opnuð var á sumardaginn fyrsta sýning félagsskaparins Ernblu um handverk úr
sjávarfangi og opnuð var verzlun í húsinu 1. júní er sumarstarfsemi hófst, þar er
aðallega selt handverk heimamanna. Amtsbókasafnið hafði sýningu í húsinu vegna
150 ára afmælis síns, og sýning var um starf barnastúkunnar Bjarkar, sem átti 70
ára affnæli á árinu. Þá var þar affnælissýning Héraðssambands ungmennafélaganna
og sýning á myndum R. Weissauers í eigu Amtsbókasafnsins.
Gengið var frá fréttaljósmyndum Arna Helgasonar.
Lokið að mestu viðgerð á miðhæð Pakkhússins í Ölafsvík og sett þar bruna-
varna- og innbrotsvarnakerfi. Þar var opnuð upplýsingamiðstöð fýrir ferðamenn
og 5. júlí var opnuð þar sögusýning staðarins og sýning um fóhann Jónsson skáld,
sem ólst upp í Olafsvík. I húsið komu um 3.300 manns.
I Sjómannagarðinn á Hellissandi komu um 3.000 manns, engar breytingar
voru þar á sýningum.
Minjasafn Egils Olafssonar á Hnjóti. Þangað komu 3.316 gestir, þar af er-
lendir 673. Unnið var að stækkun safnhússins svo og að koma upp grind að
flugskýlinu, sem var íVatnagörðum í Reykjavík.
Byggðasafn Vestfjarða. Safngestir urðu rúmlega 7.000. Jón Sigurpálsson
forstöðumaður var í leyfi hálft árið og var Jóna Símonía Bjarnadóttir ráðin til
safnsins á meðan.
Safnið átti samvinnu við vinnuskóla Isafjarðarkaupstaðar og var þá þurrkaður
saltfiskur á reitnum við safnið. Safiiið stóð fyrir sex skemmtikvöldum á fimmtu-
dögum í Tjöruhúsinu, fékk dagskráin góðar viðtökur og var húsfýllir.
Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna. Gestir í safninu urðu 3.800
að meðtöldum nemum úr skólabúðunum.
Smíðaðir voru lifrarkassar og plittar í hákarlaskipið Ofeig, en ekki tókst að
ljúka því verki að fullu, áformað er að búa skipið þeim farviðum og búnaði sem
það hafði sem hákarlaskip. Aður höfðu verið saumuð segl, svo sem frá hefur ver-
ið skýrt í skýrslu. Benjamín Kristinsson á Þorfinnsstöðum, frá Dröngum í
Strandasýslu, smiðar búnað skipsins og hefur sem heimild teikningar og líkan af
skipinu, sem má teljast allöruggt til fýrirmyndar. Þjóðminjasafnið kostar þessa
aðgerð, enda á það skipið.Talað er unt að reisa á Reykjum sérstakt hús, þar sem
skipið gæti staðið undir seglum.
Um vorið gerði Steinþór Sigurðsson nýskipan sýningar í Ofeigsskála og and-
dyri, lagði megináherzlu á hákarlaveiðar.
Nokkrum gömlum bátum safnsins og stórum tækjum var komið til geymslu í
hlöðu á Söndum í Miðfirði.